Fyrsta Mósebók 35Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fyrsta Mósebók 35

Þá sagði Guð við Jakob: Tak þig upp og far upp til Betel og dvel þú þar og gjör þar altari Guði, sem birtist þér, þegar þú flýðir undan Esaú bróður þínum.

Og Jakob sagði við heimafólk sitt og alla, sem með honum voru: Kastið burt þeim útlendu goðum, sem þér hafið hjá yður, og hreinsið yður og hafið fataskifti;

og skulum vér taka oss upp og fara upp til Betel; vil eg reisa þar altari þeim Guði, sem bænheyrði mig á tíma neyðar minnar og hefir verið með mér á þeim vegi, sem eg hefi farið.

Og þeir fengu Jakob öll þau útlendu goð, sem þeir höfðu hjá sér, og hringina, sem þeir höfðu í eyrum sér, og gróf Jakob það undir eikinni, sem er hjá Sikem.

Því næst fóru þeir af stað. En ótti frá Guði var yfir öllum borgunum, sem voru umhverfis þá, svo að sonum Jakobs var ekki veitt eftirför.

Og Jakob kom til Lús, sem er í Kanaanlandi — það er Betel —, hann og alt fólkið, sem með honum var.

Og hann reisti þar altari og kallaði staðinn El-Betel, því að Guð hafði birzt honum þar, þegar hann flýði undan bróður sínum.

Þar andaðist Debóra, fóstra Rebekku, og var jörðuð fyrir neðan Betel, undir eikinni, og fyrir því heitir hún gráteik.

Og enn birtist Guð Jakob, er hann var á heimleið frá Mesópótamíu og blessaði hann.

Og Guð sagði við hann: Nafn þitt er Jakob; eigi skalt þú héðan af Jakob heita, heldur skal nafn þitt vera Ísrael. Og hann nefndi hann Ísrael.

Og Guð sagði við hann: Eg er almáttugur Guð; ver þú frjósamur og auk kyn þitt; þjóð, já fjöldi þjóða skal frá þér koma og konungar skulu út ganga af lendum þínum.

Og landið, sem eg gaf Abraham og Ísak, mun eg gefa þér; og niðjum þínum eftir -þig mun eg gefa landið.

Því næst sté Guð upp frá honum þaðan sem hann talaði við hann.

Og Jakob reisti upp merki á þeim stað, sem Guð talaði við hann — merkistein, og dreypti yfir hann dreypifórn og helti yfir hann olíu.

Og Jakob nefndi staðinn, þar sem Guð talaði við hann, Betel.

Og þeir tóku sig upp frá Betel; en er þeir áttu skamt eftir ófarið til Efrat, tók Rakel léttasótt og kom hart niður.

Og er hún kom svo hart niður í barnburðinum, sagði ljósmóðirin við hana: Óttast þú ekki, því að nú eignast þú annan son.

Og er hún var í andlátinu — því að hún dó —, þá nefndi hún hann Benóní, en faðir hans nefndi hann Benjamín.

Því næst andaðist Rakel og var jörðuð við veginn til Efrat, það er Betlehem.

Og Jakob reisti minnismerki á leiði hennar, það er legsteinn Rakelar alt til þessa dags.

Og Ísrael hélt áfram ferðinni og sló tjöldum sínum hinumegin við Mígdal-Eder.

Og meðan Ísrael hafðist við í því bygðarlagi, bar svo við, að Rúben fór og lagðist með Bílu hjákonu föður síns; og Ísrael varð þess áskynja. En Jakob átti tólf sonu.

Synir Leu voru þeir Rúben, frumgetinn son Jakobs, Símeon, Leví, Júda, Íssakar og Sebúlon;

synir Rakelar: Jósef og Benjamín;

og synir Bílu, þernu Rakelar: Dan og Naftalí;

og synir Silpu, þernu Leu: Gað og Asser. Þetta eru synir Jakobs, sem honum fæddust í Mesópótamíu.

Og Jakob kom til Ísaks föður síns í Mamre við Kirjat-Arba, það er Hebron, þar sem Abraham og Ísak höfðu dvalist sem útlendingar.

En dagar Ísaks voru hundrað og áttatíu ár.

Og Ísak andaðist og dó og safnaðist til síns fólks gamall og saddur lífdaga, og Esaú og Jakob synir hans jörðuðu hann.