Hóseabók 11Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Hóseabók 11

Þegar Ísrael var ungur, fékk eg ást á honum og frá Egiptalandi kallaði eg sonu hans.

Þegar eg kallaði á þá, fóru þeir burt frá mér, Þeir færðu Baðlunum sláturfórnir og skurðgoðunum reykelsisfórnir,

Eg kendi Efraím að ganga og tók þá á arma mér. En þeir urðu þess ekki varir, að eg læknaði þá.

Með böndum, slíkum sem þeim er menn nota, dró eg þá að mér, með taugum kærleikans, og fór að þeim eins og sá, sem lyftir upp okinu á kjálkunum, og rétti þeim fæðu.

Þeir skulu snúa aftur til Egiptalands og Assúr skal verða konungur þeirra; því að Þeir vilja ekki snúa sér.

Því skal og sverðið geisa í borgum þeirra, og eyðileggja slagbranda þeirra og eyða virkjum þeirra.

Lýður minn hefir stöðuga tilhneiging til þess að snúa við mér bakinu; og þótt kallað sé til þeirra: Upp á við! þá hefir enginn sig upp.

Hvernig ætti eg að sleppa hendi af þér, Efraím, ofurselja þig, Ísrael? Ætti eg að fara með þig eins og Adma, útleika þig eins og Zebóim! Hjartað kemst við í brjósti mér, eg kenni brennheitrar meðaumkunar.

Eg vil ekki framkvæma heiftarreiði mína, ekki aftur eyðileggja Efraím. Því að eg er Guð, en ekki maður; eg bý á meðal yðar sem heilagur Guð og kem ekki til yðar í hræði.

Þeir munu fylgja Drottni, sem öskra mun eins og ljón; já, hann mun öskra og synir munu koma skjálfandi úr vestri.

Þeir munu koma skjálfandi frá Egiptalandi, eins og fuglar, og eins og dúfur frá Assúr-landi. Þá vil eg láta þá búa í húsum sínum, segir Drottinn.