Jeremíabók 28Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jeremíabók 28

En þetta ár — í upphafi ríkisstjórnar Zedekía Júdakonungs, fjórða árið, í fimta mánuðinum — sagði Hananja spámaður Assúrsson frá Gíbeon við mig í musteri Drottins í viðurvist prestanna og alls lýðsins:

Svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð: Eg brýt sundur ok Babel-konungs!

Áður en tvö ár eru liðin, flyt eg aftur á þennan stað öll áhöldin úr musteri Drottins, þau er Nebúkadnezar Babel-konungur tók á þessum stað og flutti til Babel.

Jekonja Jójakímsson, Júdakonung, og alla hina herleiddu úr Júda, þá er komnir eru til Babel, flyt eg og aftur á þennan stað — segir Drottinn — því að eg brýt sundur ok Babel-konungs!

Þá talaði Jeremía spámaður til Hananja spámanns í viðurvist prestanna og alls lýðsins, sem stóð í musteri Drottins,

og Jeremía spámaður mælti: Verði svo! Drottinn gjöri það! Drottinn láti orð þín, er þú hefir spáð, rætast, svo að hann flytji aftur frá Babel á þennan stað áhöldin úr musteri Drottins og alla hina herleiddu!

En heyr þessi orð, sem eg kunngjöri þér og öllum lýðnum:

Þeir spámenn, sem komið hafa fram á undan mér og á undan þér frá aldaöðli, þeir spáðu voldugum löndum og stórum konungsríkjum ófriði, óhamingju og drepsótt;

en sá spámaður, sem spáir heill, — ef orð spámannsins rætast, þá þekkist á því sá spámaður, er Drottinn hefir sannarlega sent.

Þá tók Hananja spámaður okið af hálsi Jeremía spámanns og braut það sundur;

síðan mælti Hananja í viðurvist alls lýðsins á þessa leið: Svo segir Drottinn: Eins skal eg sundurbrjóta ok Nebúkadnezars Babel-konungs áður tvö ár eru liðin af hálsi allra þjóða! En Jeremía spámaður fór leiðar sinnar.

En orð Drottins kom til Jeremía, eftir að Hananja spámaður hafði sundurbrotið okið af hálsi Jeremia spámanns, svo hljóðandi:

Far og seg við Hananja: Svo segir Drottinn: Tré-ok hefir þú sundurbrotið, en eg vil í þess stað gjöra járn-ok!

Því að svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð: Járnok legg eg á háls allra þessara þjóða, til þess að þær verði þegnskyldar Nebúkadnezar Babel-konungi og þjóni honum; já, jafnvel dýr merkurinnar gef eg honum.

Þá sagði Jeremía spámaður við Hananja spámann: Heyr þú, Hananja! Drottinn hefir ekki sent þig, og þó hefir þú gint lýð þennan til að reiða sig á lygar!

Fyrir því segir Drottinn svo: Sjá, eg kippi þér burt af jörðinni; á þessu ári skalt þú deyja, því að þú hefir prédikað fráhvarf frá Drottni.

Og Hananja spámaður dó þetta ár, í sjöunda mánuðinum.