Jeremíabók 37Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jeremíabók 37

Og Zedekía Jósíason varð konungur í stað Konja Jójakímssonar, er Nebúkadrezar Babel-konungur hafði gjört að konungi í Júdalandi.

En hvorki hann, né þjónar hans, né landslýðurinn hlýddi orðum Drottinn, þeim er hann talaði fyrir munn Jeremía spámanns.

Og Zedekía konungur sendi Júkal Selemjason og Zefanía prest Maasejason til Jeremía spámanns með svolátandi orðsending: Bið þú fyrir oss til Drottins, Guðs vors!

En Jeremía gekk þá út og inn meðal lýðsins og þeir höfðu enn ekki sett hann í dýflissuna.

Her Faraós var og lagður af stað frá Egiptalandi, og er Kaldear, sem sátu um Jerúsalem, spurðu það, héldu þeir burt frá Jerúsalem.

Þá kom orð Drottins til Jeremía spámanns, svo hljóðandi:

Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: Svo skuluð þér segja við Júdakonung, sem sendi yður til mín, til þess að spyrja mig: Her Faraós, sem lagður er af stað yður til hjálpar, mun snúa aftur til síns lands, til Egiptalands,

og Kaldear munu og aftur snúa og herja á þessa borg, vinna hana og brenna hana í eldi.

Svo segir Drottinn: Svíkið ekki sjálfa yður með því að segja: »Kaldear munu vissulega fara burt frá oss!« því að þeir fara ekki burt.

Því að þótt þér felduð allan her Kaldea, er á yður herjar, og ekki væru aðrir orðnir eftir af þeim en sverði lagðir menn, þá mundu þeir rísa upp, hver og einn í sínu tjaldi, og brenna þessa borg í eldi!

En er her Kaldea fór burt frá Jerúsalem undan her Faraós,

þá fór Jeremía frá Jerúsalem og hélt til Benjamínslands, til þess að taka þar á móti erfðahlut, mitt á meðal lýðsins.

En er hann kom í Benjamínshlið, þá var þar fyrir varðmaður, að nafni Jería Selemjason, Hananíasonar; hann þreif í Jeremía spámann og sagði: Þú ætlar að hlaupast burt til Kaldea!

En Jeremía sagði: Það er lygi! Eg ætla ekki að hlaupast burt til Kaldea! og sinti honum eigi frekar. En Jería tók Jeremía höndum og fór með hann til höfðingjanna.

Og höfðingjarnir reiddust Jeremía og hörðu hann og settu hann í fangelsi í húsi Jónatans kanzlara, því að það höfðu þeir gjört að dýflissu.

Og Þannig komst Jeremía í prísundina og í hvelfinguna; og þar sat Jeremía all-langan tíma.

En Zedekia konungur sendi og lét sækja hann og konungur spurði hann á laun í höll sinni og mælti: Hefir nokkurt orð komið frá Drottni? Jeremía svaraði: Svo er víst! Og hann mælti: Þú munt seldur verða á vald Babel-konungs!

Því næst sagði Jeremía við Zedekía konung: Hvað hefi eg brotið gegn þér og gegn þjónum þínum og gegn þessum lýð, að þér hafið selt mig í dýflissu?

Og hvar eru nú spámenn yðar, þeir er spáðu yður og sögðu: »Eigi mun Babel-konungur fara í móti yður og í móti þessu landi« —?

Og heyr nú, minn herra konungur! Virzt að heyra auðmjúka bæn mína! Lát eigi flytja mig aftur í hús Jónatans kanzlara, svo að eg deyi þar ekki!

Síðan var Jeremía settur í varðhald í varðgarðinum að boði Zedekía konungs og honum gefinn brauðhleifur á degi hverjum úr bakarastrætinu, unz alt brauð var uppgengið í borginni. Og þannig sat Jeremía í varðgarðinum.