Gamla testamentiðSpámennirnir
Og þessi eru orð bréfsins, sem Jeremía spámaður sendi frá Jerúsalem til öldunga hinna herleiddu og til prestanna og til spámannanna og til alls lýðsins, sem Nebúkadnezar hafði herleitt frá Jerúsalem til Babel,
eftir að Jekonja konungur og konungsmóðir og hirðmennirnir, höfðingjar Júda og Jerúsalem, og trésmiðirnir og járnsmiðirnir voru farnir burt úr Jerúsalem,
með Elasa Safanssyni og Gemaría Hilkíasyni, sem Zedekía Júdakonungur sendi til Nebúkadnezars Babel-konungs til Babel:
Svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð, öllum hinum herleiddu, þeim er eg herleiddi frá Jerúsalem til Babel:
Reisið hús og búið í þeim, plantið garða og etið ávöxtu þeirra.
Takið yður konur og getið sonu og dætur, og takið sonum yðar konur og giftið dætur yðar, til þess að þær megi fæða sonu og dætur og þér fjölgið þar, en fækkið ekki.
Látið yður umhugað um heill borgarinnar, sem eg herleiddi yður til, og biðjið til Drottins fyrir henni; því að heill hennar er heill sjálfra yðar.
Því að svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð: Látið eigi spámenn yðar, sem meðal yðar eru, né spásagnamenn yðar tæla yður, og trúið ekki á drauma yðar, sem yður dreymir.
Því að þeir spá yður ranglega í mínu nafni; eg hefi ekki sent þá! — segir Drottinn.
Því að svo segir Drottinn: Þegar sjötíu ár eru umliðin fyrir Babel, mun eg vitja yðar og efna við yður fyrirheit mitt, að flytja yður aftur á þennan stað.
Því að eg þekki þær fyrirætlanir, sem eg hefi í hyggju með yður — segir Drottinn —, fyrirætlanir til heilla, en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð.
Þá munuð þér ákalla mig og fara og biðja til mín, og eg mun bænheyra yður.
Og þér munuð leita mín og finna mig. Þegar þér leitið mín af öllu hjarta,
vil eg láta yður finna mig — segir Drottinn — og snúa við högum yðar og safna yður saman frá öllum þjóðum og úr öllum þeim stöðum, þangað sem eg hefi rekið yður — segir Drottinn — og flytja yður aftur á þann stað, þaðan sem eg herleiddi yður.
En þegar þér segið: Drottinn hefir vakið oss upp spámenn í Babel!
Því að svo segir Drottinn um konunginn, sem situr í hásæti Davíðs og um allan lýðinn, sem býr í þessari borg, bræður yðar, sem ekki voru herleiddir með yður, —
svo segir Drottinn hersveitanna: Sjá, eg sendi yfir þá sverð, hungur og drepsótt og gjöri þá eins og viðbjóðslegar fíkjur, sem eru svo vondar, að þær eru ekki ætar,
og eg elti þá með sverði, hungri og drepsótt og gjöri þá að grýlu öllum konungsríkjum jarðar, að formæling, að skelfing, að spotti og háðung meðal allra þjóða, þangað sem eg rek þá,
fyrir það að þeir hlýddu ekki orðum mínum — segir Drottinn — er eg hefi óaflátanlega sent þjóna mína, spámennina, með til þeirra, en þér heyrðuð ekki, — segir Drottinn.
En heyrið þér orð Drottins, allir þér hinir herleiddu, er eg hefi sent frá Jerúsalem til Babel.
Svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð, um Ahab Kólajason og um Zedekía Maasejason, sem boða yður lygar í mínu nafni: Sjá, eg get þá Nebúkadrezar Babel-konungi á vald og hann mun láta drepa þá fyrir augum yðar.
Og þeir munu verða bölbænar-formáli fyrir alla hina herleiddu úr Júda, sem eru í Babel, svo að menn kveði svo að orði: »Drottinn fari með þig eins og Zedekía og Ahab, sem Babel-konungur steikti á eldi«.
Sökum þess að þeir frömdu óhæfuverk í Ísrael og drýgðu hór með konum vina sinna og töluðu orð í mínu nafni, er eg hafði þeim eigi um boðið, já eg þekki það sjálfur og er vottur að því! — segir Drottinn.
En við Semaja frá Nehalam skalt þú segja á þessa leið:
Svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð: Sökum þess að þú hefir sent bréf í þínu eigin nafni til alls lýðsins, sem er í Jerúsalem, og til Zefanía Maasejasonar prests og til allra prestanna, þess efnis:
Drottinn hefir sett þig prest í stað Jójada prests, til þess að þú hafir nákvæmar gætur í musteri Drottins á öllum óðum mönnum og þeim, er spámannsæði er á, og setjir þá í stokk og hálsjárn!
Hví hefir þú þá ekki ávitað Jeremía frá Anatót, sem spáir yður?
Því að þess vegna hefir hann gjört oss svolátandi orðsending til Babel: Það verður langvint! Reisið hús og búið í þeim og plantið garða og etið ávöxtu þeirra.
En Zefanía prestur las þetta bréf upphátt fyrir Jeremía spámanni.
Þá kom orð Drottins til Jeremía, svo hljóðandi:
Gjör öllum hinum herleiddu svo hljóðandi orðsending: Svo segir Drottinn um Semaja frá Nehalam: Sökum þess að Semaja hefir spáð yður án þess að eg hafi sent hann og gint yður til þess að reiða yður á lygar,
fyrir því segir Drottinn svo: Sjá, eg mun hefna þess á Semaja frá Nehalam og niðjum hans; hann skal ekki eiga neinn niðja, sem búi meðal þessarar þjóðar, og hann skal ekki fá litið þau gæði, sem eg bý þjóð minni — segir Drottinn —, því að hann hefir prédikað fráhvarf frá Drottni.