Gamla testamentiðSpámennirnir
Orðið, sem kom til Jeremía frá Drottni á tíunda ríkisári Zedekía Júdakonungs, það er átjánda ríkisár Nebúkadrezars.
Þá sat her Babelkonungs um Jerúsalem; en Jeremia spámaður var innilokaður í varðgarðinum, sem heyrir til hallar Júdakonungs.
En Zedekía Júdakonungur hafði látið setja hann inn með þeim ummælum: Hví spáir þú og segir: Svo segir Drottinn: Sjá, eg sel þessa borg í hendur Babel-konungi, að hann vinni hana,
Zedekía Júdakonungur mun ekki komast undan valdi Kaldea, heldur mun hann áreiðanlega verða seldur á vald Babel-konungi, og hann mun tala við hann munni til munns og sjá hann augliti til auglitis;
og til Babel mun hann flytja Zedekia, og þar mun hann verða, unz eg vitja hans — segir Drottinn. þegar þér berjist við Ivaldea, munuð þér enga sigurför fara.
Og Jeremía sagði: Orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi:
Sjá, Hanameel, sonur Sallúms föðurbróður þíns, mun til þín koma og segja: Kaup þú akur minn Í Anatót, því að þú átt innlausnarréttinn að kaupa hann.
Og Hanameel frændi minn kom til mín, eins og Drottinn hafði fyrir sagt, í varðgarðinn og sagði við mig: Kaup þú akur minn í Anatót, sem er í Benjamínslandi, því að þú átt erfða- og innlausnarréttinn — kaup þú hann! Þá sá eg, að það var orð frá Drottni,
keypti akurinn í Anatót af Hanameel frænda mínum og vó honum út andvirðið, seytján sikla silfurs.
Og eg skrifaði það á bréf og innsiglaði það og tók votta að og vó silfrið á vog.
Síðan tók eg kaupbréfið, hið innsiglaða — boðið og skilmálana — og hið opna,
og fékk kaupbréfið Barúk Neríasyni, Mahasejasonar, í viðurvist Hanameels frænda míns og í viðurvist vottanna, er skrifað höfðu undir kaupbréfið, í viðurvist allra þeirra Júdamanna, er sátu í varðgarðinum,
og lagði svo fyrir Barúk í viðurvist þeirra:
Svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð: Tak þessi bréf, þetta innsiglaða kaupbréf og þetta opna kaupbréf, og legg þau í leirker, til þess að þau varðveitist lengi.
Því að svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð: Enn skulu hús keypt verða og akrar og víngarðar í þessu landi.
Og er eg hafði fengið Barúk Neríasyni kaupbréfið, bað eg til Drottins á þessa leið:
Æ, Drottinn Guð, sjá, þú hefir með þínum mikla mætti og útrétta armlegg gjört himin og jörð; þér er enginn hlutur um megn!
Þú sem auðsýnir miskunn þúsundum og geldur misgjörð feðranna í skaut sonum þeirra eftir þá, — þú mikli, voldugi Guð, er nefnist Drottinn hersveitanna,
mikill í ráðum og máttugur í athöfnum, þú hvers augu standa opin yfir öllum vegum mannanna barna, til þess að gjalda sérhverjum eftir breytni hans og eftir ávexti verka hans,
þú sem hefir gjört tákn og undur á Egiptalandi og alt fram á þennan dag, bæði á Ísrael og á öðrum mönnum, og afrekað þér mikið nafn fram á þennan dag.
Og þú fluttir þjóð þína Ísrael af Egiptalandi með táknum og undrum og með sterkri hendi og útréttum armlegg og mikilli skelfingu
og gafst þeim þetta land, er þú sórst feðrum þeirra að gefa þeim, land, sem flýtur í mjólk og hunangi.
En er þeir voru komnir inn í það og höfðu tekið það til eignar, þá hlýddu þeir ekki þinni raustu og breyttu ekki eftir lögmáli þínu, gjörðu ekki neitt af því, er þú hafðir boðið þeim að gjöra; þá lézt þú alla þessa ógæfu þeim að höndum bera.
