Jeremíabók 12Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jeremíabók 12

Þú ert, Drottinn, réttlátari en svo að eg megi þrátta við þig. Þó verð eg að deila á þig. Hví lánast athæfi hinna óguðlegu, hví eru allir þeir óhultir, er sviksamlega breyta?

Þú gróðursetur þá, og þeir festa rætur, dafna og bera ávöxt. Þeir hafa þig ávalt á vörunum, en hjarta þeirra er langt frá þér.

En þú, Drottinn, þekkir mig, sér mig og þú hefir reynt hugarþel mitt til þín. Skil þá úr, eins og sauði til slátrunar, og helgaðu þá drápsdeginum.

Hversu lengi á landið að syrgja og jurtir vallarins alstaðar að skrælna? Sakir ilsku þeirra, er í því búa, farast skepnur og fuglar, þar eð þeir segja: hann sér eigi afdrif vor.

Ef þú mæðist af því að hlaupa með fótgangandi mönnum, hvernig ætlar þú þá að þreyta kapphlaup við hesta? og ef þú ert aðeins Öruggur í friðuðu landi, hvernig ætlar þú þá að fara að í kjarrinu á Jórdanbökkum?

Því að jafnvel bræður þínir og skyldulið föður þíns — einnig þeir eru þér ótrúir, einnig þeir hafa kallað fullum rómi á eftir þér; treystu þeim ekki, þótt þeir tali vinsamlega til þín.

Yfirgefið hefi eg hús mitt, hafnað eign minni; eg hefi gefið það, sem sál minni var kærast, óvinum hennar á vald.

Eign mín varð mér eins og ljón í skógi; hún öskraði í móti mér; fyrir því hata eg hana.

Er eign mín orðin mér eins og marglitur ránfugl? Ránfuglar sækja að henni öllumegin. Komið, safnið saman öllum dýrum merkurinnar, komið með þau til að eta.

Margir hirðar hafa eytt vingarð minn, fótum troðið óðal mitt, hafa gjört hið unaðslega óðal mitt að eyðilegri hefði.

Menn hafa gjört það að auðn; í eyði drúpir það fyrir mér; alt landið er í eyði lagt, af því að enginn leggur það á hjarta.

Eyðandi ræningjar hafa steypt sér yfir allar skóglausar hæðir í eyðimörkinni; því að Drottinn á sverð, sem eyðir landið af enda og á; ekkert hold er óhult.

Þeir sáðu hveiti, en uppskáru þyrna; þeir þreyttu sig, en varð ekki gagn að. Verðið því til skammar fyrir afrakstur yðar, vegna hinnar brennandi reiði Drottins.

Svo segir Drottinn um alla hina vondu nágranna mína, þá er áreitt hafa eignina, er eg gaf lýð mínum Ísrael. Sjá, eg slít þá upp úr landi þeirra, og Júda hús vil eg upp slita, svo að það sé eigi meðal þeirra.

En eftir að eg hefi slitið þá upp, mun eg aftur miskunna mig yfir þá og flytja þá heim aftur, hvern til síns óðals og hvern til síns lands.

Og ef þeir þá læra siðu þjóðar minnar, svo að þeir sverja við mitt nafn: Svo sannarlega sem Drottinn lifir! eins og þeir hafa kent þjóð minni að sverja við Baal, — þá skulu þeir þrífast meðal þjóðar minnar;

en ef þeir heyra ekki, þá slít eg þá þjóð upp og tortími henni — segir Drottinn.