Jeremíabók 11Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Jeremíabók 11

Orðið, sem kom til Jeremía frá Drottni, svo hljóðandi:

Heyrið orð þessa sáttmála og tala þau til Júdamanna og Jerúsalembúa,

og seg við þá: Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: Bölvaður sé sá maður, sem ekki hlýðir á orð þessa sáttmála,

þann er eg bauð feðrum yðar að halda, þá er eg leiddi þá burt af Egiptalandi, út úr járnbræðsluofninum, segjandi: Hlýðið skipunum mínum og hreytið eftir þeim, með öllu svo sem eg býð yður; þá skuluð þér vera mín þjóð og eg skal vera yðar Guð! —

til þess að eg fái haldið þann eið, er eg sór feðrum yðar, að gefa þeim land, sem flýtur í mjólk og hunangi, landið, sem þér eigið enn í dag. Og eg svaraði og sagði: Veri það svo, Drottinn!

á sagði Drottinn við mig: Boða þú öll þessi orð í Júdaborgum og á Jerúsalem-strætum og seg: Hlýðið á orð þessa sáttmála og breytið eftir þeim.

Því að alvarlega hefi eg varað feður yðar við, Þegar eg leiddi þá út af Egiptalandi og alt fram á þennan dag, iðulega og alvarlega, og sagt: Hlýðið skipun minni!

En þeir hlýddu ekki og lögðu ekki við eyrun, heldur fóru hver og einn eftir þverúð síns vonda hjarta, og fyrir því lét eg fram á þeim koma öll orð þessa sáttmála, er eg hafði boðið þeim að halda, en þeir héldu ekki.

Þá sagði Drottinn við mig: Það er samsæri milli Júdamanna og Jerúsalembúa;

þeir eru horfnir aftur til misgjörða forfeðra sinna, sem eigi vildu hlýða orðum mínum, — og þeir elta aðra guði, til þess að þjóna þeim; Ísraels hús og Júda hís hafa rofið minn sáttmála, þann er eg gjörði við feður þeirra.

Fyrir því segir Drottinn svo: Sjá, eg leiði yfir þá ógæfu, er þeir ekki skulu fá undan komist, og er þeir þá hrópa til mín, mun eg ekki heyra þá.

En fari Júdaborgir og - Jerúsalembúar og hrópi til þeirra guða, er þeir færa reykelsisfórnir, þá munu þeir vissulega heldur ekki hjálpa þeim á ógæfutíma þeirra.

Því að guðir þínir, Júda, eru orðnir eins margir og borgir þínar, og þér hafið reist eins mörg ölturu, til þess að fórna Baal á reykelsisfórnum, eins og stræti eru í Jerúsalem.

En þú skalt ekki biðja fyrir Þessum lýð og ekki hefja þeirra vegna grátbeiðni né fyrirbón, því að eg mun alls eigi heyra, þegar þeir kalla til mín á ógæfutíma þeirra.

Hvert erindi á mín ástkæra í hús mitt? — að framkvæma hana, fyrirætlanina? Munu bænahróp og heilagt fórnarkjöt nema ilsku þína burt frá þér, svo að þú síðan megir fagna?

G Fagurgrænt olíutré, prýtt dýrlegum ávöxtum, nefndi Drottinn þig; í hvínandi ofviðri kveikir hann eld kring um það, og greinar þess brotna.

Drottinn hersveitanna, sem gróðursetti þig, hefir hótað þér illu, vegna ilsku Ísraels húss og Júda húss, er þeir frömdu, til þess að egna mig til reiði, þá er þeir færðu Baal reykelsisfórnir.

En Drottinn hefir gjört mér það kunnugt og eg hefi fengið að vita það; þá lézt þú mig sjá gjörðir þeirra.

Eg var sjálfur eins og vanið lamb, sem leitt er til slátrunar, og vissi ekki, að þeir voru að brugga ráð gegn mér: »Vér skulum eyða tréð í blóma þess og uppræta hann af landi lfenda, svo að nafns hans verði ekki minst framar!

En, Drottinn hersveitanna, þú er réttlátlega dæmir og rannsakar nýrun og hjartað, lát mig sjá hefnd þína á þeim, því að þér fel eg málefni mitt!

Fyrir því segir Drottinn svo um Anatótmenn, þá er sitja um líf þitt og segja: Þú skalt ekki spá í nafni Drottins, ella skalt þú deyja fyrir hendi vorri.

Fyrir því mælir Drottinn hersveitanna svo: Sjá, eg mun refsa þeim; æskumennirnir skulu falla fyrir sverði, synir þeirra og dætur skulu deyja af hungri.

Og leifar munu þeim engar eftir verða, því að eg leiði óhamingju yfir Anatótmenn árið sem þeim verður refsað.