Hóseabók 12Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Hóseabók 12

Efraím hefir umkringt mig með lygi og Ísraels hús með svikum og Júda er enn reikull gagnvart Guði og gagnvart hinum heilaga, sem aldrei breytist.

Efraím sækist eftir vindi og eftir austangoluna; á hverjum degi hrúga þeir upp lygum og ofbeldisverkum; þeir gjöra sáttmála við Assúr og olía er flutt til Egiptalands.

En Drottinn mun ganga í dóm við Júda og hegna Jakob eftir breytni hans, endurgjalda honum eftir verkum hans.

Í móðurkviði lék hann á bróður sinn og sem fulltíða maður glímdi hann við Guð.

Hann glímdi við engil og bar hærri hlut; hann grét og bað hann líknar. Hann fann hann í Betel og þar talaði hann við hann.

Drottinn, Guð hersveitanna, Drottinn er nafn hans.

En þú skalt hverfa aftur með hjálp Guðs þíns. Ástunda miskunnsemi og réttlæti og vona stöðugt á Guð þinn.

röng vog er í hendi hans, hann er gjarn á að hafa af öðrum með svikum.

Og; Efraím segir: Eg er auðugur orðinn, hefi aflað mér fjár. Við allan gróða minn geta menn ekki fundið nema misgjörð, er sé synd.

En eg, Drottinn, er Guð þinn frá því á Egiptalandi — enn get eg látið þig búa í tjöldum eins og á hátíðardögunum —

og eg hefi talað til spámannanna og eg hefi látið þá sjá margar sýnir og talað í Líkingum fyrir munn spámannanna.

Ef Gileað er óguðlegt, þá skulu þeir að engu verða; af því að þeir fórnuðu nautum í Gilgal, þá skulu og ölturu þeirra verða eins og steinhrúgur hjá plógförum á akri.

Þegar Jakob flýði til Aram-lands, þá gjörðist Ísrael þjónn vegna konu og vegna konu gætti hann hjarðar.

Fyrir spámann leiddi Drottinn Ísrael af Egiptalandi, og fyrir spámann varðveittist hann.

Efraím hefir valdið sárri gremju; fyrir því mun Drottinn hans láta blóðskuld hans yfir hann koma og gjalda honum svívirðing hans.