Fyrsta Mósebók 8Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fyrsta Mósebók 8

Þá mintist Guð Nóa og allra dýranna og alls fénaðarins, sem með honum var í örkinni, og Guð lét vind blása yfir jörðina, svo að vatnið sjatnaði.

Og uppsprettur undirdjúpsins luktust aftur og flóðgáttir himinsins, og steypiregninu úr loftinu linti.

Og vatnið rénaði meir og meir á jörðunni og þvarr eftir hundrað og fimtíu daga.

Og örkin nam staðar í sjöunda mánuðinum, á seytjánda degi mánaðarins, á Araratsfjöllunum.

Og vatnið var að réna alt til hins tíunda mánaðar; í tíunda mánuðinum, á fyrsta degi mánaðarins, sáust fjallatindarnir.

En eftir fjörutíu daga lauk Nói upp glugga arkarinnar, sem hann hafði gjört,

og lét út hrafn; hann flaug fram og aftur, þangað til vatnið þornaði á jörðunni.

Þá sendi hann út frá sér dúfu, til að vita, hvort vatnið væri þorrið á jörðunni.

En dúfan fann ekki hvíldarstað fæti sínum og hvarf til hans aftur í örkina, því að vatn var enn yfir allri jörðunni; og hann rétti út hönd sína og tók hana og fór með hana inn til sín í örkina.

Og hann beið enn aðra sjö daga og sendi svo dúfuna aftur úr örkinni.

Þá kom dúfan til hans aftur undir kveld, og var þá með grænt olíuviðarblað í nefinu. Þá sá Nói, að vatnið var þorrið á jörðunni.

Og enn beið hann aðra sjö daga og lét þá dúfuna út; en hún hvarf ekki framar til hans aftur.

Og á sexhundraðasta og fyrsta ári, í fyrsta mánuðinum, á fyrsta degi mánaðarins, var vatnið þornað á jörðunni; og Nói tók þakið af örkinni og litaðist um, og var þá yfirborð jarðarinnar orðið þurt.

Í öðrum mánuðinum, á tuttugasta og sjöunda degi mánaðarins, var jörðin þur.

Þá talaði Guð við Nóa og mælti:

Gakk þú úr örkinni, þú og kona þín og synir þínir og sonakonur þínar með þér.

Og láttu fara út með þér öll dýr, sem með þér eru, af öllu holdi, bæði fuglana og fénaðinn og öll skriðkvikindin, sem skríða á jörðunni; verði krökt af þeim á jörðunni, verði þau frjósöm og fjölgi á jörðunni.

Þá gekk Nói út og synir hans og kona hans og sonakonur hans með honum.

Öll dýr, öll skriðkvikindi, allir fuglar, alt, sem bærist á jörðunni, hvað eftir sinni tegund, gekk út úr örkinni.

Nói reisti þá Drottni altari og tók af öllum hreinum dýrum og hreinum fuglum, og fórnaði brennifórn á altarinu.

Og Drottinn kendi þægilegan ilm, og Drottins sagði við sjálfan sig: Eg vil upp frá þessu ekki bölva jörðunni framar vegna mannsins, því að hugrenningar mannshjartans eru illar frá bernsku hans, og eg mun upp frá þessu ekki framar deyða alt, sem lifir, eins og eg hefi gjört.

Meðan jörðin stendur, skal ekki linna sáning og uppskera, frost og hiti, sumar og vetur, dagur og nótt.