Fyrri Konungabók 9Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Fyrri Konungabók 9

Þá er Salómó hafði lokið að byggja musteri Drottins og konungshöllina og alt annað, er hann fýsti að gjöra,

þá vitraðist Drottinn Salómó annað sinn, eins og hann hafði vitrast honum í Gíbeon.

Drottinn sagði við hann: Eg hefi heyrt bæn þína og grátbeiðni, sem þú barst fram fyrir mig; eg hefi helgað þetta hús, sem þú hefir reist, með því að eg læt nafn mitt búa þar að eilífu, og augu mín og hjarta skut! dvelja þar alla daga.

Ef þú nú gengur fyrir augliti mínu, eins og Davíð faðir þinn gjörði, í hreinskilni hjartans og einlægni, svo að þú gjörir alt, sem eg hefi fyrir þig lagt, og heldur lög mín og ákvæði,

þá vil eg staðfesta hásæti konungdóms þíns yfir Ísrael að eilífu, eins og eg hét Davíð föður þínum, er eg sagði: Eigi skal þig vanta eftirmann í hásæti Ísraels.

En ef þér snúið baki við mér, þér og synir Yðar, og varðveitið eigi boðorð mín og lög, þau er eg hefi lagt fyrir Yður, en farið og þjónið öðrum guðum og fallið fram fyrir þeim,

þá Mun eg uppræta Ísrael úr því landi, sem eg gaf þeim, og húsinu, sem Eg hefi helgað nafni mínu, mun eg burt snara frá augliti mínu, og Ísrael Skal verða að orðskvið og spotti meðal allra þjóða.

Og þetta mis, svo háreist sem það er — hver sem gengur fram hjá því, honum mun blöskra og hann mun blístra, og er menn spyrja: Hvers vegna hefir •lafive leikið svo hart þetta land og þetta hús?

munu menn svara: Af því að þeir yfirgáfu Drottin, Guð sinn, er leiddi feður þeirra af Egiptahtndi, og héldu sér að öðrum guðum, féllu fram fyrir þeim og þjónuðu þeim, — fyrir því hefir Drottinn leitt yfir þá alla þessa ógæfu. Frá Salómó og Himni.

Og að tuttugu árum liðnum, þá er Salómó hafði reist bæði húsin, musteri Drottins og konungshöllina —

en Híram konungur í Týrus hafði hjálpað Salómó um sedrusvið, kýpresvið og gull, eins og hann vildi —, þá gaf Salómó konungur Híram tuttugu borgir í Galíleuhéraði.

Og Híram fór frá Týrus til þess að skoða borgirnar, er Salómó hafði gefið honum, en honum líkuðu þær ekki.

Þá sagði hann: Hvaða borgir eru þetta, sem þú hefir gefið mér, bróðir? Fyrir því hafa þær verið kallaðar Kabúl-hérað fram á þennan dag.

En Híram sendi konungi hundrað og tuttugu talentur gulls.

En svo stóð á vinnuskyldu þeirri, er Salómó konungur lagði á, til þess að byggja musteri Drottins og höll sína, Milló og múra Jerúsalem, Hasór, Megiddó og Geser:

Faraó Egiptalands-konungur hafði farið herferð og unnið Geser og lagt eld í hana, en drepið Kanaanítana, sem bjuggu í borginni, og síðan gefið hana dóttur sinni, konu Salómós, í heimanmund.

En Salómó reisti Geser af nýju og Neðri-Bethóron,

Baalat og Tamar í óbygðinni í landinu,

og allar vistaborgirnar, sem Salómó átti, og vagnliðsborgirnar og riddaraborgirnar, og alt sem Salómó fýsti að byggja í Jerúsalem, á Líbanon og í öllu ríki sínu.

Alt það fólk, sem eftir var af Amórítum, Hetítum, Peresítum, Hevítum og Jebúsítum, sem eigi heyrðu til Ísraelsmönnum,

niðjar þeirra, sem enn voru eftir í landinu og Ísraelsmenn eigi höfðu getað gjöreytt — á þá lagði Salómó skylduvinnu, og er svo enn í dag.

En af Ísraelsmönnum gjörði Salómó enga að þrælum, en þeir voru hermenn, embættismenn hans, hershöfðingjar hans, vagnkappar hans og foringjar fyrir vagnliði hans og riddaraliði.

Þessir voru æðstu fógetarnir, er settir voru yfir verk Salómós: fimm hundruð og fimtíu; höfðu þeir eftirlit með mönnum þeim, er að verkinu unnu.

Óðara en dóttir Faraós var farin úr Davíðsborg í hús sitt, það er hann hafði reist handa henni, bygði hann Milló.

Og þrisvar sinnum á ári fórnaði Salómó brennifórnum og heillafórnum á altarinu, er hann hafði reist Drottni, og færði auk þess reykelsisfórnir á því altari, sem stóð frammi fyrir Drottni. Þannig fullgjörði hann musterið.

Salómó konungur lét og smíða skip í Ezjón-Geber, sem liggur hjá Elat á strönd Rauðahafs, í Edómlandi.

Og Híram sendi á skipin menn sína, farmenn vana sjómensku, ásamt mönnum Salómós.

Og þeir fóru til Ófír og sóttu þangað gull — fjögur hundruð og tuttugu talentur — og færðu það Salómó konungi. Drotningin frá Saba.