Jeremíabók 27Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jeremíabók 27

Í upphafi ríkisstjórnar Zedekía Jósíasonar, Júdakonungs, kom þetta orð til Jeremía frá Drottni:

Svo sagði Drottinn við mig: Gjör þér bönd og ok og legg um háls þér

og gjör konunginum í Edóm og konunginum í Móab og konungi Ammóníta og konunginum í Týrus og konunginum í Zídon orðsending með sendimönnunum, sem komnir eru til Jerúsalem til Zedekía Júdakonungs,

og bjóð þeim að mæla svo til herra sinna: Svo sagði Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð: Svo skuluð þér segja við herra yðar:

Eg hefi gjört jörðina og mennina og skepnurnar, sem á jörðinni eru, með mínum mikla mætti og útrétta armlegg og eg gef þetta þeim, er mér þóknast.

Og nú gef eg öll þessi lönd á vald Nebúkadnezars Babel-konungs, þjóns míns; jafnvel dýr merkurinnar gef eg honum, til þess að þau þjóni honum.

Og allar þjóðir skulu þjóna honum og syni hans og sonarsyni hans, þar til er einnig tími hans lands kemur og voldugar þjóðir og miklir konungar gjöra hann að þræl sínum.

Og sú þjóð og það konungsríki, sem ekki vill þjóna honum, Nebúkadnezar Babel-konungi, og ekki beygja háls sinn undir ok Babel-konungs — þeirrar þjóðar mun eg vitja með sverði, hungri og drepsótt, segir Drottinn, unz eg hefi gjöreytt þeim fyrir hans hendi.

Og hlýðið ekki á spámenn yðar né spásagnamenn, né drauma yðar, né á galdramenn yðar né töframenn, þá er þeir mæla til yðar á þessa leið: Þér munuð ekki þjóna Babel-konungi.

Því að þeir boða yður lygar, til þess að flæma yður úr landi yðar, svo að eg reki yður burt og þér farist.

En þá þjóð, sem beygir háls sinn undir ok Babel-konungs og þjónar honum, hana vil eg láta vera kyrra í landi sínu — segir Drottinn — til þess að hún yrki það og byggi.

Og við Zedekía Júdakonung talaði eg öldungis á sama hátt: Sveigið háls yðar undir ok Babel-konungs og þjónið honum og þjóð hans, þá munuð þér lífi halda.

Hví viljið þér, þú og þjóð þín, deyja fyrir sverði, af hungri og drepsótt, eins og Drottinn hefir hótað þeim þjóðum, er eigi vilja þjóna Babel-konungi?

Hlýðið eigi á orð spámannanna, er segja við yður: »Þér munuð eigi þjóna Babel-konungi!« Því að þeir boða yður lygar.

Því að eg hefi ekki sent þá — segir Drottinn —, heldur spá þeir ranglega í mínu nafni, til þess að eg reki yður burt og þér farist, ásamt spámönnunum, er yður hafa spáð.

Við prestana og allan þennan lýð hefi eg og talað á þessa leið: Svo segir Drottinn: Hlýðið eigi á orð spámanna yðar, er spá yður og segja: »Sjá, áhöldin úr musteri Drottins munu bráðlega verða flutt heim aftur frá Babel!« — því að þeir boða yður lygar.

Hlýðið eigi á þá, þjónið heldur Babel-konungi, þá munuð þér lífi halda! Hví á þessi borg að verða að rúst?

En séu þeir spámenn og sé orð Drottins hjá þeim, þá biðja þeir Drottinn hersveitanna að áhöld þau, sem enn eru eftir í musteri Drottins og í höll Júdakonungs og í Jerúsalem, fari eigi líka til Babel.

Því að svo segir Drottinn hersveitanna um súlurnar, um hafið og um undirstöðupallana og um hin önnur áhöld, sem eftir eru í þessari borg,

þau er Nebúkadnezar Babel-konungur ekki tók, þá er hann herleiddi Jekonja Jójakímsson, Júdakonung, frá Jerúsalem til Babel, ásamt öllum tignarmönnum Júda og Jerúsalem;

já, svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð, um áhöldin, sem eftir eru í musteri Drottins og höll Júdakonungs og í Jerúsalem:

Til Babel skulu þau flutt verða og þar skulu þau vera, alt til þess dags, er eg vitja þeirra — segir Drottinn — og sæki þau og flyt þau aftur á þennan stað.