Gamla testamentiðSaga
En er drotningin í Saba spurði orðstír Salómós og orðróminn af húsinu, sem Salómó hafði reisa látið nafni Drottins, kom hún til þess að reyna hann með gátum.
hún kom til Jerúsalem með mjög miklu föruneyti, með úlfalda, klyfjaða kryddjurtum og afarmiklu gulli og gimsteinum. Og er hún kom til Salómós, bar hún upp fyrir honum alt, sem henni bjó í brjósti.
En Salómó svaraði öllum spurningum hennar; var enginn hlutur hulinn konungi, er hann eigi gæti úr leyst fyrir hana.
Og er drotningin frá Saba sá alla speki Salómós og húsið, sem hann hafði reisa látið,
matinn á borði hans, bústaði þjóna hans og frammistöðu skutilsveina hans og klæði þeirra, byrlara hans og brennifórn hans, þá er hann fram bar í húsi Drottins, þá varð hún frá sér numin og sagði við konung:
Satt var það, er eg heyrði Í landi mínu um þig og speki þína.
En eg trúði ekki orðrómnum, fyr en eg kom og sá það með eigin augum. Og þó hafði eg ekki frétt helminginn; þú ert miklu vitrari og auðugri en eg hafði frétt.
Sælir eru menn þínir, sælir þessir þjónar þínir, sem stöðugt standa frammi fyrir þér og heyra speki þína.
Lofaður sé Drottinn, Guð þinn, sem hafði þóknun á þér, svo að hann setti þig í hásæti Ísraels; af því að Drottinn elskar Ísrael eilíflega, gjörði hann þig að konungi, til þess að iðka rétt og réttlæti.
Síðan gaf hún konungi hundrað og tuttugu talentur gulls og afarmikið af kryddjurtum og gimsteina; hefir aldrei síðan hingað komið eins mikið af kryddjurtum eins og það, er drotningin frá Saba gaf Salómó konungi.
Sömuleiðis komu skip Hírams, er sóttu gull til Ófír, með afarmikið af sandelviði og gimsteinum frá Ófír.
Og konungur lét gjöra handrið í hús Drottins og konungshöllina af sandelviðnum, svo og gígjur og hörpur handa söngmönnunum; hefir aldrei slíkur sandelviður hingað komið eða sést hér fram á þennan dag.
Og Salómó konungur gaf drotningunni frá Saba alb er hún girntist og kaus sér, auk þess er hann gaf henni af sinni konunglegu rausn. Hélt hún síðan heimleiðis og fór í land sitt með föruneyti sínu. Auðæfi Snlóniós.
Og gullið, sem Salómó fékk á einu ári, var sex hundruð sexfíl og sex talentur gulls að þyngd,
auk þess sem kom inn frá varningsmönnum og við verzlun kaupmannanna og frá öllum konungum í Ereb og jörlum landsins.
Og Salómó konungur lét gjöra tvö hundruð skjöldu af slegu!! gulli, fóru sex hundruð siklar gulls í hvern skjöld,
og þrjú hundruð buklara af slegnu gulli, fóru þrjár mínur gulls í hvern buklara. Lét konungur leggja þá í Líbanonsskógarhúsið.
Konungur lét og gjöra hásæti mikið af fílabeini og lagði það skíru gulli.
Gengu sex þrep upp að hásætinu, og efst var hásætið kringlótt að aftan. Bríkur voru báðumegin sætisins og stóðu tvö ljón við bríkurnar.
Og tólf hl stóðu á þrepunum sex báðumegin. Slík smíð hefir aldrei verið sjör í nokkurn konungsríki.
Öll voru drykkjarker Salómós konungs af gulli og öll áhöld í Líbanonsskógarhúsinu voru af skíru gulli, ekkert af silfri, því að silfur var einskis metið á dögum Salómós.
Því að konungur hafði Tarsis-skip í förum með skipum Hírams; þriðja hvert ár komu Tarsis-skipin heim hlaðin gulli og silfri, fílabeini, öpum og Þáfuslum.
Og Salómó konungur bar af öllum konungum jarðarinnar að auðlegð og vizku.
Og allan heiminn fýsti að sjá Salómó, til þess að heyra vizku hans, sem Guð hafði lagt honum í brjóst.
Komu þeir þá hver með sína gjöf, silfurgripi og gullgripi, klæði og vopn, kryddjurtir, hesta og múla — ár eftir ár.
Og Salómó safnaði vögnum og riddurum, og hafði hann fjórtán hundruð vagna og tólf þúsund riddara; lét hann þá vera í vagnliðsborgunum og með konungi í Jerúsalem.
Og konungur gjörði silfur eins algengt í Jerúsalem og grjót, og sedrusvið eins og mórberjatrén, sem vaxa á láglendinu.
Hesta sína fékk Salómó frá Egiptalandi, og sóttu kaupmenn konungs þá í hópum og guldu fé fyrir,
svo að hver vagn, sem fenginn var sunnan af Egiptalandi, kostaði sex hundruð sikla silfurs, en hver hestur hundrað og fimtíu. Og á þennan hátt voru og hestar fluttir út fyrir milligöngu þeirra til allra konunga Hetíta og konunga Sýrlendinga.