Gamla testamentiðSaga
Filistar drógu nú saman allan her sinn hjá Afek, en Ísrael setti herbúðir sínar við lindina hjá Jesreel.
Og höfðingjar Filista komu með hundruð sín og þúsundir, og Davíð og menn hans komu síðastir með Akís.
Þá sögðu höfðingjar Filista: Hvað eiga þessir Hebrear hér að gjöra? Og Akís sagði við höfðingja Filista: Það er Davíð, hirðmaður Sáls konungs í Ísrael, sem nú hefir með mér verið í tvö ár, og hefi eg ekki haft neitt út á hann að setja frá þeirri stundu, er hann gjörðist minn maður, og alt fram á þennan dag.
En höfðingjar Filista reiddust honum og sögðu við hann: Lát þú manninn hverfa heim aftur; fari hann á sinn stað, þar sem þú hefir sett hann; en eigi skal hann með oss fara í bardagann, svo að hann snúist ekki á móti oss í orustunni. Með hverju gæti hann betur náð aftur hyllj herra síns en með höfðum þessara manna?
Var það ekki þessi sami Davíð, sem sungið var um við dansinn: Sál feldi sín þúsund og Davíð sín tíþúsund?
á lét Akís kalla Davíð og sagði við hann: Svo sannarlega sem Drottinn lifir ert þú ráðvandur, og eg um því vel, að þú gangir út og inn með mér í herbúðunum, því að eg hefi ekki orðið neins ills var hjá þér frá þeirri stundu, er þú komst til mín, og alt fram á þennan dag, en höfðingjunum er ekki um þig.
Hverf því aftur og far í friði, svo að þú gjörir ekki neitt það, sem höfðingjum Filista mislíkar.
á sagði Davíð við Akís: Hvað hefi eg þá gjört, og hvað hefir þú haft út á þjón þinn að setja, frá þeirri stundu, er eg gjörðist þinn maður, og alt fram á þennan dag, að eg skuli ekki mega fara og berjast við óvini herra míns, konungsins?
Akís svaraði og sagði við Davíð: Eg veit, að þú ert í mínum augum góður, sem værir þú engill Guðs; en höfðingjar Filista segja: Eigi skal hann með oss fara í bardagann.
Rís þú því árla á morgun, ásamt mönnum herra þíns, sem með þér komu, og farið þér þangað sem eg hefi sett yður, og ætlaðu mér ekkert ilt, því að vel er mér til þín, — og rísið þá árla á morgun og haldið af stað, þegar birtir.
Reis nú Davíð árla um morguninn og menn hans og lögðu af stað heim aftur til Filistalands, en Filistar fóru upp til Jesreel. Davíð fer í móti Amalekítum, þeim er brent höfðu Ziklag.