Fyrsta Mósebók 6Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fyrsta Mósebók 6

En er mennirnir tóku að fjölga á jörðunni og þeim fæddust dætur,

sáu synir Guðs, að dætur mannanna voru fríðar, og tóku sér konur meðal þeirra, allar sem þeim geðjuðust.

Þá sagði Drottinn: Andi minn skal ekki æfinlega búa í manninum, með því að hann einnig er hold; veri dagar hans nú hundrað og tuttugu ár.

Á þeim tímum voru risarnir á jörðunni, og einnig síðar, er synir Guðs höfðu samfarir við dætur mannanna og þær fæddu þeim sonu; það eru kapparnir, sem í fyrndinni voru viðfrægir.

Og er Drottinn sá, að ilska mannsins var mikil á jörðunni og að allar hugrenningar hjarta hans voru ekki annað en ilska alla daga,

þá iðraðist Drottinn þess, að hann hafði skapað mennina á jörðunni, og honum sárnaði það í hjarta sínu.

Og Drottinn sagði: Eg vil afmá af jörðunni mennina, sem eg skapaði: bæði mennina, fénaðinn, skriðkvikindin og fugla loftsins; því að mig iðrar, að eg hefi skapað þau.

En Nói fann náð í augum Drottins.

Þetta er saga Nóa: Nói var maður réttlátur og vandaður á sinni öld; Nói gekk með Guði.

Og Nói gat þrjá sonu: Sem, Kam og Jafet.

Og jörðin var spilt í augsýn Guðs og jörðin fyltist glæpaverkum.

Og Guð leit á jörðina, og sjá, hún var spilt orðin; því að alt hold hafði spilt vegum sínum á jörðunni.

Þá mælti Guð við Nóa: Endir alls holds er kominn fyrir minni augsýn, því að jörðin er full af glæpaverkum þeirra; sjá, eg vil afmá þá af jörðunni.

Gjör þú þér örk af góferviði; smáhýsi skalt þú gjöra í örkinni og bræða hana biki utan og innan.

Og gjör hana svo: lengd arkarinnar sé þrjú hundruð álnir, breidd hennar fimtíu álnir og hæð hennar þrjátíu álnir.

Glugga skalt þú gjöra á örkinni og búa hann til á henni ofanverðri, alt að alin á hæð; og dyr arkarinnar skalt þú setja á hlið hennar, og búa til þrjú loft í henni: neðst, í miðju og efst.

Því sjá, eg læt vatnsflóð koma yfir jörðina, til að tortíma öllu holdi undir himninum, sem lífsandi er í; alt, sem á jörðunni er, skal deyja.

En við þig mun eg gjöra sáttmála minn, og þú skalt ganga í örkina, þú og synir þínir, og kona þín og sonakonur þínar með þér.

Af öllum lifandi skepnum, af öllu holdi, skalt þú láta inn í örkina tvent af hverju, svo að það haldi lífi. með þér; karldýr og kvendýr skulu þau vera:

af fuglunum eftir þeirra tegund, af fénaðinum eftir hans tegund og af öllum skriðkvikindum jarðarinnar eftir þeirra tegund; tvent af öllu skal til þín inn ganga, til þess að það haldi lífi.

En tak þú þér af allri fæðu, sem etin er, og safna að þér, að það sé þér og þeim til viðurværis.

Og Nói gjörði svo; alt gjörði hann eins og Guð bauð honum.