Jeremíabók 40Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jeremíabók 40

Orðið, sem kom til Jeremía frá Drottni, eftir að Nebúsaradan lífvarðarforingi hafði látið hann lausan í Rama, með því að hann lét sækja hann — hann var sem sé bundinn fjötrum meðal allra hinna herteknu frá Jerúsalem og Júda, er flytjast áttu til Babel —,

og lífvarðarforinginn lét sækja Jeremía og sagði við hann: Drottinn, Guð þinn, hótaði þessum stað þessari ógæfu

og lét hana fram koma, og Drottinn gjörði eins og hann hafði hótað; því að þér syndguðuð gegn Drottni og hlýdduð eigi hans raustu, og fyrir því hefir yður þetta að höndum borið.

Og sjá, nú leysi eg fjötrana af höndum þínum; ef þér þóknast að koma með mér til Babel, þá kom þú og eg skal ala önn fyrir þér. En ef þér þóknast ekki að koma með mér til Babel, þá lát það ógjört. Sjá þú, alt landið liggur opið fyrir þér; hvert sem þér lízt gott og rétt að fara, þangað mátt þú fara.

En er Jeremía lét heimförina dragast, sagði hann: Far þú til Gedalja Ahíkamssonar, Safanssonar, er Babel-konungur hefir skipað yfir Júdaborgir, og ver með honum meðal lýðsins, eða far hvert sem þér þóknast að fara. Og lífvarðarforinginn fékk honum uppeldi og gjafir og lét hann í brott fara.

Og Jeremía fór til Mizpa til Gedalja Ahíkamssonar, og var með honum meðal lýðsins, þeirra er eftir voru í landinu.

Og er allir hershöfðingjarnir, sem enn voru úti, og menn þeirra fréttu, að Babel-konungur hefði skipað Gedalja Ahíkamsson landstjóra og að hann hefði falið umsjá hans menn og konur og börn og þá almúga landsins, er eigi voru herleiddir til Babel,

fóru þeir til Mizpa á fund Gedalja, þeir Ísmael Netanjason, Jóhanan Kareason, Seraja Tanhúmetsson, synir Efaí frá Netófa, og Jesanja, sonur Maakatítans, og menn þeirra.

Vann Gedalja Ahíkamsson, Safanssonar, þeim eið og mönnum þeirra og sagði: Óttist eigi að vera Kaldeum lýðskyldir; verið kyrrir í landinu og þjónið Babel-konungi, og mun yður vel vegna.

Og sjá, eg verð kyrr í Mizpa, til þess að taka á móti þeim Kaldeum, er til vor kunna að koma, en safnið þér uppskeru af víni, ávöxtum og olíu og látið í ílát yðar og verið kyrrir í borgum yðar, er þér hafið tekið til eignar.

Sömuleiðis fréttu og allir Júðar, sem voru í Móah og hjá Ammónítum og í Edóm og í öllum öðrum löndum, að Babelkonungur hefði skilið leifar eftir af Júda og að hann hefði selt Gedalja Ahíkamsson, Safanssonar, yfir þá,

og allir Júðar sneru aftur frá öllum þeim stöðum, þangað sem þeir höfðu hraktir verið, og komu til Júdalands, til Gedalja í Mizpa, og þeir söfnuðu mjög mikilli uppskeru af víni og ávöxtum.

En Jóhanan Kareason og allir hershöfðingjarnir, sem enn voru úti, fóru til Mizpa á fund Gedalja

og sögðu við hann: Veizt þú að Baalis Ammónítakonungur hefir sent Ísmael Netanjason, til þess að ráða þér bana? En Gedalja Ahíkamsson trúði þeim ekki.

Og Jóhanan Kareason sagði við Gedalja á laun í Mizpa: Leyf mér að fara og drepa Ísmael Netanjason, og enginn maður skal verða þess vís! Hví skal hann ráða þér bana og allir Júðar tvístrast, þeir er til þín hafa safnast, og leifar Júda verða að engu?

En Gedalja Ahíkamsson sagði við Jóhanan Kareason: Þú skalt ekki gjöra það, því að þú talar lygar um Ísmael!