Gamla testamentiðSpámennirnir
Og orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi: Þegar maður rekur frá sér konu sína, og hún fer frá honum og giftist öðrum manni, Selur hann þá horfið til hennar aftur? Mundi landið ekki vanhelgast af því? En þú hefir drýgt hór með mörgum friðlum og ættir þó að snúa aftur til mín? — segir Drottinn.
Renn augum þínum upp á skóglausu hæðirnar og gæt að: hvar hefir þú eigi verið svívirt? Við vegina situr þú um þá, eins og Arabi í eyðimörkinni, og vanhelgar landið með lauslæti þínu og vonzku þinni.
Og þótt skúrunum væri haldið aftur og ekkert vorregn kæmi, þá varst þú með hórusvip; þú vildir ekki skammast þín.
En nú kallar þú til mín: Faðir minn! þú ert unnusti æsku minnar!
Mun hann verða reiður eilíflega, alt af erfa það? Sjá, þannig talar þú, en fremur ilt og getur fengið það af þér.
Og Drottinn sagði við mig á dögum Jósía konungs: Hefir þú séð, hvað hin fráhverfa, Ísrael, hefir aðhafst? Hún fór upp á hverja háa hæð og inn undir hvert grænt tré og hóraðist þar.
Eg hugsaði raunar: Eftir að hún hefir aðhafst alt þetta, mun hún snúa aftur til mín; en hún sneri ekki aftur. það sá hin ótrúa, systir hennar Júda;
Vog þótt hún sæi, að einmitt vegna þess, að hin fráhverfa, Ísrael, hafði drýgt hór, hafði eg rekið hana burt og gefið henni skilnaðarskrá, þá óttaðist ekki hin ótrúa, systir hennar Júda, heldur fór og drýgði líka hór;
og með hinu léttúðarfulla lauslæti sínu vanhelgaði hún landið og drýgði hór með steini og trédrumbi.
En þrátt fyrir alt þetta hefir hin ótrúa, systir hennar Júda, eigi snúið sér til mín af öllu hjarta, heldur með hræsni — segir Drottinn.
Og Drottinn sagði við mig: Hin fráhverfa, Ísrael, er saklaus í samanburði við hina ótrúu,
Far þú og kalla þessi orð í norðurátt og seg: Hverf aftur, þú hin fráhverfa, Ísrael — segir Drottinn —, eg vil ekki lengur líta reiðulega til yðar, því að eg er miskunnsamur — segir Drottinn—, eg er ekki eilíflega reiður.
Kannastu aðeins við ávirðing þína, að þú hefir rofið trúnað við Drottin, Guð þinn, og hlaupið ýmsar leiðir til þess að gefa þig á vald þeim útlendu undir hverju grænu tré, en minni raust hafið þér ekki hlýtt — segir Drottinn.
Hverfið aftur, þér fráhorfnu synir — segir Drottinn —því að eg er herra yðar. Og eg vil taka yður, einn úr hverri borg og tvo af hverjum kynstofni, og flytja yður til Zíon;
og eg vil gefa yður hirða eftir mínu hjarta, og þeir munu gæta yðar með greind og hyggindum.
Og þegar þér fjölgið og verðið frjósamir í landinu á þeim dögum — segir Drottinn -—, þá munu menn eigi framar segja: Sáttmálsörk Drottins! og hún mun engum í hug koma, og þeir munu ekki minnast hennar né sakna hennar, né heldur munu menn framar búa aðra til;
þá munu menn kalla Jerúsalem hásæti Drottins og allar þjóðir munu safnast þangað vegna nafns Drottins og eigi framar fara eftir þrózku síns vonda hjarta.
Á þeim dögum mun Júda hús ganga til Ísraels húss, og þeir munu halda saman úr landinu norður frá inn í landið, sem eg gaf feðrum yðar Ul eignar.
En eg hafði hugsað: Hversu hátt vil eg selja þig meðal barnanna og gefa þér unaðslegt land, hina dýrlegustu arfleifð meðal allra þjóða! Og enn fremur hugsaði eg: þér skuluð nefna mig föður og eigi láta af að fylgja mér.
En eins og kona verður ótrú elskhuga sínum, eins urðuð þér ótrúir mér, Ísraels hús, — segir Drottinn.
Hljóð heyrist á skóglausu hæðunum: grátbiðjandi kvein Ísraelsmanna, af því að þeir hafa breytt illa og gleymt Drottni, Guði sínum.
Hverfið aftur, þér fráhorfnu synir; eg vil lækna fráhvarfssyndir yðar! — Hér erum vér, vér komum til þín, því að þú ert Drottinn, Guð vor.
Vissulega er hávaðinn á hæðunum svikull. Vissulega er hjálp Ísraels hjá Drottni, Guði vorum.
SSvívirðingin hefir eytt afla feðra vorra alt frá æsku vorri, sauðum þeirra og nautum, sonum þeirra og dætrum.
Vér viljum leggjast niður í smán vorri, og skömm vor hylji oss; því að á móti Drottni, Guði vorum, höfum vér syndgað, bæði vér og feður vorir, frá æsku vorri og alt fram á þennan dag, og höfum eigi hlýtt raustu Drottins, Guðs vors.