Fyrsta Mósebók 36Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fyrsta Mósebók 36

Þetta er ættartala Esaú, það er Edóms.

Esaú hafði tekið sér konur af dætrum Kanaaníta: Ada, dóttur Hetítans Elons, og Oholíbama, dóttur Ana, sonar Hórítans Zíbeons,

og Basmat, dóttur Ísmaels, systur Nebajóts.

Og Ada ól Esaú Elífas, en Basmat ól Regúel.

Og Oholíbama ól Jehús, Jaelam og Kóra. Þessir eru synir Esaú, sem honum fæddust í Kanaanlandi.

Og Esaú tók konur sínar, sonu sína og dætur og allar sálir í húsi sínu og hjörð sína og kvikfénað og allan þann fjárhlut, sem hann hafði aflað sér í Kanaanlandi, og fór í burtu frá Jakob bróður sínum til Seír-lands.

Því að eign þeirra Var meiri en svo, að þeir gætu saman verið, og landið, er þeir bjuggu í sem útlendingar, bar þá ekki sökum hjarða þeirra.

Og Esaú settist að á Seir-fjöllum; en Esaú er Edóm.

Þetta er saga Esaú, ættföður Edómiíta, á Seírfjöllum.

Þetta eru; nöfn Esaú sona: Elífas, sonur Ada, konu Esaú, Regúel, sonur Basmat, konu Esaú.

En synir Elífas voru: Teman, Ómar, Zefó, Gaetam og Kenas.

Og Tímna var hjákona Elífas, sonar Esaú, og hún ól Elífas Ámalek. Þetta eru synir Ada, konu Esaú.

Og þessir eru synir Regúels: Naliat, Sem, Samma og Missa. Þessir voru synir Basmat, konu Esaú.

Og þessir voru synir Óholíbama, dóttur Ana, sonar Zíbeons, konu Esaú; hún ól Esaú Jehús, Jaelam og Kóra.

Þessir eru ætthöfðingjar meðal Esaú sona. Synir Elífas, frumgetins sonar Esaú, voru: höfðinginn Teman, höfðinginn Ómar, höfðinginn Zefó, höfðinginn Kenas,

höfðinginn Kóra, höfðinginn Gaetam, höfðinginn Amalek. Þessir eru þeir höfðingjar, sem komnir eru frá Elífas í Edómlandi; þessir eru synir Ada.

Þessir voru synir Regúels, sonar Esaú: höfðinginn Nahat, höfðinginn Sera, höfðinginn Samma, höfðinginn Missa. Þessir eru þeir höfðingjar, sem komnir eru frá Regúel í Edómlandi; þessir eru synir Basmat, konu Esaú.

Og þessir eru synir Oholíbama, konu Esaú: höfðinginn Jehús, höfðinginn Jaelam, höfðinginn Kóra. Þessir eru þeir höfðingjar, sem komnir eru frá Oholíbama, dóttur Ana, konu Esaú.

Þessir eru synir Esaú og þessir eru höfðingjar þeirra; það er Edóm.

Þessir eru synir Hóritans Seirs, frumbyggjar landsins: Lótan, Sóbal, Zibeon, Ana,

Díson, Ezer og Dísan. Þessir eru höfðingjar Hórítanna, synir Seirs í Edómlandi.

En synir Lótans voru Hóri og Hemam; og systir Lótans var Tímna.

Og þessir eru synir Sóbals: Alvan, Manahat, Ebal, Sefó og Ónam.

Og þessir eru synir Zibeons: Aja og Ana; það er sá Ana, sem fann laugarnar á öræfunum, er hann gætti asna Zíbeons föður síns.

Og þessi eru börn Ana: Diíson og Oholíbama, dóttir Ana.

Og þessir eru synir Dísons: Hemdan, Esban, Jítran og Keran.

Þessir eru synir Ezers: Bílhan, Saavan og Akan.

Þessir eru synir Dísans: Úz og Aran.

Þessir eru höfðingjar Hórílanna: höfðinginn Lólan, höfðinginn Sóbal, höfðinginn Zíheon, höfðinginn Ana,

höfðinginn Díson, höfðinginn Ezer, höfðinginn Dísan. Þessir eru höfðingjar Hórítanna eftir höfðingjum þeirra í Seir-landi.

Þessir eru þeir konungar, sem ríktu í Edómlandi, áður en konungar ríktu yfir Ísraelsmönnum:

Bela, sonur Beórs, var konungur í Edóm og hét borg hans Dínhaba.

Og er Bela dó, tók Jóbab, sonur Sera frá Bozra, ríki eftir hann.

Og er Jóbab dó, tók Húsam frá Temanítalandi ríki eftir hann.

Og er Húsam dó, tók Hadad, sonur Bedads, ríki eftir hann; hann vann sigur á Midíanítum á Móabsvöllum; og borg hans hét Avít.

Og er Hadad dó, tók Samla frá Masreka ríki eftir hann.

Og er Samla dó, tók Sál frá Rehóbót hjá ánni ríki eftir hann.

Og er Sál dó, tók Baal-Hanan, sonur Akbórs, líki eftir hann.

Og er Baal-Hanan sonur Akbórs dó, tók Hadar ríki eftir hann og hét borg hans Pagú, en kona hans Mehetabeel, dóttir Matredar, dóttur Me-Sahabs.

Og þessi eru nöfn höfðingja þeirra, er frá Esaú eru komnir, eftir ættkvíslum þeirra, eftir bústöðum þeirra, eftir nöfnum þeirra: höfðinginn Timna, höfðinginn Alva, höfðinginn Jetet,

höfðinginn Oholíbama, höfðinginn Ela, höfðinginn Pínon,

höfðinginn Kenas, höfðinginn Teman, höfðinginn Mibzar,

höfðinginn Magdíel, höfðinginn Íram. Þessir eru höfðingjar Edómíta, eftir bústöðum þeirra í landi því, sem þeir höfðu numið. Þessi Esaú er ættfaðir Edómíta.