Gamla testamentiðSpámennirnir
Ó Og orð Drottins kom til Jeremía annað sinn, þá er hann enn var innilokaður í varðgarðinum, svo hljóðandi:
Svo segir Drottinn, sá er framkvæmir það, Drottinn, sá er upphugsar það, til þess að koma því til vegar — Drottinn er nafn hans —:
Kalla þú á mig og mun eg svara þér og kunngjöra þér mikla hluti og óskiljanlega, er þú hefir eigi þekt.
Já, svo segir Drottinn, Ísraels Guð, um hús þessarar borgar og um hallir Júdakonunga, sem rifin voru niður vegna hervirkjanna og sverðsins.
Það koma einhverjir, til þess að berjast með Kaldeum og til þess að fylla húsin líkum þeirra manna, er eg hefi lostið í reiði minni og heift og byrgt auglit mitt fyrir þessari borg sakir allrar ilsku þeirra.
Sjá, eg legg við hana umbúðir og græðslulyf og lækna þá og opna þeim gnægð stöðugrar hamingju,
og eg leiði heim aftur hina herleiddu frá Júda og hina herleiddu frá Ísrael og byggi þá upp aftur eins og áður.
Og eg hreinsa þá af allri misgjörð þeirra, er þeir hafa drýgt í móti mér, og fyrirgef þeim allar misgjörðir þeirra, er þeir hafa drýgt í móti mér og með hverjum þeir hafa brotið gegn mér,
til þess að borgin verði mér til frægðar, til ununar, til lofs og dýrðar hjá öllum þjóðum jarðarinnar, sem spyrja munu öll þau gæði, er eg veiti þeim, og skelfast munu og titra vegna allra þeirra gæða og allrar þeirrar hamingju, sem eg veiti henni.
Svo segir Drottinn: Enn skal heyrast á þessum stað, er þér segið um: Hann er eyddur, mannlaus og skepnulaus! í Júdaborgum og á Jerúsalem-strætum, sem nú eru gjöreydd, mannlaus, íbúalaus og skepnulaus,
ánægjuhljóð og gleðihljóð, fagnaðarlæti brúðguma og brúðar, fagnaðarlæti þeirra, er segja: »Þakkið Drottni hersveitanna, því að Drottinn er góður, því að miskunn hans varir að eilífu!« þeirra er færa þakkarfórn í musteri Drottins; því að eg mun leiða hið herleidda fólk landsins heim aftur, til þess að þeir séu eins og áður, segir Drottinn.
Svo segir Drottinn hersveitanna: Enn skal á þessum stað, sem nú er eyddur, bæði mannlaus og skepnulaus, og í öllum borgum hans vera haglendi fyrir hjarðmenn, sem bæla þar hjarðir sínar;
í fjallborgunum, í borgunum á sléttlendinu og í borgunum í suðurlandinu og í Benjamínslandi og í umhverfi Jerúsalem og í Júdaborgum munu enn sauðir renna fram hjá þeim, sem telur þá, segir Drottinn.
Sjá, þeir dagar munu koma, segir Drottinn, að eg mun láta rætast fyrirheit það, er eg hefi talað um Ísraels hús og Júda hús;
á þeim dögum og á þeim tíma mun eg Davíð láta upp vaxa réttan kvist og hann skal iðka rétt og réttlæti í landinu.
Á þeim dögum mun Júda hólpinn verða og Jerúsalem búa óhult, og þetta mun verða nafnið, er menn nefna hana: »Drottinn er vort réttlæti«.
Því að svo segir Drottinn: Davíð skal aldrei vanta eftirmann, sem sitji í hásæti Ísraels húss.
Og Levíta-prestana skal aldrei vanta eftirmann frammi fyrir mér, er framberi brennifórnir, brenni matfórnum og fórni sláturfórnum alla daga.
Og orð Drottins kom til Jeremía, svo hljóðandi:
svo segir Drottinn: Svo sannarlega sem þér getið ekki rofið sáttmála minn við daginn og sáttmála minn við nóttina, svo að dagur og nótt komi ekki á sínum tíma,
svo sannarlega mun sáttmáli minn við Davíð þjón minn eigi rofinn verða, svo að hann hafi ekki niðja, er ríki í hásæti hans, og við presta-levítana, þjóna mína.
Eins og himinsins her verður ekki talinn og sjávarsandurinn ekki mældur, — svo vil eg margfalda niðja Davíðs þjóns míns og Levítana, er mér þjóna.
Og orð Drottins kom til Jeremía, svo hljóðandi:
Hefir þú ekki tekið eftir, hvað þessi lýður talar, er hann segir: Báðum ættkvíslunum, sem Drottinn útvaldi, hefir hann hafnað! og að þeir segja fyrirlitlega um lýð minn, að hann sé ekki þjóð framar í þeirra augum?
Svo segir Drottinn: Hafi eg ekki gjört sáttmála við dag og nótt og sett himni að og jörðu föst lög,
þá mun eg einnig hafna niðjum Jakobs og Davíðs þjóns míns, svo að eg taki ekki framar af hans niðjum drotnara yfir niðja Abrahams, Ísaks og Jakobs; því að eg mun snúa við högum þeirra og miskunna þeim.