Gamla testamentiðSaga
Og þeir fluttu örk Guðs inn og settu hana í tjaldið, sem Davíð hafði reisa látið yfir hana, og þeir færðu brennifórnir og heillafórnir.
Og er Davíð hafði fært brennifórnina og heillafórnirnar, blessaði hann lýðinn í nafni Drottins,
og úthlutaði öllum Ísraelsmönnum, körlum sem konum, sinn brauðhleifinn hverjum, kjötstykki og rúsínuköku.
Og hann setti menn af Levítum til þess að gegna þjónustu frammi fyrir örk Drottins, og til þess að tigna, lofa og vegsama Drottin, Guð Ísraels.
Var Asaf helztur þeirra, og honum næstur gekk Sakaría, þá Jeíel, Semíramót, Jehíel, Mattitja, Elíab, Benaja, Óbeð-Edóm og Jeíel með hljóðfærum, hörpum og gígjum, en Asaf lét skálabumburnar kveða við,
og Benaja og Jehasíel prestar þeyttu stöðugt lúðrana frammi fyrir sáttmálsörk Guðs.
Þá, á þeim degi, fól Davíð í fyrsta sinni Asaf og frændum hans að syngja: »Lofið Drottin«.
Lofið Drottin, ákallið nafn hans, gjörið máttarverk hans kunn meðal þjóðanna!
Syngið fyrir honum, leikið fyrir honum, talið um öll hans dásemdarverk.
Hrósið yður af hans helga nafni; hjarta þeirra, er leita Drottins, gleðjist.
Leitið Drottins og máttar hans, stundið sífelt eftir augliti hans.
Minnist dásemdarverka hans, þeirra er hann gjörði, tákna hans og refsidóma munns hans,
þér niðjar Ísraels, þjónar hans, þér synir Jakobs, hans útvöldu.
Hann, Drottinn, er vor Guð; um víða veröld ganga dómar hans.
Minnist að eilífu sáttmála hans, orðs þess, er hann hefir gefið þúsundum kynslóða,
sáttmálans, er hann gjörði við Abraham, og eiðs síns við Ísak,
þess er hann setti sem lög fyrir Jakob, eilífan sáttmála fyrir Ísrael,
þá er hann mælti: »Þér mun eg gefa Kanaanland sem erfðahlut yðar«,
begar þér voruð fámennur hópur, örfáir og bjugguð þar sem útlendingar.
Og þeir fóru frá einni þjóð til annarar, og frá einu konungsríki til annars lýðs;
hann leið engum að kúga þá í og hegndi konungum þeirra vegna.
»Snertið eigi við mínum smurðu, og gjörið eigi spámönnum mínum mein.«
Syngið Drottni, öll lönd;. kunngjörið hjálpráð hans dag eftir dag.
Segið frá dýrð hans meðal heiðingjanna, frá dásemdarverkum hans meðal allra þjóða.
Því að mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur, og óttalegur er hann öllum guðum framar.
Því að allir guðir þjóðanna eru falsguðir, en Drottinn hefir gjört himininn.
Heiður og vegsemd eru fyrir augliti hans, máttur og fögnuður í bústað hans.
Tjáið Drottni, þér þjóðakynkvíslir, tjáið Drottni vegsemd og vald.
Tjáið Drottni dýrð þá, er nafni hans hæfir, færið gjafir og komið fram fyrir hann. Fallið fram fyrir Drottni í helgum skrúða,
tjtrið fyrir honum, öll lönd. Hann hefir fest jörðina, svo að hún bifast ekki.
Himininn gleðjist og jörðin fagni; menn segi meðal heiðingjanna: Drottinn hefir tekið konungdóm.
Hafið drynji og alt, sem í því er, foldin fagni og alt, sem á henni er,
öll tré skógarins kveði fagnaðarópi fyrir Drottni, því að hann kemur til þess að dæma jörðina.
Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu;
og segið: Hjálpa þú oss, Guð hjálpræðis vors; safna þú oss saman og frelsa þú oss frá heiðingjunum, að vér megum lofa þitt heilaga nafn, víðfrægja lofstír þinn.
Lofaður sé Drottinn, Ísraels Guð, frá eilífð til eilífðar. Og allur lýður sagði: Amen! og: Lof sé Drottinn!
Og hann lét þá Asaf og frændur hans verða þar eftir frammi fyrir sáttmálsörk Drottins, til þess að hafa stöðugt þjónustu á hendi frammi fyrir örkinni, eftir því, sem á þurfti að halda dag hvern.
En Óbeð-Edóm Jediítúnsson og Hósa og frændur þeirra, sextíu og átta, Óbeð-Edóm Jeditúnsson og Hósa, skipaði hann hliðvörðu.
En Zadók prest og frændur hans, prestana, setti hann frammi fyrir bústað Drottinn á hæðinni, sem er í Gíbeon,
til þess stöðugt að færa Drottni brennifórnir á brennifórnaraltarinu, kvelds og morgna, og að fara með öllu svo, sem skrifað er í lögmáli Drottins, því er hann lagði fyrir Ísrael.
Og með þeim voru þeir Heman, Jedútún og aðrir þeir er kjörnir voru, þeir er með nafni voru til þess kvaddir að lofa Drottin, því að miskunn hans varir að eilífu.
Og með þeim voru þeir Heman og Jedútún með lúðra og skálabumbur handa söngmönnunum og hljóðfæri fyrir guðssönginn, en þeir Jedútúnssynir voru hliðverðir.
Síðan fór allur lýðurinn burt, hver heim til sín, en Davíð hvarf aftur til þess að heilsa fólki sínu. Davíð gefið fyrirheit.