Gamla testamentiðSpámennirnir
Orðið, sem kom til Jeremía frá Drottni, svo hljóðandi:
Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: Skrifa þú öll þau orð, er eg hefi til þín talað, í bók.
Því sjá, þeir dagar munu koma — segir Drottinn — að eg mun snúa við hag lýðs míns, Ísraels og Júda, segir Drottinn, og láta þá hverfa aftur til þess lands, sem eg gaf feðrum þeirra, og þeir skulu taka það til eignar.
En þessi eru orðin, sem Drottinn talaði um Ísrael og Júda:
Já, svo segir Drottinn: Hræðsluóp heyrum vér, ótti er á ferðum, en engin heill!
Spyrjið um og gætið að, hvort karlmaður alt barn? Hvers Vegna sé eg þá alla menn með hendur á lendum, líkt og jóðsjúk kona væri, og hvers vegna eru öll andlit orðin nábleik?
Vei, mikill er sá dagur, hann á ekki sinn líka og angistartími er það fyrir Jakob, en — hann mun frelsast frá því.
Því að á þeim degi — segir Drottinn hersveitanna — mun eg sundurbrjóta okið af hálsi þínum og slíta af þér höndin, og útlendir menn skulu ekki lengur halda honum í þrældómi;
heldur skulu þeir þjóna Drottni, Guði sínum, og Davíð, konungi sínum, er eg mun uppvekja þeim.
En óttast þú ekki, þjónn minn Jakob — segir Drottinn — og hræðst þú ekki, Ísrael, því að eg frelsa þig úr fjarlægu landi og niðja þína úr landinu, þar sem þeir eru herleiddir, til þess að Jakob hverfi heim aftur og njóti hvíldar og búi óhultur, án þess nokkur hræði hann.
Því að eg er með þér — segir Drottinn — til þess að frelsa þig. Því að eg vil gjöreyða öllum þeim þjóðum, sem eg hefi tvístrað þér á meðal; þér einni vil eg ekki gjöreyða; heldur vil eg birta þig í hófi; en eg vil ekki láta þér með öllu óhegnt.
Já, svo segir Drottinn: Áverki þinn er illkynjaður, sár þitt ólæknandi.
Enginn tekur að sér málefni þitt, — við meininu er engin lækning, enginn plástur til handa þér.
Allir ástmenn þínir hafa gleymt Þpr, þeir spyrja ekki eftir þér, af því að eg hefi loslið þig, eins og óvinur lýstur, með grimmilegri hirting, sakir fjölda misgjörða þinna, sakir þess að syndir þínar eru margar.
Hví æpir þú af áverka þínum, af þinni ólæknandi kvöl? Sakir fjölda misgjörða þinna; sakir í þess að syndir þínar eru margar, hefi eg gjört þér þetta.
Fyrir því Skulu allir þeir, sem þig eta, etnir verða, og allir þeir, sem þér þröngva, herleiddir verða; og þeir, sem rupla þig, skulu verða öðrum að herfangi, og alla þá, sem þig ræna, mun eg framselja til ráns.
Því að eg skal Júla koma hyldgan á sár þín og lækna þig af áverkum þínum — segir Drottinn — af því að þeir kalla þig hina brottreknu«, zion, sem enginn sPyr eftir.
Svo segir Drottinn: Sjá, eg sný við högum Jakobs tjalda og miskunna mig yfir bústaði hans, til þess að borgin verði aftur reist á hæð sinni og aftur verði búið í höllinni á hennar vanastað.
Og Þaðan skal hljóma þakkargjörð og gleðihljóð, og eg læt þá fjölga og €lgi fækka, og eg gjöri þá vegsamlega, svo að þeir séu ekki lengur litílsvirtir.
Og synir hans skulu vera mér sem áður, og söfnuður hans skal vera grundvallaður frammi fyrir mér, en allra kúgara hans mun eg vitja.
Og yfirbjóðandi hans mun frá honum koma og drotnari hans fram ganga úr flokki hans. Og eg mun láta hann nálgast mig, svo að hann komi til mín, — því að hver skyldi hætta lífi sínu í það að koma til mín? —
Og þá munuð þér vera mín þjóð, og eg mun vera yðar Guð.
Sjá, stormur Drottins brýzt fram — reiði — hvirfilhylur, hann steypist yfir höfuð hinna óguðlegu.
Hinni brennandi reiði Drottins linnir ekki, fyr en hann hefir framkvæmt fyrirætlanir hjarta síns og komið þeim til vegar. Síðar meir munuð þér sannfærast um það.