Fyrri Konungabók 11Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Fyrri Konungabók 11

En auk dóttur Faraós unni Salómó konungur mörgum útlendum konum, móabítískum, ammónítískum, edómítískum, zídonskum og hetítískum,

konum af þeim þjóðum, er Drottinn hafði sagt um við Ísraelsmenn: Þér skuluð ekki eiga mök við þær og þær skulu ekki eiga mök við yður; þær munu vissulega snúa hjörtum yðar til guða sinna — til þeirra feldi Salómó ástarhug.

Hann átti sjö hundruð eiginkonur og þrjú hundruð hjákonur, og konur hans sneru hjarta hans afleiðis.

Og er Salómó var kominn á gamalsaldur, sneru konur hans hjarta hans til annara guða, og hjarta hans var ekki einlægt gagnvart Drottni, Guði hans, eins og hjarta Davíðs föður hans hafði verið.

Og Salómó elti Astarte, goð Zídoninga, og Milkóm, viðurstygð Ammóníta.

Og Salómó gjörði það sem ilt var í augum Guðs og sýndi ekki Drottins fullkomna hlýðni, eins og gjört hafði Davíð faðir hans.

Þá reisti Salómó fórnarhæð fyrir Kamos, viðurstygð Móabíta, á fjallinu sem liggur fyrir austan Jerúsalem, og fyrir Mólok, viðurstygð Ammóníta.

Og svo gjörði hann fyrir allar hinar útlendu konur sínar, sem færðu goðum sínum reykelsisfórnir og sláturfórnir.

En Drottinn reiddist Salómó fyrir það að hann sneri hjarta sínu frá Drottni, Ísraels Guði, sem þó hafði vitrast honum tvisvar

og bannað honum að elta aðra guði, en hann hafði ekki haldið það, sem Drottinn bauð honum.

Fyrir því sagði Drottinn við Salómó: Sökum þess, að þú hefir farið svo að ráði þínu og eigi haldið sáttmálann við mig, né skipanir þær, er eg fyrir þig lagði, þá mun eg rífa frá þér konungdóminn og fá hann í hendur þjóni þínum.

Þó mun eg ekki gjöra það meðan þú ert á lífi, vegna Davíðs föður þíns, en frá syni þínum mun eg rífa hann.

Samt mun eg eigi rífa frá honum alt konungsríkið; eina ættkvísl mun eg fá syni þínum í hendur, vegna Davíðs þjóns míns og vegna Jerúsalem, sem eg hefi útvalið.

Og Drottinn vakti Salómó upp mótstöðumann, Hadad Edómíta; hann var af konungsættinni í Edóm.

Þá er Davíð var að eyða Edómítum og Jóab hershöfðingi fór til þess að grafa hina föllnu og drap alla karlmenn í Edóm

því að Jóab og allur Ísrael var þar sex mánuði, unz hann hafði gjöreytt öllum karlmönnum í Edóm,

þá flýði Hadad með nokkura Edómiíta, er verið höfðu þjónar föður hans, og hélt til Egiptalands, en Hadad var þá unglingur.

Og þeir tóku sig upp frá Midían og komu til Paran; og þeir tóku menn með sér frá Paran og komu til Egiptalands, til Faraós Egiptalands-konungs. Hann gaf honum hús og fékk honum uppeldi og gaf honum land.

Og Hadad varð mjög þokkaður af Faraó, og gifti hann honum eldri systur Takpenes konu sinnar.

Og systir Takpenes fæddi honum Genúbat son hans; en Takpenes vandi hann af brjósti í höll Faraós, og þannig varð Genúbat kyrr í höll Faraós meðal barna Faraós.

En er Hadad frétti til Egiptalands, að Davíð væri lagstur til hvíldar hjá feðrum sínum og að Jóab hershöfðingi væri dáinn, þá sagði Hadad við Faraó: Veit mér orlof, að eg megi fara til ættlands míns.

En Faraó svaraði honum: Hvers er þér vant hjá mér, fyrst þú vilt fara til ættlands þíns? Hinn svaraði: Einskis, en veit mér þó orlof.

