Hóseabók 9Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Hóseabók 9

Gleð þig ekki, Ísrael, svo að þú ráðir þér ekki fyrir kæti, eins og heiðnu þjóðirnar, því að þú hefir tekið fram hjá Guði þínum; þú hefir elskað hórgjald á öllum kornláfum.

En láfi og vínlagarþró munu ekki vilja við þá kannast, og vinberjalögurinn mun bregðast þeim.

Þeir munu eigi búa kyrrir í landi Drottinn, heldur mun Efraím verða að fara aftur til Egiptalands, og þeir munu eta óhreina fæðu í Assúrlandi.

Þá munu þeir eigi færa Drottni neitt vín að dreypifórn og eigi bera fram fyrir hann sláturfórnir sínar. Brauð þeirra mun verða eins og sorgarbrauð; allir, sem eta það, munu óhreinir verða. Því að brauð þeirra mun aðeins seðja hungur þeirra, en eigi koma í hús Drottins.

Hvað viljið þér gjöra á löghelgum og á hátíðardögum Drottins?

Því sjá, þegar þeir eru komnir burt frá eyðingunni, mun Egiptaland saman safna þeim, Memfis veita þeim legstað; silfurgersemar þeirra munu þistlarnir eignast — þyrnarnir í tjöldum þeirra.

Hegningarlíminn kemur, endurgjaldstíminn kemur; Ísrael mun fá að kenna á því. spámaðurinn er fífl, andans maður óður — af því að misgjörð þín er svo mikil og ofsóknin svo mikil.

Efraím er á verði gegn Guði mínum. Fyrir spámanninn er lögð fuglara-snara á öllum vegum hans, hersporar í húsi Guðs hans.

Þeir hafa framið mikil óhæfuverk, eins og forðum í Gíbeu; hann minnist misgjörðar þeirra, hann vitjar synda þeirra.

Eg fann Ísrael eins og vínber á eyðimörku, sá feður yðar eins og frumfíkju á fíkjutré, þá er það fyrst ber ávöxt. En er þeir komu til Baal-Peór, helguðu þeir sig svívirðingunni og urðu andstyggilegir, eins og sá, sem þeir elskuðu.

Fólksfjöldi Efraíms mun burt fljúga eins og fuglar, svo að konur skulu þar ekki framar fæða, ekki þungaðar vera og ekki getnað fá.

Og þótt þeir ali upp börn sín, þar til er þau verða fulltíða, þá skal eg þó gjöra þá barnlausa, svo að mannskortur verði. Já, vei og sjálfum þeim, þegar eg vík frá þeim.

Efraím er, eins og eg lít hann alt til Týrus, gróðursettur á engi, og Efraímitar verða að framselja morðingjum sonu sína.

Gef þeim, Drottinn, • hvað skaltu gefa? — gef þeim ófrjósöm móðurlíf og mjólkurlaus brjóst.

Öll vonzka þeirra kom fram í Gilgal. Já, þar fékk eg hatur á þeim. Vegna hins vonda athæfis þeirra vil eg reka þá burt úr húsi mínu, eg vil eigi elska þá lengur; allir höfðingjar þeirra eru þvermóðskufullir.

Efraím mun lostinn verða; rót þeirra skrælnar, þeir munu engan ávöxt bera. Þótt þeir eignist sonu, mun eg deyða hin elskuðu lífsafkvæmi þeirra.

Guð minn mun hafna þeim, því að þeir hafa ekki hlýtt honum; og þeir munu fara landflótta meðal þjóðanna.