Fyrsta Mósebók 7Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fyrsta Mósebók 7

Og Drottinn sagði við Nóa: Gakk þú og alt fólk þitt í örkina, því að þig hefi eg séð réttlátan fyrir augliti mínu í þessari kynslóð.

Tak þú til þín af öllum hreinum dýrum sjö og sjö, karldýr og kvendýr; en af þeim dýrum, sem ekki eru hrein, tvö og tvö, karldýr og kvendýr;

einnig af fuglum loftsins sjö og sjö, karlkyns og kvenkyns, til að viðhalda lífsstofni á allri jörðunni.

Því að sjö dögum liðnum mun eg láta rigna á jörðina fjörutíu daga og fjörutíu nætur, og eg mun afmá af jörðunni sérhverja skepnu, sem eg hefi gjört.

Og Nói gjörði alt eins og Drottinn bauð honum.

En Nói var sex hundruð ára gamall, þegar vatnsflóðið kom yfir jörðina.

Og Nói gekk í örkina og synir hans og kona hans og sonakonur hans með honum, undan vatnsflóðinu.

Af hreinum dýrum og af þeim dýrum, sem ekki voru hrein, og af fuglum og af öllu, sem skríður á jörðunni,

kom tvent og tvent til Nóa í örkina, karlkyns og kvenkyns, eins og Guð hafði boðið Nóa.

Og eftir sjö daga kom vatnsflóðið yfir jörðina.

Á sexhundraðasta aldursári Nóa, í öðrum mánuðinum, á seytjánda degi mánaðarins, á þeim degi opnuðust allar uppsprettur hins mikla undirdjúps og flóðgáttir himinsins lukust upp.

Og steypiregn dundi yfir jörðina fjörutíu daga og fjörutíu nætur.

Einmitt á þeim degi gekk Nói og Sem, Kam og Jafet, synir Nóa, og kona Nóa og þrjár sonakonur hans með þeim í örkina, —

þau og öll villidýrin eftir sinni tegund og allur fénaðurinn eftir sinni tegund og öll skriðkvikindin, sem skríða á jörðunni, eftir sinni tegund, og allir fuglarnir eftir sinni tegund, allir smáfuglar, alt fleygt.

Og þau komu til Nóa í örkina tvö og tvö af öllu holdi, sem lífsandi var í.

Og þau, sem komu, gengu inn karlkyns og kvenkyns af öllu holdi, eins og Guð hafði boðið honum. Og Drottinn læsti eftir honum.

Og flóðið var á jörðunni fjörutíu daga, og vatnið óx og lyfti örkinni, og hún hófst yfir jörðina.

Og vötnin mögnuðust og uxu stórum á jörðunni, en örkin flaut ofan á vatninu.

Og vötnin mögnuðust ákaflega á jörðunni, svo að öll hin háu fjöll, sem eru undir öllum himninum, fóru í kaf.

Fimtán álna hátt óx vatnið, svo að fjöllin fóru í kaf.

Þá dó alt hold, sem hreyfðist á jörðunni, bæði fuglar, fénaður, villidýr og allir ormar, sem skriðu á jörðunni, og allir menn.

Alt, sem hafði lífsanda í nösum sínum, alt, sem var á þurlendinu, það dó.

Og þannig afmáði hann sérhverja skepnu, sem var á jörðunni, bæði menn og fénað, skriðkvikindi og fugla loftsins. Það var afmáð af jörðunni. En Nói einn varð eftir og það, sem með honum var í örkinni.

Og vötnin mögnuðust á jörðunni hundrað og fimtíu daga.