Jeremíabók 39Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jeremíabók 39

En er Jerúsalem var unnin (á níunda ríkisári Zedekía Júdakonungs, í tíunda mánuðinum, kom Nebúkadrezar Babel-konungur og allur hans her til Jerúsalem, og luktu þeir um hana;

en á ellefta ríkisári Zedekía, í fjórða mánuðinum, níunda dag mánaðarins, var brotið skarð inn í borgina),

þá komu allir höfðingjar Babel-konungs og settust í Miðhliðið: þeir Nergal-Sarezer, Samgar-Nebú, Sarsekím hirðstjóri, Nergal-Sarezer yfirfræðimaður og allir hinir höfðingjar Babel-konungs.

En er Zedekía Júdakonungur og allir hermennirnir sáu þá, flýðu þeir og fóru um nóttina út úr borginni, veginn, sem liggur út að konungsgarðinum, gegnum hliðið milli beggja múranna og héldu leiðina til sléttlendisins.

En her Kaldea veitti þeim eftirför og náði Zedekía á Jeríkó-völlum; tóku þeir hann og fluttu hann til Ribla í Hamathéraði til Nebúkadrezars Babel-konungs; hann kvað upp dóm hans.

Lét Babel-konungur drepa sonu Zedekía í Ribla fyrir augum hans; sömuleiðis lét Babel-konungur drepa alla tignarmenn Júda.

En Zedekía lét hann blinda og binda eirfjötrum, til þess að flytja hann til Babel.

En konungshöllina og hús lýðsins brendu Kaldear í eldi og rifu niður múra Jerúsalem.

En leifar lýðsins, þá er eftir voru í borginni, og liðhlaupana, þá er hlaupist höfðu í lið með honum, og leifar lýðsins, þá er eftir voru, herleiddi Nebúsaradan lífvarðarforingi til Babel;

en af almúgamönnum, sem ekkert áttu, lét Nebúsaradan lífvarðarforingi nokkura verða eftir í Júdalandi og gaf þeim þann dag víngarða og akra.

En um Jeremía gaf Nebúkadrezar Babel-konungur út svolátandi skipun fyrir milligöngu Nebúsaradans lífvarðarforingja:

Tak hann og annast hann og gjör honum ekkert ilt, heldur gjör við hann svo sem hann mælist til við þig!

Þá sendu þeir Nebúsaradan lífvarðarforingi og Nebúsasban geldinga-höfuðsmaður og Nergal-Sarezer yfirfræðimaður og allir yfirmenn Babel-konungs, —

þeir sendu og létu sækja Jeremía í varðgarðinn og seldu hann í hendur Gedalja Ahíkamssyni, Safanssonar, að hann færi með hann heim. Og þannig varð hann kyrr meðal lýðsins.

En meðan Jeremía sat innilokaður í varðgarðinum, hafði orð Drottins komið til hans, svo hljóðandi:

Far og seg við Ebed-Melek Blálending: Svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð: Sjá, eg læt orð mín um ógæfu, en eigi um hamingju, koma fram á þessari borg, og þau skulu rætast fyrir augum þínum á þeim degi.

En eg skal frelsa þig á þeim degi — segir Drottinn — og þú skalt ekki seldur verða á vald mönnum þeim, er þú hræðist;

heldur skal eg láta þig komast undan og þú skalt ekki falla fyrir sverði, og þú skalt hljóta líf þitt að herfangi, af því að þú hefir treyst mér — segir Drottinn.