Jeremíabók 2Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jeremíabók 2

Og orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi:

Far og kunngjör Jerúsalem þetta: Svo segir Drottinn: Eg mun eftir kærleika æsku þinnar, elsku festartíma þíns, hversu þú fylgdir mér í eyðimörkinni, í ófrjóu landi.

Ísrael var helgaður Drottni, frumgróði uppskeru hans; allir þeir, sem vildu eta hann, urðu sekir; ógæfa kom yfir þá, — segir Drottinn.

Heyrið orð Drottins, Jakobs hús og allar þér ættkvíslir Ísraels húss!

Svo segir Drottinn: Hver rangindi hafa feður yðar fundið hjá mér, að þeir hurfu frá mér og eltu fánýt goð og breyttu heimskulega,

og sögðu ekki: Hvar er Drottinn, sem flutti oss burt af Egiptalandi, sem leiddi oss um eyðimörkina, um heiða- og gjótulandið, um þurra og niðdimma landið, um landið, sem enginn fer um og enginn maður býr í?

Og eg leiddi yður inn í aldingarðslandið, til þess að þér nytuð ávaxta þess og gæða; en þegar þér voruð komnir þangað, saurguðuð þér land mitt og gjörðuð óðal mitt að viðurstygð.

Prestarnir sögðu ekki: Hvar er Drottinn? og þeir, er við lögmálið fengust, þektu mig ekki, og hirðarnir rufu trúnað við mig; og spámennirnir spáðu í nafni Baals og eltu þá, sem ekki geta hjálpað.

Fyrir því mun eg enn þreyta mál við yður — segir Drottinn — og við sonasonu yðar mun eg þreyta mál;

því farið yfir til stranda Kilta og gangið úr skugga um og sendið til Kedars og hyggið vandlega að og gangið úr skugga um, hvort slíkt hafi nokkurn tíma við borið!

hvort nokkur þjóð hafi skift um guð — og þeir eru ekki guðir. En mín þjóð hefir látið vegsemd sína fyrir það, sem ekki getur hjálpað.

Furðið yður, himnar, á þessu og skelfist og verið agndofa — segir Drottinn.

Því að tvent út hefir þjóð mín aðhafst: þeir hafa yfirgefið mig, uppsprettu hins lifandi vatns, til þess að grafa sér brunna, brunna með sprungum, sem ekki halda vatni,

Er Ísrael þræll, eða er hann heimafætt þý? Hví er hann orðinn að herfangi?

Ljón grenjuðu móti honum, hófu upp öskur sitt og gjörðu land hans að auðn; borgir hans voru brendar, urðu mannauðar.

Nóf-menn og Tahpanes-menn reyttu á þér skallann.

Hefir þú ekki bakað þér þetta með því að yfirgefa Drottin, Guð þinn, þá er hann leiddi þig á veginum?

Og nú, hvað þarft þú að fara til Egiptalands, til þess að drekka vatn úr Níl? Og hvað þarft þú að fara til Assýríu, til þess að drekka vatn úr Evfrat?

Vonzka þín mun aga þig og fráhvarf þitt refsa þér; þá skalt þú fá að kenna á því og reyna það, hve ilt og beiskt það er, að þú yfirgafst Drottinn, Guð þinn, og hafðir ekki ótta fyrir mér, — Drottinn, Drottinn hersveitanna, segir það.

Því að fyrir löngu hefir þú sundurbrotið ok þitt, slitið böndin og sagt: Eg vil ekki þjóna! Því að á hverjum háum hóf og undir hverju grænu tré lagðist þú niður og hóraðist.

En eg hafði gróðursett þig sem gæðavínvið, eintómt úrvalssæði; hvernig gaztu breyzt fyrir mér í vilhvinviðarteinungá?

Já, þótt þú þvægir þér með lút og brúkaðir mikla sápu á þig, þá verður samt misgjörð þín óhrein fyrir mér, — Drottinn Guð segir það.

Hvernig getur þú sagt: Eg hefi ekki saurgað mig, eg hefi ekki elt Baalana? Hygg að athæfi þínu í dalnum, sjá, hvað þú hefir gjört, léttfætta úlfaldahryssa, sem hleypur til og frá.

Eins og villiasna, sem vön er eyðimörkinni, stendur hún á öndinni í girndarbruna sínum, hver fær aftrað losta hennar? Þeir, sem hennar leita, þurfa engir að þreyta sig; þeir finna bana í mánuði hennar.

Varðveit þú fól þinn, svo að skórinn fari ekki af honum, og háls þinn, svo að hann verði ekki þurr! — En þú segir: Það er til einskis! Nei! því að eg elska hina útlendu og þá vil eg elta.

Eins og þjófurinn má skammast sín, þegar hann er staðinn að verkinu, svo má Ísraels hús skammast sín: þeir, konungar þeirra, höfðingjar þeirra, prestar þeirra og spámenn þeirra,

þeir sem segja við trédrumb: þú ert faðir minn! og við stein: þú hefir fætt mig! Því að þeir hafa snúið við mér bakinu, en ekki andlitinu; en þegar þeir eru í nauðum staddir, þá hrópa þeir: Rís upp og hjálpa oss!

Og hvar eru guðir þínir, sem þú hefir gjört þér? Þeir verða að rísa upp, ef þeir geta hjálpað þér, þegar þú ert í nauðum staddur! Því að guðir þínir, Júda, eru orðnir eins margir og borgir þínar.

Hví þráttið þér við mig? Þér hafið allir rofið trúnað við mig — segir Drottinn.

Til einskis hefi eg slegið sonu yðar, aga þýddust þér ekki; sverð yðar tortímdi spámönnum yðar, eins og eyðandi ljón.

Þú kynslóð, gefið þér gaum orði Drottins! Hefi eg verið eyðimörk fyrir Ísrael eða niðdimt land? Hví segir þá þjóð mín: Vér erum lausir, vér munum ekki koma aftur til þín!

Mun mær gleyma skarti sínu, brúður belti sínu? Og þó hefir þjóð mín gleymt mér afarlangan tíma.

Hversu haganlega fer þú að ráði þínu, til þess að leita þér ástar! Til þess hefir þú jafnvel vanið þig á glæpa-atferli.

Jafnvel á faldi klæða þinna sést blóð saklausra aumingja; þú stóðst þá eigi að innbroti, heldur var það vegna alls þessa.

Og þó segir þú: Eg er saklaus; vissulega hefir reiði hans snúist frá mér. Sjá, nú dreg eg þig fyrir dóm, af því að þú segir: Eg hefi ekki syndgað.

Hví flýtir þú þér svo mjög burt, til þess að halda aðra leið? Vonir þínar um Egiptaland munu og bregðast, eins og vonir þínar um Assúr brugðust;

einnig þaðan munt þú koma, sláandi höndum saman yfir höfði þér; því að Drottinn hefir hafnað þeim, er þú treystir á, og þér mun ekkert lánast með þá.