Jeremíabók 13Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jeremíabók 13

Svo mælti Drottinn við mig: Far og kaup þér línbelli og legg það um lendar þér, en lát það ekki koma í vatn.

Og eg keypti beltið eftir orði Drottins og lagði um lendar mér.

Og orð Drottins kom til mín annað sinn, svo hljóðandi:

Tak beltið, sem þú keyptir og um lendar þínar er, og legg af stað og far austur að Evfrat og fel það þar í berg- skoru.

Og eg fór og fat það hjá Evfrat, eins og Drottinn hafði boðið mér.

SEn er all-langur tími var um liðinn, sagði Drottinn við mig: Legg af stað og far austur að Evfrat og tak þar beltið, sem eg bauð þér að fela þar.

Og eg fór austur að Evfrat, gróf og tók beltið á þeim stað, sem eg hafði falið það; en sjá, beltið var orðið skemt, til einskis nýtt framar.

Og orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi:

svo segir Drottinn: Þannig vil eg skemma hroka Júda og hroka Jerúsalem, þann hinn mikla,

Þessir vondu menn, sem ekki vilja hlýða orðum mínum, sem fara eftir þverúð hjarta síns og elta aðra guði, til þess að þjóna þeim og falla fram fyrir þeim — þeir skulu verða eins og þetta belti, sem til einskis er nýtt framar.

Því að eins og beltið fellir sig að lendum manns, eins hafði eg látið alt Ísraels hús og alt Júda hús fella sig að mér — segir Drottinn — til þess að það skyldi vera minn lýður og mér til frægðar, lofstírs og prýði, en þeir hlýddu ekki.

Mæl því til þeirra þetta orð: Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: Sérhver krukka verður fylt víni! En segi þeir þá við þig: Vitum vér þá ekki, að sérhver krukka verður fylt víni?

þá seg við þá: Svo segir Drottinn: Sjá, eg fylli alla íbúa þessa lands og konungana, sem sitja í hásæti Davíðs, og prestana og spámennina og alla Jerúsalembúa, svo að þeir verði druknir,

og mola þá sundur hvern við annan, feður og sonu alla saman — segir Drottinn —; eg tortími þeim hlífðarlaust, án nokkurrar vægðar og miskunnar.

Heyrið og takið eftir! Verið ekki dramblátir, því að Drottinn hefir talað!

Gefið Drottni, Guði yðar, dýrðina, áður en dimmir, áður en fætur yðar steyta á rökkurfjöllum; þá munuð þér vænta ljóss, en hann mun breyta því í niðdimmu og gjöra það að svartamyrkri.

En ef þér hlýðið því ekki, þá mun eg í leyni gráta vegna hrokans og sífett tárast, já augu mín munu fljóta í tárum, af því að hjörð Drottins verður Ílutt burt hertekin.

seg við konung og við konungsmóður: Setjist lágt, því að fallin er af höfðum yðar dýrlega kórónan!

Borgir suðurmndsins eru lokaðar, og enginn opnar; Júdalýður verður burt fluttur vitur saman, burt fluttur með tölu.

Hef upp augu þín og sjá, þeir botna að norðan! Hvar er hjörðin, sem þér var fengin, þínir ágætu sauðir?

Hvað munt þú segja, þegar hann setur vini þína höfðingja yfir þig — þú hefir sjálf kent þeim að vera á móti þér —? Munu ekki hviður að þér koma, eins og að jóðsjúkri konu?

Og ef þú þá segir í hjarta þínu: Hví ber mér slíkt að höndum? — sakir þinnar miklu misgjörðar er klæðafaldi þínum upp flett, hælar þínir með valdi berir gjörðir.

Getur blámaður breytt hörundslit sínum eða pardusdýrið flekkjum sínum? Þá munduð þér og megna að breyta vel, þér sem vanist hafið að gjöra út.

Eg vil því tvístra þeim eins og hálmleggjum, sem berast fyrir eyðimerkurvindi.

Þetta er hlutur þinn, afmældur skamtur þinn frá minni hendi — segir Drottinn —, af því að þú hefir gleymt mér og treystir á lygi.

Fyrir því kippi eg og klæðafaldi þínum upp að framan, svo að blygðan þín verði ber.

Hórdóm þinn og losla-hví, hið svívirðilega fúllífi þitt — á hæðunum uti á víðavangi hefi eg séð viðurstygðir þínar. Vei þér, Jerúsalem, þú munt ekki hrein verða — hve langt mun enn þangað til?