Gamla testamentiðSpámennirnir
Á þeim tíma mun eg — segir Drottinn — vera Guð fyrir allar ættkvíslir Ísraels, og þeir munu vera mín þjóð.
Svo segir Drottinn: Lýður þeirra manna, er undan sverðinu komust, fann náð í eyðimörkinni; far, til þess að útvega honum — Ísrael — hvíld!
SÚr fjarlægð birtist Drottinn mér: já, með ævarandi elsku hefi eg elskað þig; fyrir því hefi eg látið náð mína haldast við þig.
Enn vil eg endurreisa þig, svo að þú verðir endurreist, mærin Ísrael; enn munt þú skreyta þig með bumbum og ganga út í dansi fagnandi manna.
Þú munt enn planta víngarða á Samaríufjöllum; þeir, sem hafa gróðursett þá, munu og hafa nytjar þeirra.
Já, sá dagur mun koma, að varðmennirnir kalla á Efraím-fjöllum: Standið upp, förum upp til Zíon, til Drottins, Guðs vors!
Því að svo segir Drottinn: Fagnið yfir Jakob með gleði og kætist yfir öndvegisþjóð þjóðanna. Kunngjörið, vegsamið og segið: Frelsa, Drottinn, þjóð þína, leifarnar af Ísrael!
Sjá, eg flyt þá úr landinu norður frá og safna þeim saman frá útkjálkum jarðar; á meðal þeirra eru bæði blindir og lamir, bæði þungaðar og jóðsjúkar konur; í stórum hóp hverfa þeir hingað aftur.
Þeir munu koma grátandi og auðmjúklega biðjandi; eg mun fylgja þeim, leiða þá að vatnslækjum, um sléttan veg, þar sem þeir eigi geta hrasað; því að eg er orðinn Ísrael faðir, og Efraím er frumgetinn sonur minn.
Heyrið orð Drottins, þér þjóðir, og kunngjörið það á fjarlægu eyjunum og segið: Sá, sem tvístraði Ísrael, safnar honum saman og mun gæta hans, eins og hirðir gætir hjarðar sinnar.
Því að Drottinn frelsar Jakob og leysir hann undan valdi þess, sem honum var yfirsterkari;
Og þeir skulu koma og fagna á Zionhæð og streyma til gæða Drottinn,. til kornsins, vínberjalagarins, olíunnar og ungu sauðanna og nautanna, og sál þeirra skal verða eins og vökvaður aldingarður og þeir skulu — eigi framar vanmegnast.
Þá munu meyjarnar skemla sér við dans og unglingar og gamalmenni saman, og eg mun breyta sorg þeirra Í gleði og hugga þá og gleðja eftir harma þeirra.
Og eg mun endurnæra sál prestanna á feili og lýður minn mun seðja sig á gæðum mínum — segir Drottinn.
Svo segir Drottinn: Rödd heyrist í Rama, harmakvein, beiskur grátur; Rakel grætur börnin sín; hún vill ekki huggast láta vegna barna sinna, því að þau eru eigi framar lífs.
Svo segir Drottinn: Halt raust þinni frá gráti og augum þínum frá tárum, því að enn er til umbun fyrir verk þitt — segir Drottinn —: þeir skulu hverfa heim aftur úr landi óvinanna,
Já, enn er von um framtíð þína — segir Drottinn—: börnin skulu hverfa heim aftur í átthaga sína.
Að sönnu heyri eg Efraím kveina: Þú hefir hirt mig, og eg lét birtast eins og óvaninn kálfur, lát mig snúa heim, þá skal eg snúa við, því að þú ert Drottinn, Guð minn!
Því að eftir að eg hafði snúið mér frá þér, gjörðist eg iðrandi, og eftir að eg vitkaðist, slæ eg á lærið; eg blygðast mín, já, eg er sneyptur, því að eg ber skömm æsku minnar.
Er Efraím mér þá svo dýrmætur sonur eða slíkt eftirlætisbarn, að þótt eg hafi oft hótað honum, þá verð eg ávalt að minnast hans af nýju? Fyrir því kemst hjarta mitt við vegna hans, eg hlýt að miskunna mig yfir hann — segir Drottinn.
