Fyrri Kroníkubók 8Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Fyrri Kroníkubók 8

Og Benjamín gat Bela, frumgetning sinn, annan Asbel, þriðja Ahra,

fjórða Nóha, fimta Rafa.

Og Bela átti að sonum: Addar, Gera, Abíhúd,

Abísúa, Naaman, Ahóa,

Gera, Sefúfan og Húram.

Og þessir voru synir Ehúðs — þessir voru ætthöfðingjar Geba-búa, og þeir herleiddu þá til Manahaf,

og Naaman, Aliía og Gera, hann herleiddi þá — og hann gat Ússa og Ahíhúd.

En Saharaím gat í Móabslandi, er hann hafði rekið þær frá sér, Húsím og Baöðru konur sínar

þá gat hann við Hódes konu sinni: Jóbab, Zíbja, Mesa, Malkam,

Jeúz, Sokja og Mirma. Þessir voru synir hans, ætthöfðingjar.

Og við Húsím gat hann Abítúb og Elpaal.

Og synir Elpaals voru: Eber, Míseam og Semer. Hann bygði Onó og Lód og þorpin umhverfis.

Og Bería og Sema — þeir voru ætthöfðingjar Ajalonbúa; þeir ráku burt íbúana í Gat —

og Elpaal bróðir hans og Sasak og Jeremót.

Og Sebadja, Arad, Eder,

Míkael, Jispa og Jóha voru synir Bería.

Og Sebadja, Mesúllam, Hiskí, Heber,

Jísmeraí, Jíslía og Jóbab — þeir voru synir Elpaals.

Og Jakím, Síkrí, Sabdí,

Elíenaí, Zilletaí, Elíel,

Adaja, Beraja og Simrat voru synir Símeí.

Og Jíspan, Eber, Elíel,

Abdón, Síkrí, Hanan,

Hananja, Elam, Antótía,

Jífdeja og Penúel voru synir Sasaks.

Og Samseraí, Seharja, Atalja,

Jaaresja, Elía og Síkrí voru synir Jeróhams.

Þessir voru ætthöfðingjar í ættum sínum, höfðingjar. Þeir bjuggu í Jerúsalem.

Og í Gíbeon bjuggu: Jegúel, faðir að Gíbeon, og kona hans hét Maaka.

Frumgetinn sonur hans var Abdón, þá Zúr, Kís, Baal, Ner, Nadab,

Gedór, Ahjó og Seker.

En Míklót gat Símea. Einnig þeir bjuggu andspænis bræðrum sínum, hjá bræðrum sínum í Jerúsalem.

Og Ner gat Kís, og Kís gat Sál, og Sál gat Jónatan, Malkísúa, Abínadab og Esbaal.

Og sonur Jónatans var Meríbaal, og Meríbaal gat Míka.

Og synir Míka voru: Píton, Melek, Tarea og Akas.

En Ákas gat Jóadda, Jóadda gat Alemet, Asmavet og Simrí. Simrí gat Móza,

Móza gat Bínea, hans son var Rafa, hans son Eleasa, hans son Azel.

En Azel átti sex sonu; þeir hétu: Asríkam, Bokrú, Ísmael, Searja, Óbadía og Hanan. Allir þessir voru synir Azels.

Og synir Eseks bróður hans voru: Úlam, frumgetningurinn, annar Jeús, þriðji Elífelet.

Og synir Úlams voru kappar miklir, bogmenn góðir og áttu marga sonu og sonasonu, hundrað og fimtíu alls. Allir þessir heyra til Benjamínssona.