Jakobsbréfið 3Krans-útgáfa

Jakobsbréfið 3

Gjörist eigi, bræður mínir, margir kennarar, með því að þér vitið, að vér munum fá þyngri dóm;

því að allir hrösum vér í mörgu. Hrasi einhver ekki í orði, þá er hann maður fullkominn, fær um að hafa stjórn jafnvel á öllum líkama sínum.

Ef vér leggjum hestunum beisli í munn, til þess að þeir hlýði oss, þá getum vér stýrt öllum líkama þeirra.

Sjá einnig skipin, svo stór sem þau eru, og rekin af hörðum vindum; þeim verður stýrt með mjög litlu stýri, hvert sem stýrimaðurinn vill.

Þannig er einnig tungan lítill limur, en lætur mikið yfir sér. Sjá, hversu lítill neisti getur kveikt í svo miklum skógi. —

Tungan er og eldur; tungan, ranglætisheimurinn, er meðal lima vorra; hún flekkar allan líkamann og kveikir í hjóli tilverunnar, en í henni er kveikt af helvíti.

Því að allar tegundir dýra og fugla, skriðkvikinda og sjávardýra, temjast og hafa verið tamin af kyni mannanna;

en tunguna getur enginn af mönnunum tamið, þessa óhemju, sem full er með banvænt eitur.

Með henni vegsömum vér Drottin og föðurinn, og með henni formælum vér mönnunum, sem skapaðir eru eftir líkingu Guðs.

Af sama munni gengur fram blessun og bölvun, þetta má ekki svo vera, bræður mínir.

Gefur lindin úr sama uppsprettuauga bæði sætt og beiskt vatn?

Mun fíkjutré, bræður mínir, geta af sér gefið olífur eða vínviður fíkjur? Eigi getur heldur saltur brunnur gefið sætt vatn. —

Hver er vitur og skynsamur yðar á meðal? Hann sýni af góðri hegðun verk sín í hógværð spekinnar.

En ef þér hafið beiskan ofsa og eigingirni í hjarta yðar, þá stærið yður ekki og ljúgið ekki gegn sannleikanum.

Sú speki kemur ekki ofan að, heldur er hún jarðnesk, náttúrleg, djöfulleg.

Því hvar sem ofsi og eigingirni er, þar er óstjórn og hvers kyns ill háttsemi.

En sú speki, sem að ofan er, hún er í fyrsta lagi hrein, þar næst friðsöm, ljúfleg, sannsýn, full miskunnar og góðra ávaxta, óhlutdræg, hræsnislaus;

en ávexti réttlætisins verður sáð í friði þeim til handa, sem frið semja.