Galatabréfið 5Krans-útgáfa

Galatabréfið 5

Til frelsis frelsaði Kristur oss; standið því fastir og látið ekki aftur leggja á yður ánauðarok.

Sjá, eg, Páll, segi yður, að ef þér látið umskerast, þá gagnar Kristur yður ekkert.

Og eg vitna af nýju fyrir hverjum manni, sem lætur umskerast, að hann er skyldur til að halda alt lögmálið.

Þér eruð orðnir viðskila við Krist, þér sem ætlið að réttlætast fyrir lögmál; þér eruð fallnir úr náðinni;

því að vér væntum í anda, af trú, réttlætingar vonar;

því að í Kristi Jesú gildir hvorki umskurn neitt né yfirhúð, heldur trú, starfandi fyrir kærleika.

Þér hlupuð vel; en hver hefir hindrað yður frá að hlýða sannleikanum?

Þær fortölur voru ekki frá honum, sem kallaði yður.

Lítið súrdeig sýrir alt deigið.

Eg hefi það traust til yðar í drotni, að þér verðið ekki neins annars hugar; en sá, sem truflar yður, mun bera sinn dóm, hver sem hann svo er.

En eg, bræður, ef eg enn þá er að prédika umskurn, hví er eg þá enn ofsóttur? Þá væri hneyksli krossins tekið burt.

Betur væri að þeir, sem koma yður í uppnám, létu og afsníðast.

Því að þér voruð, bræður, kallaðir til frelsis; notið aðeins ekki frelsið til færis fyrir holdið, heldur þjónið hver öðrum fyrir kærleikann.

Því að öllu lögmálinu er fullnægt með einu orði, með þessu: Elska skaltu náunga þinn eins og sjálfan þig.

En ef þér bítist og etið upp hver annan, sjáið þá við því, að þér tortímist ekki hver fyrir öðrum.

En eg segi: Framgangið í andanum, og þá fullnægið þér ekki girnd holdsins.

Því að holdið girnist gegn andanum, og andinn gegn holdinu, því að þetta stendur hvort gegn öðru, til þess að þér gjörið ekki það, sem þér viljið.

En ef þér leiðist af andanum, þá eruð þér ekki undir lögmáli.

En holdsins verk eru augljós, og eru þau: frillulífi, óhreinleikur, saurlífi,

skurðgoðadýrkun, fjölkyngi, fjandskapur, deilur, metningur, bræði, sérplægni, tvídrægni, flokkadráttur,

öfund, ofdrykkja, svall og annað þessu líkt; og um það segi eg yður fyrir, eins og eg hefi áður sagt, að þeir, sem slíkt gjöra, munu ekki erfa guðsríki.

En ávöxtur andans er: kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæska, góðvild, trúmenska, hógværð, bindindi;

gegn slíku er ekkert lögmál.

En þeir sem eru Krists Jesú, hafa krossfest holdið með ástríðum þess og girndum.

Ef vér lifum í andanum, þá framgöngum einnig í andanum.

Verum ekki hégómagjarnir, svo að vér áreitum hver annan og öfundum hver annan.