Gamla testamentiðSaga
Og er Davíð og menn hans komu til Ziklag á þriðja degi, þá höfðu Amalekítar gjört herhlaup á suðurlandið og á Ziklag, unnið Ziklag og brent hana;
höfðu þeir hertekið konur og alt, sem Í henni var, bæði smátt og stórt; engan mann höfðu þeir drepið, en haft fólkið á burt með sér og farið síðan leiðar sinnar.
Og er Davíð og menn hans komu til borgarinnar, sjá, þá var hún brunnin, en konur þeirra, synir og dætur herteknar.
Þá tók Davíð og liðið, sem með honum var, að gráta hástöfum, unz þeir voru uppgefnir að gráta
Báðar konur Davíðs höfðu verið herteknar, Ahínóam frá Jesreel og Abígail, er átt hafði Nabal á Karmel.
Var Davíð nú mjög nauðulegð staddur, því að liðið hafði við orð að grýta hann; því að menn vori allir sárhryggir vegna sona sinna og dætra. En Davíð bresti sig upP í Drottni, Guði sínum.
Og Davíð sagði við Abjatar prest, son Ahímeleks: Fær mél hingað hökulinn. Og Abjatar fór með hökulinn til Davíðs.
Og Davíð gekk til frétta við Drottin og mælti: Á eg að ella þennan ræningaflokk • Mun eg ná þeim? Hann svaraði honum: Eltu þá, því að þú muH vissulega ná þeim og fá bjargað.
Þá lagði Davíð af stað, hann og þau sex hundruð manns, sem hjá honum voru, og þeir komu að Besór-læk. Þar námu þeir staðar, er eftir urðu.
Og Davíð hélt áfram eftirförinni með fjögur hundruð manns, en tvö hundruð manns urðu þar eftir, því að þeir máttu eigi yfir Besór-læk komast vegna þreytu.
Þá fundu þeir egipzkan mann úti á víðavangi og fóru með hann til Davíðs; og þeir gáfu honum mat að eta og vatn að drekka;
gáfu þeir honum sneið af fíkjuköku og tvær rúsínukökur, og át hann það og lifnaði við, því að hann hafði ekki mat etið né vatn drukkið í þrjá daga og þrjár nætur.
Og Davíð sagði við hann: Hvers maður ert þú og hvaðan ert þú? Hann svaraði: Eg er egipzkur sveinn, þræll Amalekíta nokkurs. Húsbóndi minn skildi mig hér eftir, af því að eg varð sjúkur fyrir þremur dögum.
Vér gjörðum herhlaup á suðurland Kreta og á land, sem liggur undir Júda, svo og á suðurland Kalebs, og Ziklag brendum vér upp.
Og Davíð sagði við hann: Viltu vísa mér leið til ræningjaflokks þessa? Hann svaraði: Vinn þú mér eið að því við Guð, að drepa mig ekki og framselja mig ekki í hendur húsbónda míns, þá skal eg vísa þér leið til ræningjaflokks þessa.
Og hann veitti þeim leiðsögu þangað; en þá höfðu hinir dreifst um alt landið og átu og drukku og gjörðu sér glaðan dag, vegna hins mikla herfangs, sem þeir höfðu tekið í Filistalandi og í Júda-landi.
Og Davíð barði á þeim frá því í dögun og alt til kvelds og helgaði þá banni, svo að enginn þeirra komst undan, nema fjögur hundruð sveinar, sem stigu á bak úlföldum og flýðu.
Þann veg náði Davíð aftur öllu því, sem Amalekítar höfðu rænt; og báðum konum sínum bjargaði Davíð,
svo að þá vantaði ekkert, hvorki smátt né stórt, hvorki herfang né sonu og dætur, né nokkuð það, er þeir höfðu rænt; Davíð kom aftur með það alt.
Þá tóku þeir alla sauðina og nautin og leiddu fram fyrir hann og sögðu: Þetta er herfang Davíðs.
En er Davíð kom til þeirra tvö hundruð manna, er gefist höfðu upp, svo að þeir máttu ekki fylgja honum, og fyrir því verið skildir eftir við Besór-læk, þá fóru þeir í móti Davíð og liðinu, sem með honum var; og er Davíð kom með liðið, þá heilsuðu þeir þeim.
Þá tóku allir ódrengir og varmenni meðal manna þeirra, er með Davíð höfðu farið, til máls og sögðu: Fyrst þeir fóru ekki með oss, þá viljum vér ekki láta þá fá neitt af herfanginu, sem vér höfum bjargað; þó má hver maður fá konu sína og sonu; það mega þeir taka með sér og fara síðan.
En Davíð sagði: Breytið eigi svo, eftir að Drottinn hefir oss slíkt í té látið og varðveitt oss og selt oss í hendur ræningjaflokk þann, sem á oss hafði ráðist.
Og hver mun verða á yðar máli í þessu efni? Nei, sama hlut og sá fær, er í bardagann fer, sama hlut skal og sá fá, sem verður eftir hjá farangrinum; allir skulu þeir fá jafnan hlut —
og við það sat upp frá þeim degi. Og hann gjörði það að lögum og venju í Ísrael, og hefir það haldist fram á þennan dag.
En er Davíð kom til Ziklag, sendi hann öldungunum í Júda, vinum sínum, nokkuð af herfanginu með þessari orðsending: Sjá, þetta er gjöf yður til handa af herfangi óvina Drottins.
Sömuleiðis þeim í Betúl, þeim í Ramat-Negeb, þeim í Jattír,
þeim í Arara, þeim í Sífmót, þeim í Estemóa,
þeim í Karmel, þeim í borgum Jerahmeelíta, þeim í borgum Keníta,
þeim í Horma, þeim í Bór-Asan, þeim í Atak,
þeim í Hebron og til allra þeirra staða, þar sem Davíð hafði um farið með menn sína.