Jeremíabók 14Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jeremíabók 14

Orð Drottins, sem kom til Jeremía út af þurkunum.

Júda drúpir og þeir, sem sitja í borgarhliðum landsins, örmagnast; þeir sitja harmandi á jörðinni, og harmakvein Jerúsalem stígur upp.

Tignarmenni þeirra senda undirmenn sína eftir vatni; þeir. koma að vatnsþrónum, en finna ekkert vatn; þeir snúa aftur með tóm ílátin; þeir eru sneyptir og blygðast sín og hylja höfuð sín.

Vegna akurlendisins, sem er agndofa af skelfingu, af því að ekkert regn fellur í landinu, eru akurmennirnir sneypulegir og hylja höfuð sín.

Já, jafnvel hindin í haganum ber og yfirgefur kálfinn, því að gróður er enginn;

og villiasnarnir standa á skóglausu hæðunum og taka öndina á lofti, eins og sjakalarnir; augu þeirra daprast, því að engar jurtir eru til.

Þegar misgjörðir vorar vitna í gegn oss, Drottinn, þá lát til þín taka vegna nafns þíns; því að fráhvarfssyndir vorar eru margar, gegn þér höfum vér syndgað.

Ó Ísraels von, hjálpari hans á neyðartíma, hví ert þú sem útlendingur í landinu og sem ferðamaður, er tjaldar il einnar nætur?

Hví ert þú eins og skelkaður maður, eins og hetja, sem ekki megnar að hjálpa? Og þó ert þú mitt á meðal vor, Drottinn, og vér erum nefndir eftir nafni þínu; yfirgef oss eigi!

Svo segir Drottinn um þennan lýð: Þannig var þeim Ijuft að reika um, þeir öftruðu ekki fótum sínum, — en Drottinn hafði enga þóknun á þeim; nú minnist hann misgjörðar þeirra og vitjar synda þeirra.

Og Drottinn sagði við mig: Þú skalt eigi biðja þessum lýð góðs.

Þegar þeir fasta, þá hlýði eg eigi á grátbeiðni þeirra, og þegar þeir bera fram brennifórn og matfórn, þá hefi eg eigi þóknun á þeim, heldur vil eg gjöreyða þeim með sverði, hungri og drepsótt.

Þá sagði eg: Æ, Drottinn Guð, sjá, spámennirnir segja við þá: Þér munuð ekki sjá sverð, og hungri munuð þér ekki verða fyrir, heldur mun eg láta yður hljóta stöðuga heill á þessum stað!

En Drottinn sagði við mig: Spámennirnir boða lygar í mínu nafni; eg hefi ekki sent þá og eg hefi ekki skipað þeim og eg hefi ekki við þá talað; þeir boða yður lognar sýnir, fánýtar spár og tál, sem þeir sjálfir hafa spunnið upp.

Fyrir því segir Drottinn svo — um spámennina, sem spá í mínu nafni og segja, þótt eg hafi ekki sent þá: Hvorki mun sverð né hungur ganga yfir þetta land! — fyrir sverði og hungri skulu þeir farast, þessir spámenn.

En lýðurinn, sem þeir boða spár sínar, skal liggja dauður á Jerúsalem-strætum af hungri og fyrir sverði, og enginn jarða þá, — þeir sjálfir, konur þeirra, synir þeirra og dætur þeirra — og eg vil úthella vonzku þeirra yfir þá.

En þú skalt tala til þeirra þessi orð: Augu mín skulu fljóta í tárum nótt og dag, og tárin eigi stöðvast, því að mærin, dóttir þjóðar minnar, hefir orðið fyrir ógurlegu áfalli, hefir særð verið al-ólæknandi sári.

Gangi eg út á völlinn, þá liggja þar þeir, er fallið hafa fyrir sverði, og gangi eg inn í borgina, þá sé eg þar menn dána úr hungri. Já, spámenn og prestar fara til lands, sem þeir þekkja ekki.

Hefir þú þá hafnað Júda algjörlega, eða ert þú orðinn leiður á Zíon? Hví hefir þú lostið oss svo, að vér verðum eigi læknaðir? Menn vænta hamingju, en ekkert gott kemur, — vænta lækningartíma, og sjá: skelfing!

Vér þekkjum, Drottinn, yfirsjón vora, misgjörð feðra vorra, að vér höfum syndgað gegn þér.

Fyrirlít eigi, vegna nafns þíns, — óvirð eigi hásæti dýrðar þinnar, minstu sáttmála þíns við oss og rjúf hann eigi.

Eru nokkurir regngjafar meðal hinna fánýtu guða heiðingjanna, eða úthellir himininn skúrum sjálfkrafa? Ert það ekki þú, Drottinn, Guð vor, svo að vér verðum að vona á þig? Því að þú hefir gjört alt þetta.