Hóseabók 10Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Hóseabók 10

Ísrael var grózkumikill vínviður, sem bar ávöxt. Því meiri sem ávextir hans urðu, því fleiri ölturu reisti hann; að samd skapi sem velmegun landsins jókst, prýddu þeir merkissteinana.

Hjarta þeirra var óheilt; fyrir því skulu þeir nú gjöld taka. Hann mun sjálfur rífa niður ölturu þeirra, brjóta sundur merkissteina þeirra.

Já, Þ® munu þeir segja: Vér höfum engan konung, því að vér höfum ekk óttast Drottin; og konungurinn, hvað getur hann gjört fyrir oss?

Þeir tala hégómaorð, sverja meinsæri, gjöra sáttmála, til þess að rétturinn vaxi eins og eiturjurt upp úr plógförum á akri.

Samaríu-búar munu verða kvíðandi út af kálfinum í Betaven; já, lýður hans mun dapur verða út af honum og hofgoðar hans skelfast hans vegna — vegna vegsemdar lýðsins, að hann fari burt frá honum.

Jafnvel sjálfur hann mun fluttur verða til Assýríu sem gjöf handa Þrasvaldi konungi; Efraím mun hljóta skömm af og Ísrael fyrirverða sig fyrir ráðagjörð sína.

Samaría skal í eyði lögð verða; konungur hennar skal verða sem tréflís á vatni.

Óheillahæðirnar skulu eyddar verða, þar sem Ísrael syndgaði; þyrnar og þistlar skulu upp vaxa á ölturum þeirra. Og þá munu þeir segja við fjöllin: Hyljið oss!

og við hálsana: Hrynjið yfir oss! Síðan á Gíbeu-dögum hefir þú syndgað, Ísrael! Þarna stóðu þeir! Hvort mun stríðið gegn glæpamönnunum ná þeim í Gíbeu?

Nú vil eg refsa þeim eftir vild minni; þjóðir skulu saman safnast móti þeim, til þess að refsa þeim fyrir báðar misgjörðir þeirra.

En Efraím er eins og vanin kvíga, sem ljúft er að þreskja. Að vísu hefi eg enn hlíft hinum fagra hálsi hennar, en nú vil eg beita Efraím fyrir; Júda skal - Þlægja, Jakob herfa.

Sáið niður velgjörðum, þá munuð þér uppskera góðleik; takið yður nýtt land til yrkingar, þar eð tími er kominn til að leita Drottins, til þess að hann komi og láti réttlæti rigna yður í skaut.

Þér hafið plægt guðleysi, uppskorið ranglæti, etið ávöxtu lyginnar; því að þú reiddir þig á vagna þína og á fjölda kappa þinna.

Því skal og hergnýr rísa gegn mönnum þínum og virki þín öll skulu eydd verða, eins og þegar Salman eyddi Betarbel á ófriðartíma, þá er mæðurnar voru rotaðar ásamt börnunum.

Eins mun hann með yður fara, Ísraelsmenn, sökum yðar miklu vonzku. í dögun mun Ísraelskonungur afmáður verða.