Gamla testamentiðSaga
Eftir þetta vann Davíð sigur á Filistum og braut þá undirsig, og náði Gat og borgunum umhverfis hana úr höndum Filista.
Hann vann og sigur á Móabítum og þannig urðu Móabitar skattskyldir þegnar Davíðs.
Davíð vann og sigur á Hadareser, konungi í Zóba, er liggur á leið til Hamat, þá er hann fór leiðangur til að festa ríki sitt við Evfratfljót.
Vann Davíð af honum þúsund vagna, sjö þúsund riddara og tuttugu þúsundir lofgönguliðs; lét Davíð skera sundur hásinarnar á öllum vagnhestunum, og hélt aðeins hundrað hestum eftir af þeim.
Og er Sýrlendingar frá Damaskus komu til liðs við Hadareser, konung í Zóba, þá feldi Davíð tuttugu og tvö þúsund manns af Sýrlendingum.
Og Davíð setti landstjóra á Sýrlandi, því er kent er við Damaskus, og urðu Sýrlendingar skattskyldir þegnar Davíðs. Þannig veitti Drottinn Davíð sigur, hvert sem hann fór.
Davíð tók og hina gullnu skjöldu, er þjónar Hadaresers höfðu borið, og flutti til Jerúsalem.
Auk þess tók Davíð afarmikið af eiri í Teba og Kún, borgum Hadaresers; af því gjörði Salómó eirhafið, súlurnar og eiráhöldin.
En er Tóu, konungur í Hamat, frétti, að Davíð hefði lagt að velli allan her Hadaresers, konungs í Zóba,
þá sendi Tóu Hadóram son sinn á fund Davíðs konungs, til þess að heilsa á hann og árna honum heilla, er hann hafði barist við Hadareser og unnið sigur á honum — því að Tóu átti í ófriði við Hadareser —, og með honum sendi hann alls konar gripi af gulli, silfri og eiri.
Þá helgaði Davíð konungur einnig Drottinn, ásamt silfri því og gulli, er hann hafði haft á burt frá öllum þjóðum: frá Edóm, Móab, Ammónítum, Filistum og Amalek.
Og Absaí Zerújuson vann sigur á Edómítum í Saltdalnum, átján Þúsundum manns.
Og hann setti landstjóra í Edóm, og allir Edómítar urðu þegnar Davíðs. En Drottinn veitti Davíð sigur, hvert sem hann fór.
Ög Davíð ríkti yfir öllum Ísrael og lét alla þjóð sína njóta laga Og réttar.
En Jóab Zerújuson var fyrir hernum og Jósafat Ahilúðsson var sagnameistari,
Zadók Ahítúbsson og Abimelek Abjatarsson Voru prestar og Savsa kanzlari,
en Benaja Jójadason var fyrir KretUln og Pletum, og synir Davíðs voru hinir fyrstu við hönd konungi. Unninn sigur á Ammónítum og hamlamönnum þeirra. ófriður við Filista.