Og Guð vakti honum upp mótstöðumann, Resón Eljadason, er hlaupist hafði á brott frá Hadadeser, konungi í Zóba, húsbónda sínum.

Hann safnaði að sér mönnum og gjörðist foringi fyrir ránsflokki, þá er Davíð eyddi Sýrlendingum; og hann vann Damaskus, settist þar að og varð konungur í Damaskus.

Hann var mótstöðumaður Ísraels meðan Salómó var á lífi, auk þess óskunda, er Hadad gjörði; hann hafði óbeit á Ísrael og var konungur yfir Sýrlandi.

En Jeróbóam Nebatsson, Efraímíti frá Zereda — móðir hans hét Zerúa og var ekkja — þjónn Salómós, gjörði og uppreisn gegn konungi.

En að hann gjörði uppreisn gegn konungi atvikaðist þannig: Salómó var að byggja Milló og bygði svo fyrir skarðið, sem var á borg Davíðs föður hans,

en Jeróbóam þessi var mesti dugnaðarmaður, og er Salómó sá, að þessi ungi maður var iðjumaður, setti hann hann yfir alla kvaðarmenn Jósefs ættar.

En svo bar til um þetta leyti, er Jeróbóam fór burt úr Jerúsalem, að Ahía spámaður frá Síló mætti honum á leiðinni; hann var klæddur nýrri yfirhöfn, og voru þeir tveir einir úti á víðavangi.

Þá þreif Ahía nýju yfirhöfnina, sem hann var í, reif hana sundur í tólf hluti

og sagði við Jeróbóam: Tak þú þér tíu hluti. Því að svo segir Drottinn, Guð Ísraels: Sjá, eg ríf konungdóminn frá Salómó og gef þér tíu ættkvíslirnar, —

en einni ættkvíslinni skal hann halda, sakir þjóns míns Davíðs og sakir Jerúsalem, borgarinnar, sem eg hefi útvalið af öllum ættkvíslum Ísraels —

sökum þess að þeir hafa yfirgefið mig og fallið fram fyrir Astarte, goði Zídoninga, Kamos, goði Móabíta, og Milkóm, goði Ammóníta, og eigi gengið á mínum vegum með því að gjöra það, sem rétt er í mínum augum, og halda lög mín og ákvæði, eins og gjörði Davíð faðir hans.

En eigi vil eg taka af honum alt ríkið, heldur vil eg láta hann vera þjóðhöfðingja alla æfi, sakir Davíðs þjóns míns, er eg útvaldi, en hann hélt ákvæði mín og lög.

En eg vil taka konungdóminn frá syni hans og gefa þér hann, tíu ættkvíslirnar;

en syni hans mun eg gefa eina ættkvísl, svo að þjónn minn Davíð hafi ávalt lampa fyrir augliti mínu í Jerúsalem, borginni, sem eg hefi útvalið til þess að láta nafn mitt búa þar.

En þig vil eg taka til þess að ríkja yfir öllu, sem þú girnist, og til að vera konungur yfir Ísrael.

Og ef þú hlýðir öllu, sem eg býð þér, og gengur á mínum vegum, gjörir það sem rétt er í mínum augum og heldur lög mín og boðorð, eins og Davíð þjónn minn gjörði, þá vil eg vera með þér og reisa þér stöðugt hús, eins og eg reisti Davíð, og gefa þér Ísrael.

en niðja Davíðs mun eg auðmýkja sakir þessa, þó eigi um aldur og æfi.

En Salómó leitaðist við að ráða Jeróbóam af dögum, en Jeróbóam tók sig upp og flýði til Egiptalands, til Sísaks konungs í Egiptalandi, og var hann í Egiptalandi, þar til er Salómó andaðist.

En það, sem meira er að segja um Salómó og alt það, er hann gjörði, og um speki hans — það er ritað í bókinni um gjörðir Salómós.

Og sá tími, er Salómó var konungur í Jerúsalem yfir öllum Ísrael, var fjörutíu ár.

Og Salómó lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og Var Jarðaður í borg Davíðs föður síns. Og Rehabeam sonur hans tók ríki eftir hann.