Gamla testamentiðSaga
En allir Ísraelsmenn voru skráðir í ættartölur; eru þeir ritaðir í bók Ísraels-konunga. Og Júdamenn voru herleiddir til Babel sakir ótrúmensku þeirra.
En hinir fyrri íbúar, er voru í landeign þeirra og borgum, voru Ísraelsmenn, prestarnir, Levítarnir og musterisþjónarnir.
Og í Jerúsalem bjuggu menn af Júdasonum, Benjamínssonum, Efraímssonum og Manassesonum:
Útaí Ammíhúdsson, Omrísonar, Imrísonar, Banísonar, er var af niðjum Perez, sonar Júda.
Og af Silónítum: Asaja, frumgetningurinn og synir hans.
Og af niðjum Sera: Jegúel .... og bræður þeirra, sex hundruð og níutíu alls.
Og af Benjamínítum: Sallúm Mesúllamsson, Hódavjasonar, Hassenúasonar,
enn fremur Jíbneja Jeróhamsson, Ela Ússíson, Míkrísonar, Mesúllam Sefatjason, Regúelssonar, Jíbnejasonar,
og bræður þeirra eftir ættum þeirra, níu hundruð fimtíu og sex alls. Allir þessir menn voru ætthöfðingjar í ættum sínum.
Og af prestunum: Jedaja, Jójaríb, Jakín
og Asarja Hilkíason, Mesúllamssonar, Zadókssonar, Merajótssonar, Ahítúbssonar, höfuðsmaður yfir musteri Guðs.
Enn fremur Adaja Jeróhamsson, Pashúrssonar, Malkíasonar, og Maesí Adíelsson, Jahserasonar, Mesúllamssonar, Mesillemítssonar, Immerssonar.
Og bræður þeirra, ætthöfðingjar, voru alls eitt þúsund, sjö hundruð og sextíu, dugandi menn til þess að gegna þjónustu við musteri Guðs.
Og af Levítunum: Semaja Hassúbsson, Asríkamssonar, Hasabjasonar, af Merarí-niðjum.
Enn fremur Bakbakkar, Heres, Galal, Mattanja Míkason, Síkrísonar, Asafssonar,
og Óbadía Semajason, Galalssonar, Jedútúnssonar og Berekía Asason, Elkanasonar, er bjó í þorpum Netófatíta.
Og hliðverðirnir: Sallúm, Akkúb, Talmon og Ahíman og bræður þeirra. Var Sallúm æðstur
og gætir hann enn konungshliðsins gegnt austri. Þetta eru hliðverðirnir í hóp Levíta.
En Sallúm Kóreson, Ebjasafssonar, Kórasonar, og bræður hans, er voru af ætt hans, Kóraítarnir, höfðu þjónustu á hendi, þar sem þeir gættu þröskulda tjaldsins; höfðu og feður þeirra gætt inngangsins að herbúðum Drottins.
og var Pínehas Í Eleasarsson forðum höfðingi þeirra; Drottinn sé með honum!
En Sakaría Meselemjason gætti dyra samfundatjalds-búðarinnar.
Alls voru þessir, er teknir voru til þess að vera dyraverðir, tvö hundruð og tólf; voru þeir skráðir í ættartölur í þorpum sínum; höfðu þeir Davíð og Samúel, sjáarinn, skipað þá í embætti þeirra;
voru þeir og synir þeirra við hliðin á húsi Drottins, tjaldbúðinni, til þess að gæta þeirra.
Stóðu hliðverðirnir gegnt hinum fjórum áttum, gegnt austri, vestri, norðri og suðri.
En bræður þeirra, er bjuggu í þorpum sínum, áttu að koma inn við og við, sjö daga í senn, til þess að aðstoða þá,
því að þeir, fjórir yfirhliðverðirnir, höfðu stöðugt starf á hendi. Þetta eru Levítarnir. Þeir höfðu og umsjón með herbergjum og fjársjóðum Guðs húss,
og héldu til um nætur umhverfis musteri Guðs, því að þeir áttu að halda vörð, og á hverjum morgni áttu þeir að ljúka upp.
Og nokkurir þeirra áttu að sjá um þjónustu-áhöldin; skyldu þeir telja þau, er þeir báru þau út og inn.
Og nokkurir skyldu sjá um áhöldin, og það öll hin helgu áhöld, og hveitimjölið, vínið og olíuna, reykelsið og kryddjurtirnar,
og nokkurir af sonum prestanna skyldu gjöra smyrsl af kryddjurtunum,
en Mattitja, einum af Levítum, frumgetningi Sallúms Kóraíta, var falinn pönnubaksturinn.
Og nokkurir af Kahatítum, bræðrum þeirra, skyldu sjá um raðsettu brauðin, og leggja þau fram á hverjum hvíldardegi.
Og þessir eru söngvararnir, ætthöfðingjar Levíta; þeir búa í herbergjunum, lausir við önnur störf, því að þeir hafa starfs að gæta dag og nótt.
Þessir eru ætthöfðingjar Levíta eftir ætlum þeirra - höfðingjar. Þeir bjuggu í Jerúsalem.
Og í Gíbeon bjuggu: Jeíel, faðir að Gíbeon, og kona hans hét Maaka.
Og frumgetinn sonur hans var Abdón, þá Zúr, Kís, Baal, Ner, Nadab,
Gedór, Ahjó, Sakaría og Miklót.
En Míklót gat Símea. Einnig þeir bjuggu andspænis bræðrum sínum, hjá bræðrum sínum í Jerúsalem.
Og Ner gat Kís, og Kís gat Sál, og Sál gat Jónatan, Malkísúa, Abínadab og Esbaal.
Og sonur Jónatans var Meríbaal, og Meríbaal gat Míka.
Og synir Míka voru: Píton, Melek, Tarea og Akas.
En Akas gat Jaera, Jaera gat Alemet, Asmavet og Simrí, en Simrí gat Móza,
Móza gat Bínea. Hans son var Refaja, hans son Eleasa, hans son Azel.
En Azel átti sex sonu; þeir hétu: Asríkam, Bokrú, Ísmael, Searja, Óbadía og Hanan. Allir þessir voru synir Azels.