Gamla testamentiðSpámennirnir
Þá fréttu þeir Sefatja Mattansson, Gedalja Pashúrsson, Júkal Selemjason og Pashúr Malkíason þau orð, er Jeremía talaði til alls lýðsins, segjandi:
Svo segir Drottinn: Þeir, sem verða kyrrir í þessari borg, munu deyja fyrir sverði, af hungri og af drepsótt; en þeir, sem fara út til Kaldea, munu lífi halda og hljóta líf sitt að herfangi og lifa.
svo segir Drottinn: Þessi borg mun vissulega verða gefin her Babel-konungs á vald, og hann mun vinna hana!
Þá sögðu höfðingjarnir við konung: Lát drepa mann þennan! Því að hann gjörir hermennina, sem eftir eru í þessari borg, huglausa og allan lýðinn með því að tala slík orð til þeirra; því að þessi maður leitar ekki þess, sem þessum lýð er til heilla, heldur þess, sem honum er til ógæfu.
En Zedekía konungur svaraði: Sjá, hann er á yðar valdi, því að konungurinn megnar ekkert á móti yður.
Þá tóku þeir Jeremía og köstuðu honum í gryfju Malkía konungssonar, sem var í varðgarðinum, og létu þeir Jeremía síga niður í böndum; en í gryfjunni var ekkert vatn, heldur leðja, og Jeremía sökk ofan í leðjuna.
En er Ebed-Melek, blálenzkur geldingur, sem var í konungshöllinni, frétti, að þeir hefðu varpað Jeremía í gryfjuna, — en konungur sat þá í Benjamínshliði —,
þá gekk Ebed-Melek út úr konungshöllinni og mælti til konungs á þessa leið:
Minn herra konungur! Illverk hafa þessir menn framið með öllu því, er þeir hafa gjört við Jeremía spámann, sem þeir köstuðu í gryfjuna, svo að hann hlýtur að deyja þar úr hungri, því að ekkert brauð er framar til í borginni.
Þá skipaði konungur Ebed-Melek Blálendingi á þessa leið: Tak héðan með þrjá menn og drag Jeremía spámann upp úr gryfjunni, áður en hann deyr.
Og Ebed-Melek tók mennina með sér og fór inn í leonUlgshöllina, inn undir féhirzluna, og tók þar sundurrifna fataræfla og klæðaslitur og lét síga í höndum niður í gryfjuna til Jeremía.
Síðan mælti Eljed-Melek Blálendingur til Jeremía: Legg rifnu og slitnu fataræflana undir hendur þér undir böndin! Og Jeremía gjörði svo.
Og þeir drógu Jeremía upp með böndunum og hófu hann upp úr gryfjunni, og sat nú Jeremía í varðgarðinum.
En Zedekía konungur sendi og lét sækja Jeremía spámann til sín að þriðju dyrunum, sem eru í musteri Drottins, og konungur mælti til Jeremía: Eg vil spyrja þig fokkurs; leyn mig engu!
En Jeremía mælti til Zedekía: Hvort munt þú ekki deyða mig, ef eg segi þér það? og þótt eg ráðleggi þér eitthvað, þá hlýðir þú mér ekki!
Þá vann Zedekia konungur Jeremía eið á laun og mælti: Svo sannarlega sem Drottinn lifir, sá er skapað hefir í oss þetta líf, skal eg ekki deyða þig né selja þig á vald þessara manna, sem sitja um líf þitt.
Þá sagði Jeremía við Zedekia: Svo segir Drottinn, Guð hersveitanna, Ísraels Guð: Ef þú gengur á vald höfðingjum Babel-konungs, þá munt þú lífi halda og borg þessi eigi verða brend í eldi, og þú munt lífi halda og fólk þitt.
En gangir þú ekki á vald höfðingjum Babel-konungs, þá mun borg þessi seld verða á vald Kaldea, og þeir munu brenna hana í eldi, og þú munt ekki heldur komast undan þeim.
Þá sagði Zedekia konungur við Jeremia: Eg óttast Júða þá, sem þegar hafa hlaupist yfir til Kaldea, að menn kynnu að selja mig þeim á vald og þeir draga dár að mér!
En Jeremía sagði: Þeir munu eigi framselja þig. Hlýð þú boði Drottins í því, er eg segi þér, þá mun þér vel vegna og þú lífi halda.
En ef þú færist undan að ganga á vald þeirra, þá hefir Drottinn birt mér þetta:
Sjá, allar þær konur, sem eftir munu verða í höll Júdakonungs, skulu fluttar verða til höfðingja Babel-konungs, og sjá, þær munu segja: »Gini hafa þig og orðið þér yfirsterkari menn, sem voru í vináttu við þig. Þegar fætur þínir sukku í foræðið, hörfuðu þeir aftur á bak!«
Og allar konur þínar og börn þín munu færðar verða Kaldeum og ekki munt þú heldur komast undan þeim, heldur munt þú gripinn verða og seldur á vald Babel-konungs, og þessi borg mun brend verða í eldi.
Þá sagði Zedekía við Jeremía: Enginn maður má vita af þessum viðræðum, ella verður það þinn bani.
En þegar höfðingjarnir frétta, að eg hafi talað við þig, og þeir koma til þín og segja við þig: »Seg oss, hvað þú talaðir við konung, — leyn oss engu, ella drepum vér þig — og hvað konungur talaði við þig«,
þá seg við þá: Eg bað konung auðmjúklega að láta mig ekki fara aftur í hús Jónatans, til þess að deyja þar.
Og allir höfðingjarnir komu til Jeremía og spurðu hann; en hann skýrði þeim með öllu svo frá sem konungur hafði lagt fyrir. Þá gengu þeir rólegir burt frá honum, því að þetta hafði ekki orðið hljóðbært.
Og Jeremía sat í varðgarðinum alt til þess dags, er Jerúsalem var unnin.