Jeremíabók 1Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jeremíabók 1

Ræður Jeremía Hilkíasonar, er var einn af prestunum í Anatót í Benjamínslandi;

en til hans kom orð Drottins á dögum Jósia Amónssonar, konungs í Júda, á þrettánda ríkisári hans;

og það kom enn fremur á dögum Jójakíms Jósíasonar, konungs í Júda, alt til ársloka hins ellefta árs Zedekia Jósíasonar, konungs í Júda, alt til herleiðingar Jerúsalembúa í fimta mánuðinum.

Og orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi:

Áður en eg myndaði þig í móðurlífi, útvaldi eg þig, og áður en þú komst af móðurkviði, helgaði eg þig; eg hefi ákvarðað þig til að vera spámann þjóðanna!

Þá sagði eg: Æ, Drottinn Guð! Sjá, eg kann ekki að tala, því að eg er enn svo ungur.

En Drottinn sagði við mig: Seg ekki: eg er enn svo ungur! heldur skalt þú fara tl allra, sem eg sendi þig til, Og tala alt það, er eg býð þér.

Þú skalt ekki óttast þá, því að eg er með þér, til þess að frelsa þig! — segir Drottinn.

Því næst rétti Drottinn út hönd sína og snart munn minn. Og Drottinn sagði við mig: Sjá, eg legg orð mín þér í munn;

sjá þú, eg sel þig í dag yfir þjóðirnar og yfir konungsríkin, til þess að uppræta og umturna, eyða og rífa niður, Þyggja og gróðursetja!

Og orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi: Hvað sér þú, Jeremía? Eg svaraði: Eg sé möndluviðargrein.

En Drottinn sagði við mig: Þú hefir séð rétt, því að eg vaki yfir orði mínu, til þess að framkvæma það.

Þá kom orð Drottins til mín annað sinn, svo hljóðandi: Hvað sér þú? Eg svaraði: Eg sé sjóðandi pott, og snýr hann framhliðinni að oss úr norðri.

Þá sagði Drottinn við mig: Úr norðri mun ógæfan koma sjóðandi yfir alla íbúa landsins.

Því sjá, eg kalla allar ættkvíslir ríkjanna í norðri — Drottins segir að —, til þess að þeir komi og reisi hver og einn upp hásæti sitt úti fyrir hliðum Jerúsalem og gegn öllum múrum hennar hringinn í kring og gegn öllum borgum í Júda.

Og eg mun kveða upp dóma mína yfir þeim, vegna allrar ilsku þeirra, að þeir hafa yfirgefið mig og fært öðrum guðum reykelsisfórnir og fallið fram fyrir handaverkum sínum.

En gyrð þú lendar þínar, statt upp og tala til þeirra alt, sem eg býð þér. Vertu ekki hræddur við þá, til þess að eg gjöri þig ekki hræddan frammi fyrir þeim.

Sjá, eg gjöri þig í dag að rammbygðri borg og að járnsúlu og að eirveggjum gegn öllu landinu, gegn Júdakonungunum, gegn höfðingjum þess, gegn prestum þess og gegn öllum landslýðnum, —

og þótt þeir berjist gegn þér, þá munu þeir eigi fá yfirstigið þig, því að eg er með þér — Drottinn segir það —, til þess að frelsa þig.