Fyrsta Mósebók 34Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fyrsta Mósebók 34

En Dína dóttir Leu, er hún hafði fætt Jakob, gekk út að sjá dætur landsins.

Þá sá Sikem hana, sonur Hevítans Hemors, höfðingja landsins, og hann tók hana og lagðist með henni og spjallaði hana.

Og hann lagði mikinn ástarhug á Dínu, dóttur Jakobs, og hann elskaði stúlkuna og talaði vinsamlega við hana.

Og Sikem kom að máli við Hemor föður sinn og mælti: Tak mér þessa stúlku fyrir konu.

En Jakob hafði frétt, að hann hefði svívirt Dínu dóttur hans; en með því að synir hans voru útií haga með fénað hans, þá lét hann kyrt vera, þar til er þeir komu heim.

Þá gekk Hemor, faðir Sikems, út til Jakobs, til þess að tala við hann.

Og synir Jakobs komu heim úr haganum, er þeir heyrðu þetta; og mennirnir stygðusl og urðu stórreiðir, því að hann hafði framið óhæfuverk í Ísrael, er hann lagðist með dóttur Jakobs, og slíkt hefði aldrei alt að fremja.

Þá talaði Hemor við þá og mælti: Sikem sonur minn hefir mikla ást á dóttur yðar; eg bið að þér gefið honum hana fyrir konu.

Mægist við oss; gefið oss yðar dætur og takið yður vorar dætur,

og staðnæmist hjá oss, og landið skal standa yður til boða; verið hér kyrrir og farið um landið og takið yður bólfestu í því.

Og Sikenr sagði við föður Hennar og bræður: Ó, að ey mælti finna náð í augum yðar; hvað sem þér til nefnið, það skal eg greiða.

Krefjist af mér svo mikils mundar og morgungjafar sem vera skal, og mun eg greiða það, er þér til nefnið; en gefið mér stúlkuna fyrir konu.

Þá svöruðu synir Jakobs þeim Sikem og Hemor föður hans og töluðu með undirhyggju, af því að hann hafði svívirt Dínu systur þeirra,

og sögðu við þá: Eigi megum vér þetta gjöra, að gefa systur vora óumskornum manni, því að það væri oss vanvirða.

Því að eins viljum vér gjöra að yðar vilja, að þér verðið eins og vér, með því að láta umskera alt karlkyn meðal yðar.

Þá skulum vér gefa yður vorar dætur og taka yðar dætur oss til handa og búa hjá yður, svo að vér verðum ein þjóð.

En viljið þér eigi láta að orðum vorum og umskerast, þá tökum vér dóttur vora og förum burt.

Og Hemor og Sikem, syni Hemors, geðjaðist vel tal þeirra.

Og sveinninn lét ekki á því standa að gjöra þetta, því að hann elskaði dóttur Jakobs; en hann var talinn maður ágætastur í sinni ætt.

Og Hemor og Sikem sonur hans komu í hlið borgar sinnar og töluðu við borgarmenn sína og sögðu:

Þessir menn bera friðarhug til vor; látum þá setjast að í landinu og fara allra sinna ferða um það; því að nóg er landrýmið á báðar hendur handa þeim. Dætur þeirra munum vér taka oss fyrir konur og gefa þeim dætur vorar.

En því að eins vilja mennirnir gjöra að vorum vilja og búa vor á meðal, svo að vér verðum ein þjóð, að vér látum umskera alt karlyn meðal vor, eins og þeir eru umskornir.

Hjarðir þeirra, fjárhlutur þeirra og allur fénaður þeirra, verður það ekki vor eign? Gjörum aðeins að vilja þeirra, svo að þeir staðnæmist hjá oss.

Og þeir létu að orðum Hemors og Sikems sonar hans, allir sem gengu út um hlið borgar hans, og alt karlkyn lét umskerast, allir þeir, sem gengu út um hlið borgar hans.

En svo bar til á þriðja degi, eru þeir voru sjúkir af sárum, að tveir synir Jakobs, þeir Símeon og Leví, bræður Dínu, tóku hvor sitt sverð og gengu inn í borgina, sem átti sér einskis ills von, og drápu þar alt karlkyn.

Drápu þeir einnig Hemor og son hans Sikem með sverðseggjum og tóku Dínu úr húsi Sikems og fóru síðan burt.

Synir Jakobs réðust að hinum vegnu og rændu borgina, af því að þeir höfðu svívirt systur þeirra.

Sauði þeirra, naut þeirra og asna, og alt, sem var í borginni, og það, sem var í högunum, tóku þeir.

Og öll auðæfi þeirra, öll börn þeirra og konur tóku þeir að herfangi og ræntu, sömuleiðis alt, sem var í húsunum.

Og Jakob sagði við Símeon og Leví: Þið hafið stofnað mér í ógæfu með því að gjöra mig illa þokkaðan af landsmönnum, af Kanaanítum og Peresítum; nú með því að eg er liðfár, munu þeir safnast saman á móti mér og vinna sigur á mér; verð eg þá afmáður, eg og mitt hús.

En þeir svöruðu: Átti hann þá að fara með systur okkar eins og skækju?