Sjá, sóknarvirkin eru þegar komin að borginni, til að vinna hana, og borgin er fyrir sakir sverðs, hungurs og drepsóttar seld á vald Kaldea, sem á hana herja, og það, sem þú hótaðir, er fram Ra af A komið, og sjá, þú horfir á það.
Og þó sagðir þú við mig, Drottinn Guð: Kaup þér akurinn fyrir silfur og tak votta að! — þar sem þó borgin er seld á vald Kaldea.
Þá kom orð Drottins til Jeremía, svo hljóðandi:
Sjá, eg er Drottinn, Guð alls holds — er mér nokkur hlutur um megn?
Fyrir því segir Drottinn svo: Sjá, eg sel þessa borg á vald Kaldea og á vald Nebúkadrezars Babel-konungs, að hann vinni hana,
og Kaldear, sem berja á þessa borg, munu brjótast inn í hana, og leggja eld í þessa borg og brenna hana — og húsin, þar sem þeir á þökunum færðu Baal reykelsisfórnir og færðu öðrum guðum dreypifórnir, til þess að egna mig til reiði.
Því að Ísraelsmenn og Júdamenn hafa frá æsku sinni verið vanir að gjöra það eitt, sem mér mislíkaði; því að Ísraelsmenn hafa aðeins egnt mig til reiði með handaverkum sínum — segir Drottinn.
já, þessi borg hefir verið mér tilefni til reiði og gremi frá þeim degi, er hún var reist, alt fram á þennan dag, svo að eg verð að taka hana burt frá augliti mínu,
sökum allrar ilsku Ísraelsmanna og Júdamanna, er þeir hafa í frammi haft, til þess að egna mig til reiði: þeir, konungar þeirra, höfðingjar þeirra, prestar þeirra og spámenn þeirra og Júdamenn og Jerúsalembúar.
þeir sneru við mér bakinu, en ekki andlitinu, og þótt eg fræddi þá seint og snemma, þá hlýddu þeir ekki, svo að þeir tækju umvöndun.
Heldur reistu þeir viðurstygðir sínar upp í húsi því, sem kent er við nafn mitt, til þess að saurga það.
Þeir bygðn Baal fórnarhæðir í Hinnomssonardal, til þess að láta sonu sína og dætur ganga gegnum eldinn Mólok til handa, — sem eg hefi ekki boðið þeim og mér hefir ekki í hug komið, að þeir mundu fremja slíka svívirðing, til þess að tæla Júda til syndar.
Og nú — fyrir því segir Drottinn, Ísraels Guð, svo um þessa borg, er þér segið að seld sé fyrir sverð, hungur og drepsótt á vald Babelkonungs:
Sjá, eg safna þeim saman úr öllum þeim löndum, þangað sem eg hefi rekið þá í reiði minni og heift og í mikilli gremi, og læt þá snúa aftur hingað og búa hér óhulta.
Þá skulu þeir vera mín þjóð og eg skal vera þeirra Guð,
og eg vil gefa þeim eitt hjarta og eina breytni, svo að þeir óttist mig alla daga, þeim sjálfum til heilla og sonum þeirra eftir þá.
Og eg vil gjöra við þá eilífan sáttmála, að snúa aldrei frá þeim með velgjörðir mínar, og eg vil leggja ótta fyrir mér í hjörtu þeirra, til þess að þeir víki ekki frá mér.
Og það skal verða unun mín að gjöra vel við þá, og eg mun gróðursetja þá trúlega í þessu landi, af öllu hjarta og af allri sálu.
Því að svo segir Drottinn: Eins og eg hefi leitt yfir þessa þjóð alla þessa miklu óhamingju, svo leiði eg og yfir þá alla þá hamingju, sem eg heiti þeim.
Og akrar munu aftur keyptir verða í þessu landi, sem þér segið um: Það er auðn, mannlaust og skepnulaust! Það er selt á vald Kaldea!
Akra munu menn kaupa fyrir silfur og skrifa kaupbréf og innsigla og taka votta að, bæði í Benjamínslandi og í umhverfi Jerúsalem og í Júdakorgum og í fjallborgunum og í borgunum á sléttlendinu og í borgunum í suðurlandinu, því að eg mun leiða heim aftur hina herleiddu menn þeirra — segir Drottinn.