Fyrsta Mósebók 9Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fyrsta Mósebók 9

Þá blessaði Guð Nóa og sonu hans og sagði við þá: Verið frjósamir, margfaldist og uppfyllið jörðina.

Ótti við yður og skelfing skal vera yfir öllum dýrum jarðarinnar, yfir öllum fuglum loftsins, yfir öllu, sem hrærist á jörðunni, og yfir öllum fiskum sjávarins; á yðvart vald er þetta gefið.

Alt, sem hrærist og lifir, skal vera yður til fæðu; eg gef yður það alt, eins og grænu jurtirnar.

Aðeins hold, sem sálin, það er blóðið, er í, skuluð þér ekki eta.

En yðar eigin blóðs mun eg hins vegar krefjast; af hverri skepnu mun eg þess krefjast, og af manninum, af bróður hans, mun eg krefjast lífs mannsins.

Hver, sem út hellir mannsblóði, hans blóði skal af manni út helt verða; því að eftir Guðs mynd gjörði hann manninn.

En ávaxtist þér og margfaldist og fjölgið stórum á jörðunni og margfaldist á henni.

Og Guð mælti þannig við Nóa og sonu hans, sem voru með honum:

Sjá, eg gjöri minn sáttmála við yður og við niðja yðar eftir yður

og við allar lifandi skepnur, sem með yður eru, bæði við fuglana og fénaðinn og öll villidýrin, sem hjá yður eru, alt, sem út gekk úr örkinni, það er: öll dýr jarðarinnar.

Minn sáttmála vil eg gjöra við yður: Aldrei framar skal alt hold tortímast af vatnsflóði, og aldrei framar mun flóð koma til að eyða jörðina.

Og Guð sagði: Þetta er merki sáttmálans, sem eg gjöri milli mín og yðar og allra lifandi skepna, sem hjá yður eru, um allar ókomnar aldir:

Boga minn set eg í skýin, að hann sé merki sáttmálans milli mín og jarðarinnar.

Og þegar eg dreg ský saman yfir jörðunni og boginn sést í skýjunum,

þá mun €Og minnast sáttmála míns, sem er milli mín og yðar og allra lifandi sálna í öllu holdi, og aldrei framar skal vatnið verða að flóði, til að tortíma öllu holdi.

Og boginn skal standa í skýjunum og eg mun horfa á hann, til þess að minnast hins eilífa sáttmála milli Guðs og allra lifandi sálna í öllu holdi, sem er á jörðunni.

Og Guð sagði við Nóa: Þetta er teikn sáttmálans, sem eg hefi gjört milli mín og alls holds, sem er á jörðunni.

Og synir Nóa, sem gengu úr Örkinni, voru þeir Sem, Kam og Jafet, en Kam var faðir Kanaans.

Þessir eru synir Nóa þrír, og frá þeim bygðist öll jörðin.

En Nói gjörðist akuryrkjumaður og plantaði víngarð.

Og hann drakk af víninu og varð drukkinn og lá nakinn í tjaldi sínu.

Og Kam, faðir Kanaans, Sk nekt föður síns og sagði báðum bræðrum sínum frá, sem úti voru.

Þá tóku þeir Sem og Jafet skikkjuna og lögðu á herðar sér og gengu aftur á bak og huldu nekt föður síns, en andlit þeirra sneru undan, Svo að þeir sáu ekki nekt föður síns.

En er Nói vaknaði af vímunni, varð hann þess áskynja, hvað sonur hans hinn yngri hafði gjört honum.

Þá mælti hann: Bölvaður sé Kanaan; auvirðilegur þræll sé hann bræðra sinna.

Og hann sagði: Lofaður sé Drottinn, Sems Guð; en Kanaan sé þræll þeirra.

Guð gefi Jafet mikið landrými, og hann búi í tjaldbúðum Sems; en Kanaan sé þræll þeirra.

Og Nói lifði eftir flóðið þrjú hundruð og fimtíu ár;

og allir dagar Nóa voru níu hundruð og fimtíu ár. Þá andaðist hann.