Fyrri Samúelsbók 31Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Fyrri Samúelsbók 31

En Filistar höfðu lagt til orustu við Ísrael; höfðu Ísraelsmenn flúið fyrir Filistum og lágu margir fallnir á Gilbóa-fjalli.

Filistar eltu Sál og sonu hans; og Filistar feldu Jónatan, Abínadab og Malkísúa, sonu Sáls.

Var mi gjör hörð atlaga að Sál og höfðu nokkurir bogmannanna komið auga á hann; varð hann þá mjög hræddur við bogmennina.

Þá sagði Sál við skjaldsvein sinn: Bregð þú sverði þínu. og legg mig í gegn með því, svo að óumskornir menn þessir komi ekki og fari háðulega með mig. En skjaldsveinninn vildi ekki gjöra það, því að hann var mjög hræddur. Þá tók Sál sverðið og lét fallast á það.

Og er skjaldsveinninn sá, að Sál var dauður, þá lét hann og fallast á sverð sitt og dó með honum.

Þannig létu þeir líf sitt: Sál, synir hans þrír og skjaldsveinn hans, allir þennan sama dag.

En er Ísraelsmenn sáu, þeir er bjuggu hinumegin við sléttlendið og þeir er bjuggu hinumegin Jórdanar, að Ísraelsmenn voru flúnir og Sál og synir hans fallnir, þá yfirgáfu þeir borgir sínar og lögðu á flótta. Og Filistar komu og settust að í þeim.

daginn eftir komu Filistar að ræna valinn; fundu þeir þá Sál og sonu hans þrjá fallna á Gilbóa-fjalli.

Hjuggu þeir af honum höfuðið og flettu hann herklæðum og gjörðu sendimenn um alt Filistaland, til þess að flytja skurðgoðum sínum og lýðnum gleðitíðindin.

Og þeir lögðu vopn hans í hof Astörtu, en lík hans hengdu þeir upp á borgarmúrinn í Bet-San.

En er íbúarnir Í Jabes í Gileað fréttu, hvernig Filistar höfðu farið með Sál,

þá tóku sig til allir vopnfærir menn, gengu alla nóttina og tóku lík Sáls og lík sona hans ofan af borgarmúrnum í Bet-San, Síðan héldu þeir heim til Jabes og brendu þar líkin.

Því næst tóku þeir bein þeirra og grófu það undir tamarisk-trénu í Jabes og föstuðu í sjö daga. síðari Samúelsbók. Davíð spyr fall þeirra Sáls og Jónatans.