Gamla testamentiðSaga
Og Davíð ráðgaðist um við þúsundhöfðingjana og við hundraðshöfðingjana, við alla höfðingjana.
Og Davíð mælti við Ísraelssöfnuð: Ef yður líkar svo, og virðist það vera komið frá Drottni, Guði vorum, þá skulum vér senda til frænda vorra, sem eftir eru orðnir í öllum héruðum Ísraels, svo og til prestanna og Levítanna í borgunum með beitilöndunum, er að þeim liggja, og skulu þeir safnast til vor;
skulum vér sækja örk Guðs vors, því að á dögum Sáls höfum vér ekki spurt um hana.
Svaraði þá allur söfnuður, að svo skyldi gjöra, því að öllum lýðnum leizt þetta rétt vera.
Kallaði þá Davíð saman allan Ísrael, frá Síhór í Egiptalandi, alt þar til, er leið liggur til Hamat, til þess að flytja örk Guðs frá Kirjat-Jearím.
Og Davíð og allur Ísrael fór til Baala, til Kirjat-Jearím, sem er í Júda, til þess að flytja þaðan örk Guðs, sem kend er við nafn Drottins, hans, sem situr uppi yfir kerúbunum.
Og þeir óku örk Guðs á nýjum vagni úr húsi Abínadabs, og stýrðu þeir Ússa og Ahjó vagninum.
Og Davíð og allur Ísrael dansaði fyrir Guði af öllum mætti, með söng, gígjum, hörpum, bumbum, skálabumbum og lúðrum.
En er komið var að láfa Kídons, rétti Ússa út höndina til þess að grípa í örkina, því að slakað hafði verið á taumhaldinu við akneytin.
Þá upptendraðist reiði Drottins gegn Ússa, og hann laust hann þar, af því að hann hafði gripið hendi sinni í örkina, og dó hann þar fyrir augliti Guðs.
En Davíð féll það þungt, að Drottinn hafði lostið Ússa svo hart, og hefir þessi staður verið nefndur Peres-Ússa alt fram á þennan dag.
Og Davíð varð hræddur við Guð á þeim degi og sagði: Hvernig má eg þá flytja örk Guðs til mín?
Og Davíð flutti ekki örkina til sín í Davíðsborg, heldur sneri hann með hana til húss Óbeð-Edóms í Gat.
Og örk Guðs var þrjá mánuði í húsi Óbeð-Edóms, í húsi hans, og Drottinn blessaði hús Óbeð-Edóms og alt það, er hans var.