Fyrri Konungabók 7Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Fyrri Konungabók 7

En höll sína var Salómó að byggja í þrettán ár og fullgjörði þannig alt sitt hús.

Hann bygði Líbanonsskógarhúsið, er var hundrað álnir á lengd, fimtíu álnir á breidd og þrjátíu álnir á hæð, á þrem sedrussúlnaröðum, og á súlunum hvíldu bjálkar af sedrusviði.

Og það var þakið sedrusviði uppi yfir hliðarherbergjunum, er hvíldu á fjörutíu og fimm súlum, fimtán í hverri röð.

Og gluggaraðirnar voru þrjár, og ljóri gegnt ljóra þrem sinnum.

Og allar dyr og allir ljórar voru ferhyrndir, og ljóri var gegnt ljóra þrem sinnum.

Og hann gjörði súlnasal, fimtíu álnir á lengd og þrjátíu álnir á breidd, og forsal þar fyrir framan og súlur og pall þar fyrir framar.

Og hann bygði hásætissal, þar sem hann kvað upp dóma — dómhöllina, og hún var þiljuð sedrusviði frá gólfi til lofts.

Og hús hans, þar er hann bjó, í öðrum garðinum, inn af forsalnum, var gjört á sama hátt. Salómó gjörði og hús, eins og forsalinn, handa dóttur Faraós, er hann hafði gengið að eiga.

Alt þetta var bygt af ágætum steinum, er voru höggnir til eftir máli, sagaðir með sög innan og utan, frá undirstöðum og upp á veggbrúnir, og að utan alt að forgarðinum mikla.

Og undirstaðan var úr ágætum steinum, stórum steinum, tíu álna steinum og átta álna steinum.

Og þar á ofan voru ágætir steinar, höggnir eftir máli, og sedrusviður.

Og forgarðurinn mikli var gjörður alt um kring af þrem lögum af höggnum steini og einu lagi af sedrusbjálkum, svo og innri forgarður musteris Drottins og forgarðurinn að súlnasal hallarinnar.

Salómó konungur sendi og lét sækja Híram frá Týrus.

Hann var sonur ekkju nokkurrar af ættkvísl Naftalí, en faðir hans var ættaður frá Týrus og var koparsmiður; var hann fullur hagleiks, skilnings og kunnáttu til að gjöra alls konar smíðar af eiri. Hann kom til Salómós konungs og smíðaði allar smíðar fyrir hann.

Hann steypti báðar súlurnar í forsal musterisins af eiri. Önnur súlan var átján álnir á hæð, og tólf álna langan þráð þurfti til þess að ná utan um hana; súlan var fjögra fingra þykk, hol að innan; á sama hátt gjörði hann hina súluna.

Og hann gjörði tvö höfuð steypt af eiri, til þess að setja ofan á súlurnar; var hvort höfuð fimm álnir á hæð.

Á höfðunum, sem voru á súlunum, var sem riðið net og fléttur, gjörðar af festum, sjö fyrir hvort höfuð.

Og hann gjörði granatepli, tvær raðir alt í kring, utan á öðru netinu, til þess að hylja höfuðin, sem voru ofan á súlunum; eins gjörði hann á hinu höfðinu.

Og höfuðin, sem voru ofan á súlunum í forsalnum, voru liljumynduð, fjórar álnir.

Á báðum súlunum voru höfuð, einnig að ofan, hjá bungunni undir riðna netinu; granateplin voru tvö hundruð að tölu, í röðum hringinn í kring um hitt höfuðið.

Og hann reisti súlurnar við forsal aðalhússins; hann reisti hægri súluna og kallaði hana Jakín og hann reisti vinstri súluna og kallaði hana Bóas.

Og efst voru súlurnar liljumyndaðar. Þannig var súlnasmíðinu lokið.

Og hann gjörði hafið og var það steypt af eiri; það var tíu álnir af barmi og á, kringlótt og fimm álnir á dýpt og þrjátíu álna snúra lá um það.

En neðan á barminum alt í kring voru kólókvintar, tíu á hverri alin, er mynduðu hring utan um hafið, tvær raðir af kólókvintum, og voru þeir samsteyptir hafinu.

Það stóð á tólf nautum, sneru þrjú í norður, þrjú í vestur, þrjú í suður, þrjú í austur; hvíldi hafið á þeim, og sneru allir bakhlutir þeirra inn.

