Gamla testamentiðSaga
Og þessir eru þeir, er komu til Davíðs til Ziklag, er hann var —- landflótta fyrir Sál Kíssyni; voru og þeir meðal kappanna, er veittu honum vígsgengi.
Höfðu þeir boga að vopni og voru leiknir að slöngva steinum með hægri og vinstri hendi og að skjóta örvum af boga. Af frændum Sáls, af Benjamínítum:
Ahíeser höfuðsmaður og Jóas, Hassemaasynir frá Gíbeu, Jesfet og Pelet Asmavetssynir, Beraka og Jehú frá Anatót,
Jismaja frá Gíbeon, kappi meðal þeirra þrjátíu og foringi þeirra þrjátíu; Jeremía, Jehasíel, Jóhanan og Jósabad frá Gedera;
Elúsaí, Jerímót, Bealja, Semarja og Sefatja frá Haríf,
Elkana, Jissía, Asareel, Jóeser og Jasóbeam Kóraífar,
Jóela og Sebadja Jeróhamssynir frá Gedór.
Af Gadítum gengu kappar miklir, hermenn, búnir til bardaga, er skjöld báru og spjót, í lið með Davíð í fjallvíginu í eyðimörkinni; voru þeir ásýndum sem ljón og fráir sem skógargeitur á fjöllum.
VarEser höfðingi þeirra, annar var Ubadia, þriðji Elíab,
fjórði Mismanna, fimti Jeremía,
sjötti Attaí, sjöundi Elíel,
áttundi Jóhanan, níundi Elsabad,
tíundi Jeremía, ellefti Makbannaí.
Þessir voru af niðjum Gaðs, og voru þeir hershöfðingjar; var hinn minsti þeirra einn saman hundrað manna maki, en hinn mesti þúsund.
Þessir voru þeir, er fóru yfir Jórdan í fyrsta mánuðinum, er hún flóði yfir alla bakka, og stöktu burt öllum dalbyggjum tl austurs og vesturs.
En nokkurir af Benjamíns- og Júdaniðjum komu til Davíðs í fjallvígið.
Gekk Davíð þá út til þeirra, tók til máls og sagði við þá: Ef þér komið til mín með friði, til þess að veita mér lið, þá vil eg fúslega gjöra bandalag við yður, en ef þér komið til að svíkja mig í hendur óvinum mínum, þótt eg hafi ekkert út aðhafst, þá sjái Guð feðra vorra það og hegni.
Þá kom andi yfir Amasaí, höfðingja fyrir hinum þrjátíu, og mælti hann: Þínir erum vér, Davíð, og með þér, þú Ísaísonur. Heill, heill sé þér, og heill liðsmönnum þínum, því að Guð þinn hjálpar þér. Tók þá Davíð við þeim og gjörði þá að foringjum fyrir sveit sinni.
Af Manasse gengu í lið með Davíð, þá er hann fór með Filistum til bardaga við Sál, — þó liðsintu þeir þeim ekki, því að höfðingjar Filista réðu ráðum sínum, sendu hann burt og sögðu: Hann kynni að ganga í Lið með Sál, herra sínum, og gæti það orðið vor bani —
þegar hann kom til Ziklag, þá gengu í lið með honum af Manasse: Adna, Jósabad, Jedíael, Míkael, Jósabad, Elíhú og Zilletai, þúsundhöfðingjar Manasse.
Veittu þessir Davíð lið gegn ræningjaflokkum, því að allir voru þeir kappar miklir, og urðu þeir foringjar í hernum.
Því að dag frá degi komu menn til liðs við Davíð, unz herinn var mikill orðinn sem guðsher. Taldir kappar þeir, er tóku Davíð til konungs í Hebron.
Og þetta er manntal á höfðingjum þeirra hertýgjaðra manna, er komu til Davíðs í Hebron, til þess að fá honum í hendur konungdóm Sáls eftir boði Drottins:
Júdamenn, er skjöld báru og spjót, voru sex þúsund og átta hundruð herbúinna manna.
Af Símeonsniðjum sjö þúsund og eitt hundrað hraustir hermenn;
af Levíniðjum: fjögur þúsund og sex hundruð;
og auk þess Jójada, höfðingi Aronsættar og Þrjú þúsund og sjö hundruð manns með honum,
og Zadók, ungur maður, hinn mesti kappi; voru tuttugu og tveir herforingjar í ætt hans.
Af Benjamínsniðjum, frændum Sáls, voru þrjár þúsundir, en alt til Þessa héldu flestir þeirra trúnað við ætt Sáls.
Af Efraímsniðjum: tuttugu þúsundir og átta hundruð kappa, nafnkunnra manna í ættum sínum.
Af hálfri Manasse-kynkvísl: átján þúsundir manna, er nafngreindir voru til þess að fara og taka Davíð til konungs.
Af Íssakarsniðjum, er skyn báru á tíðir og tíma, svo að þeir vissu, hvað Ísrael skyldi hafast að: tvö hundruð höfðingjar, og lutu allir frændur þeirra boði þeirra.
Af Sebúlon gengu í herinn fimtíu þúsundir vígra manna, er höfðu alls konar hervopn, allir með einum huga til þess að hjálpa.
Af Naftalí fóru þúsund höfðingjar og með þeim þrjátíu og sjö þúsundir manna, er skjöld báru og spjót.
Af Dansniðjum tuttugu og átta þúsundir og sex hundruð manna, er búnir voru til bardaga.
Af Asser gengu í herinn fjörutíu þúsundir vígra manna.
Af þeim hinumegin Jórdanar: af Rúbensniðjum, Gaðsniðjum og hálfri ættkvísl Manasse: hundrað og tuttugu þúsundir manna, með alls konar vopn til hernaðar.
Allir þessir hermenn, er skipaðir voru í fylkingu, komu samhuga til Hebron, til þess að taka Davíð til konungs yfir allan Ísrael. Voru og allir aðrir Ísraelsmenn samhuga í því að taka Davíð til konungs.
Og þeir dvöldust þar þrjá daga hjá Davíð og neyttu matar og drykkjar, því að frændur þeirra höfðu búið þeim beina.
Auk þess færðu þeir, er bjuggu í nágrenni við þá, alt að Íssakar, Sebúlon og Naftalí, vistir á ösnum, úlföldum, múlum og nautum, mjölmat, fíkjukökur, rúsínukökur, vín, olíu og naut og sauði í ríkum mæli, því að gleði var í Ísrael.