Gamla testamentiðSaga
Og synir Íssakars voru: Tóla, Púa, Jasúb og Simron — fjórir alls.
Og synir Tóla: Ússí, Refaja, Jeríel, Jahemaí, Jíbsam og Samúel; voru þeir höfðingjar í ættum sínum í Tóla, kappar miklir í ættum sínum; voru þeir á dögum Davíðs tuttugu og tvö þúsund og sex hundruð að tölu.
Synir Ússí voru: Jísrahja; synir Jísrahja: Míkael, Óbadía, Jóel, Jissía, alls fimm ætthöfðingjar.
Og til þeirra töldust eftir ættum þeirra, eftir frændliði þeirra, hermannasveitir, þrjátíu og sex þúsund manns, því að þeir áttu margar konur og börn.
Og frændur þeirra, allar ættir Íssakars, voru kappar miklir; töldust þeir alls að vera áttatíu og sjö þúsundir.
Synir Benjamíns voru: Bela, Beker, Jedíael — þrír alls.
Og synir Bela: Esbón, Ússí, Ússíel, Jerímót og Írí, fimm alls; voru þeir ætthöfðingjar og kappar miklir, og töldust þeir að vera tuttugu og tvö þúsund þrjátíu og fjórir.
Og synir Bekers: Semíra, Jóas, Elíeser, Eljóenaí, Omrí, Jeremót, Abía, Anatót og Alemet; allir þessir voru synir Bekers.
Og þeir töldust eftir ættum sínum, ætthöfðingjum sínum, er voru kappar miklir, tuttugu þúsund og tvö hundruð.
Og synir Jedíaels: Bílhan, og synir Bílhans: Jeús, Benjamín, Ehúð, Kenaana, Setan, Tarsis og Ahísahar.
Allir þessir voru synir Jedíaels, ætthöfðingjar, kappar miklir, seytján þúsund og tvö hundruð vígra manna.
Og Súppím og Húppím voru synir Írs, en Húsím . . . . synir Akers.
Synir Naftalí: Jahzíel, Gúní, Jezer og Sallúm, synir Bílu.
Synir Manasse voru: Asríel, er kona hans ól; hin sýrlenzka hjákona hans ól Makír, föður Gíleaðs.
Og Makír tók konu handa Húppím og Súppím, en systir hans hét Maaka. Hinn annar hét Zelófhað og Zelófhað átti dætur.
Og Maaka, kona Makírs, ól son og nefndi hann Peres. En bróðir hans hét Seres, og synir hans voru Úlam og Rekem.
Og synir Úlams: Bedan. Þessir eru synir Gíleaðs Makírssonar, Manassesonar.
En Hammóleket systir hans ól Íshód, af Abieser og Mahela.
Og synir Semida voru: Ahjan, Sekem, Líkhí og Aníam. Kynkvísl Efraíms.
Og synir Efraíms voru: Sútela, hans son var Bered, hans son Tahat, hans son Eleada, hans son Tahat,
hans son Sóbad, hans son Sútela, Eser og Elead, en Gat-menn, þeir er fæddir voru í landinu, drápu þá, er þeir fóru til þess að ræna hjörðum þeirra,
Þá harmaði Efraím faðir þeirra lengi, og bræður hans komu til þess að hugga hann.
Og hann gekk inn til konu sinnar og hún varð þunguð og ól son, og nefndi hann hann Bería, því að ógæfu hafði aðborið í húsi hans.
En dóttir hans var Seera; hún bygði neðri og efri Bet-Hóron og Ussen-Seera.
Og sonur hans var Refa og Resef; hans son var Tela, hans son Tahan,
hans son Laedan, hans son Ammíhúd, hans son Elísama,
hans son Nún, hans son Jósúa.
Og óðal þeirra og bústaðir voru: Betel og þorpin umhverfis, austur að Naaran og vestur að Geser og þorpunum umhverfis; enn fremur Sikem og þorpin umhverfis til Aja og þorpanna umhverfis.
Og í höndum Manassesona voru: BetSean og þorpin umhverfis, Taana og þorpin umhverfis, Megiddó og þorpin umhverfis, Dór og þorpin umhverfis. Þar bjuggu synir Jósefs, sonar Ísraels. Kynkvísl Assers.
Synir Assers voru: Hinna, Jísva, Jísví og Bería og systir þeirra var Seera.
Og synir Bería: Heber og Malkíel, hann er faðir Birsaíts.
En Heber gat Jaflet, Semer, Hótam og Súu, systur þeirra.
Og synir Jaflets: Pasak, Bímehal og Asvat; þessir voru synir Jaflets.
Og synir Semers: Ahí, Róhga, Húbba og Aram.
Og synir Helems bróður hans: Zófa, Jímna, Seles og Amal.
synir Zófa voru: Súa, Harnefer, Súal, Beri, Jímra,
Bezer, Hód, Samma, Silsa, Jítran og Beera.
Og synir Jeters: Jefúnne, Pispa og Ara.
Og synir Úlla: Ara, Hanníel og Rizja.
Allir þessir voru synir Assers, ætthöfðingjar, frábærir kappar, höfðingjar meðal þjóðhöfðingja. Töldust þeir, er skráðir voru til herþjónustu, tuttugu og sex þúsundir manns. Annað ættartal Benjainíns-kynkvíslar. Ætt Sáls.