Galatabréfið 6Krans-útgáfa

Galatabréfið 6

Bræður! ef einhver misgjörð kann að henda mann, þá leiðréttið þér, sem andlegir eruð, þann mann með hógværðar anda, og haf gát á sjálfum þér, að þú freistist ekki líka.

Berið hver annars byrðar og uppfyllið þannig lögmál Krists.

Því að þykist nokkur vera nokkuð, þar sem hann þó er ekkert, þá dregur hann sjálfan sig á tálar.

En sérhver rannsaki verk sjálfs sín, og þá mun hann hafa hrósunarefni einungis fyrir sjálfan sig, en ekki fyrir aðra;

því að sérhver mun verða að bera sína eigin byrði.

En sá, sem uppfræðist í orðinu, veiti þeim, sem uppfræðir, hlutdeild með sér í öllum gæðum.

Villist ekki! Guð lætur ekki að sér hæða; því að það, sem maður sáir, það mun hann og uppskera.

Því að sá, sem sáir í hold sjálfs sín, mun af holdinu uppskera glötun; en sá, sem sáir í andann, mun af andanum uppskera eilíft líf.

En þreytumst ekki að gjöra það, sem gott er, því að á sínum tíma munum vér uppskera, ef vér ekki gefumst upp.

Þess vegna, eftir því sem vér höfum færi á, þá gjörum gott öllum og einkum trúbræðrum vorum.

Sjáið, með hversu stórum stöfum eg skrifa yður með minni eigin hendi.

Allir þeir, sem vilja líta vel út að holdinu til, þeir eru það, sem eru að þrengja yður til að láta umskerast, einungis til þess að þeir eigi verði ofsóttir vegna krossins Krists;

því að ekki halda einu sinni sjálfir þeir, sem umskornir eru, lögmálið, heldur vilja þeir að þér látið umskerast, til þess að þeir geti stært sig af holdi yðar.

En það sé fjarri mér að hrósa mér, nema af krossi Drottins vors Jesú Krists, fyrir hvern heimurinn er mér krossfestur og eg heiminum.

Því að hvorki er umskurn neitt, né yfirhúð, heldur ný skepna.

Og yfir öllum þeim, sem þessari reglu fylgja, sé friður og miskunn, og yfir Ísrael Guðs.

Enginn mæði mig héðan í frá, því að eg ber merki Jesú á líkama mínum.

Náðin Drottins vors Jesú Krists sé með yðar anda, bræður. Amen.