Reis þér vörður, set þér vegamerki, haf athygli á brautinni, veginum, sem þú fórst, — hvert heim, mærin Ísrael, hvert heim til þessara borga þinna!
Hversu lengi ætlar þú að reika fram og aftur, þú hin fráhverfa dóttir? Því að Drottinn skapar nýtt á jörðu: kvenmaðurinn verndar karlmanninn.
Svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð: Enn munu menn mæla þessum orðum í Júdalandi og í borgum þess, þá er eg hefi snúið við högum þeirra: Drottinn blessi þig, bústaður réttlætisins, heilaga fjall!
Og Júda og allar borgir hans munu búa þar saman, akuryrkjumenn og þeir, sem fara um með hjarðir;
því að eg drykkja hinar sárþyrstu sálir og metta sérhverja örmagna sál.
Við þetta vaknaði eg og litaðist um, og svefninn hafði verið mér þægilegur.
Sjá, þeir dagar koma — segir Drottinn — að eg sál Ísraels hús og Júda hús með mannsáði og fénaðarsáði,
og eins og eg vakti yfir þeim, til þess að uppræta og umturna, rífa niður og eyða og vinna þeim mein, þannig mun eg og vaka yfir þeim, til þess að byggja og gróðurSetja —
Á þeim dögum munu menn eigi framar segja: Feðurnir átu súr vínber og tennur barnanna urðu sljóar!
Heldur mun hver deyja fyrir eigin misgjörð; hver sá maður, er etur súr vínber, hans tennur munu sljóar verða.
Sjá, þeir dagar munu koma — segir Drottinn — að eg mun gjöra nýjan sáttmála við Ísraels hús og Júda hús,
ekki eins og þann sáttmála, er eg gjörði við feður þeirra, þá er eg tók í hönd þeirra, til þess oð leiða þá út af Egiptalandi, en þann sáttmála við mig hafa þeir rofið, þótt eg væri herra þeirra — segir Drottinn.
En í þessu skal sáttmálinn fólginn vera, sá er eg gjöri við Ísraels hús eftir þetta — segir Drottinn: Eg legg lögmál mitt þeim í brjóst og rita það á hjörtu þeirra, og eg skal vera þeirra Guð og þeir skulu vera mín þjóð.
Og þeir skulu ekki framar kenna hver öðrum, né einn bróðirinn öðrum, og segja: Lærið að þekkja Drottin! Því að þeir munu allir þekkja mig, bæði smáir og stórir — segir Drottinn —, því að eg mun fyrirgefa misgjörð þeirra og ekki framar minnast syndar þeirra!
Svo segi Drottinn, sem sett hefir sólina til að lýsa um daga, niðUrskipun tunglsins og stjarnanna til að lýsa um nætur, sá er æsir hafið, svo að bylgjurnar gnýja — Drottinn hersveitanna er nafn hans:
Svo sannarlega sem þessar reglur munu aldrei breytast fyrir mér — segir Drottinn — svo sannarlega munu Ísraels niðjar ekki hætta að vera þjóð fyrir mér alla daga.
Svo segir Drottinn: Svo sannarlega sem himininn Eið efra verður eigi mældur né undirstöður jarðarinnar bið neðra rannsakaðar, svo sannarlega mun eg ekki hafna öllum Ísraels niðjum sakir aÞs þess, er þeir hafa gjört — segir Drottinn.
Sjá, þeir dagar munu koma — segir Drottinn — að borgin verður endurreist Drottinn til banda, frá Hananeel-turni alt að Hornhliðinu,
og Enn fremur skal mælisnúran ganga beint á Gareb-hæð og beygja þaðan il Góa,
Og allur hræva- og öskudalurinn og allir vellirnir að Kídronlæk, alt austur að Hrossahliðs-horni, skulu vera helgaðir Drottinn; eigi skal þar verða uppræt framar né rifið niður að eilífu!