Gamla testamentiðSaga
Og svo bar til, þá er Davíð sat í höll sinni, að Davíð sagði • við Natan spámann: Sjá, eg bý í höll af sedrusviði, en sáttmálsörk Drottins undir tjalddúkum.
Natan svaraði Davíð: Gjör þú alt, sem þér er í hug, því að Guð er með þér.
En hina sömu nótt kom orð Guðs til Natans,
Far þú og seg Davíð þjóni mínum: Svo segir Drottinn: Eigi skalt þú reisa mér hús til að búa í.
Eg hefi ekki búið í húsi síðan er eg leiddi Ísraelsmenn út, alt fram á þennan dag, heldur ferðaðist eg í tjaldi og búð.
Alla þá stund, er eg hefi um farið meðal allra Ísraelsmanna, hefi eg þá sagt nokkurt orð í þá átt við nokkurn af dómurum Ísraels, þá er eg setti til að vera hirða lýðs míns: Hví reisið þér mér ekki hús af sedrusviði?
Og nú skalt þú svo segja þjóni mínum Davíð: Svo segir Drottinn hersveitanna: Eg hefi tekið þig úr haglendinu frá hjarðmenskunni og sett þig höfðingja yfir lýð minn Ísrael;
eg hefi verið með þér í öllu, sem þú hefir tekið þér fyrir hendur og upprætt alla óvini þína fyrir þér, og eg mun gjöra nafn þitt sem nafn hinna mestu manna, sem á jörðunni eru,
og fá lýð mínum Ísrael stað og gróðursetja hann þar, svo að hann geti búið á sínum stað og geti verið öruggur úr því, og til þess að níðingar eyði honum eigi framar eins og áður,
frá því er eg setti dómara yfir lýð minn Ísrael, og eg mun lægja alla fjandmenn þína. Og eg boða þér, að Drottinn mun reisa þér hús.
Þegar æfi þín er öll og þú gengur til feðra þinna, mun eg hefja afspring þinn eftir þig, einn af sonum þínum, og staðfesta konungdóm hans.
Hann skal reisa mér hús og eg mun staðfesta hásæti hans að eilífu.
Eg vil vera honum faðir og hann skal vera mér sonur, og miskunn mína mun eg ekki frá honum taka, eins og eg tók hana frá fyrirrennara þínum,
heldur mun eg setja hann yfir hús mitt og ríki að eilífu, og hásæti hans skal vera óbifanlegt um aldur.
Natan flutti Davíð öll þessi orð og sagði honum sýn þessa alla.
Þá gekk Davíð konungur inn og settist niður frammi fyrir Drottni og mælti: Hver er eg, Drottinn Guð, og hvað er hús mitt, að þú skulir hafa leitt mig til þessa?
Og það nægði þér ekki, Guð, heldur hefir þú fyrirheit gefið um hús þjóns þíns langt fram í aldir, og það meira að segja á mannlegan hátt, Drottinn Guð.
En hvað má Davíð enn við þig mæla? Þú þekkir sjálfur þjón þinn.
Drottinn, sakir þjóns þíns og að þínum vilja hefir þú gjört þetta, að boða þjóni þínum alla þessa miklu hluti.
Drottinn, enginn er sem þú og enginn er Guð nema þú, samkvæmt öllu því, er vér höfum heyrt með eyrum vorum.
Og hvaða þjóð önnur á jörðunni jafnast við lýð þinn Ísrael, að Guð hafi farið og keypt sér hana að eignarlýð, aflað henni frægðar og gjört fyrir þá mikla hluti og hræðilega: stökt burt undan sínum lýð annari þjóð og guði hennar?
En þú hefir gjört lýð þinn Ísrael að þínum lýð um aldur og æfi, og þú, Drottinn, gjörðist Guð þeirra.
Og lát nú, Drottinn, fyrirheit það, er þú hefir gefið um þjón þinn og um hús hans, standa stöðugt um aldur og æfi, og gjör þú svo sem þú hefir heitið.
Þá mun nafn þitt reynast traust og verða mikið að eilífu og hljóða svo: Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels, Ísraels Guð, og hús þjóns þíns Davíðs mun stöðugt standa fyrir þér.
Því að þú, Guð minn, hefir birt þjóni þínum, að þú munir reisa honum hús, fyrir því hafði þjónn þinn djörfung til að bera þessa bæn fram fyrir þig.
Og nú, Drottinn, þú ert Guð, og þú hefir gefið þjóni þínum þetta dýrlega fyrirheit,
virzt þú nú að blessa hús þjóns þíns, svo að það sé til að eilífu fyrir þínu augliti. Því að það, sem þú, Drottinn, blessar, er blessað að eilífu. Sigurvinningar Davíðs.