Fyrri Kroníkubók 14Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Fyrri Kroníkubók 14

Og Híram, konungur í Týrus, gjörði menn á fund Davíðs og sendi honum sedrustré, steinhöggvara og trésmiði, til þess að reisa höll handa honum.

Davíð kannaðist þá við, að Drottinn hefði staðfest konungdóm hans yfir Ísrael, að konungdómur sinn væri hátt upp hafinn fyrir sakir þjóðar hans Ísraels.

Og Davíð tók sér enn konur í Jerúsalem, og Davíð gat enn sonu og dætur.

Og þetta eru nöfn þeirra sona, sem hann eignaðist í Jerúsalem: Sammúa, Sóbab, Natan, Salómó,

Jíbhar, Elísúa, Elpelet,

Nóga, Nefeg, Jafía,

Elísama, Beeljada og Elífelet.

En er Filistar heyrðu, að Davíð væri smurður til konungs yfir allan Ísrael, lögðu allir Filistar af stað að leita Davíðs. Og er Davíð frétti það, fór hann í móti þeim.

Og Filistar komu og dreifðu sér um Refaímdal.

Þá gekk Davíð til frétta við Guð og sagði: Á eg að fara móti Filistum? Munt þú gefa þá í hendur mér? Og Drottinn svaraði honum: Far þú, eg mun gefa þá í hendur þér.

Héldu þeir þá til Baal-Perazím. Og Davíð vann þar sigur á þeim, og Davíð sagði: Guð hefir látið mig skola burt óvinum mínum, eins og þegar vatn ryður sér rás. Fyrir því var sá staður nefndur Baal-Perazím.

En þeir létu þar eftir guði sína, og voru þeir brendir á báli að boði Davíðs.

Og Filistar komu aftur og dreifðu sér um dalinn.

Þá gekk Davíð enn til frétta við Guð, og Guð svaraði honum: Far þú eigi í móti þeim; far þú í bug og kom að baki þeim, og ráð á þá fram undan baka-trjánum.

Og þegar þú heyrir þyt af ferð í krónum baka-trjánna, þá skalt þú leggja til orustu, því að þá fer Guð fyrir þér til þess að ljósta her Filista.

Og Davíð gjörði eins og Guð bauð honum og vann sigur á her Filista, frá Gíbeon til Geser.

Og frægð Davíðs barst um öll lönd, og Drottins lét ótta við hann koma yfir allar þjóðir.