Það var þverhandarþykt og barmur þess í laginu sem barmur á bikar, líkt og liljublóm. Það tók tvö þúsund bat.

Hann gjörði og undirstöðupallana, tíu að tölu, af eiri; var hver pallur fjórar álnir á lengd, fjórar álnir á breidd og þrjár álnir á hæð.

En hver undirstöðupallanna var svo gjörður: Á þeim voru speld, og það milli brúnalistanna.

En á speldunum, sem voru milli brúnalistanna, voru ljón, naut og kerúbar, og eins á brúnalistunum. Og bæði fyrir ofan og fyrir neðan ljónin og nautin voru hangandi blómfestar.

Og undir hverjum palli voru fjögur hjól af eiri og ásar af eiri. Og á fjórum hornum þess voru axlir. Voru axlirnar steyptar undir kerið; gegnt hverri þeirra voru blómfestar.

En opin á þeim voru fyrir innan axlirnar alin á hæð; og opin voru kringlótt, hálf önnur alin; og einnig á börmum opsins voru grafnar myndir; speldin voru ferskeytt, ekki kringlótt.

Og hjólin fjögur voru undir speldunum og hjólhaldararnir festir við pallinn. En hvert hjól var hálf önnur alin á hæð.

Og hjólin voru gjörð eins og vagnhjól; haldarar þeirra, hringir, spelir og nafir — alt var það steypt.

Og á fjórum hornum hvers palls voru fjórar axlir; gengu axlirnar upp af pöllunum.

Og uppi á pallinum var eins konar standur, hálf alin á hæð, alstaðar sívalur; og ofan á pallinum voru haldarar hans og speld og gengu upp úr honum.

Og á fleti haldara hans og á speld hans gróf hann kerúba, ljón og pálma, eftir því sem rúm var til á hverju, og blómfestar í kring.

Á þennan hátt gjörði hann undirstöðupallana tíu; þeir voru allir eins steyptir, jafnstórir og af sömu gerð.

Þá gjörði hann tíu ker af eiri; tók hvert ker fjörutíu bat; hvert ker var fjórar álnir að þvermáli. Eitt ker var á hverjum pallanna tíu.

Og hann setti fimm pallana hægramegin í húsið og fimm vinstramegin; en hafið setti hann hægramegin í húsið, í austur, gegnt suðri.

Og Híram gjörði kerin, eldspaðana og fórnarskálarnar, og þannig lauk Híram við allar þær smíðar, er hann hafði gjört fyrir Salómó konung í hús Drottins:

tvær súlur og tvær kúlur á súlnahöfðunum og bæði riðnu netin, er hylja áttu báðar kúlurnar á súlnahöfðunum,

og fjögur hundruð granateplin á bæði netin, tvær raðir af granateplum á hvort net, er hylja áttu báðar kúlurnar á súlnahöfðunum;

enn fremur undirstöðupallana tíu og kerin tíu á undirstöðupöllunum,

og hafið og tólf nautin undir hafinu,

og katlana, eldspaðana og fórnarskálarnar, og öll þessi áhöld, er Híram hafði gjört fyrir Salómó konung í hús Drottins, voru úr skygðum eiri.

Lét konungur steypa þau á Jórdan-sléttlendinu í leirmótum, milli Súkkót og Zaretan.

Og Salómó lét áhöldin vera óvegin, af því að þau voru afarmörg; þyngd eirsins var eigi rannsökuð.

Og Salómó gjörði öll þau áhöld, sem voru í húsi Drottins: gullaltarið og borðið, sem skoðunarbrauðin lágu á, af gulli,

og ljósastikurnar, fimm hægramegin og fimm vinstramegin, fyrir framan innhúsið af skíru gulli, og blómin, lampana og ljósasöxin af gulli,

og katlana, skarbítana, fórnarskálarnar, bollana, eldpönnurnar af skíru gulli. Hjarirnar á vængjahurðum insta hússins, hins allrahelgasta, og á vængjahurðum musterisins, aðalhússins, voru og af gulli.

Og er öllu því verki var lokið, er Salómó konungur lét gjöra í húsi Drottins, þá flutti Salómó helgigjafir Davíðs föður síns inn í það, silfrið og gullið, en áhöldin lét hann í féhirzlur Drottins húss.