Gamla testamentiðSaga
Á fjögur hundruð og áttugasta ári frá því, er Ísraelsmenn fóru af Egiptalandi, fjórða árið, sem Salómó ríkti yfir Ísrael, í sívmánuði — það er öðrum mánuðinum — reisti hann Drottni musterið.
Og musterið, sem Salómó konungur reisti Drottni, var sextíu álnir á lengd, tuttugu álnir á breidd og þrjátíu álnir á hæð.
Og forsalurinn fyrir framan musterishúsið var tuttugu álnir á lengd fram með musterisendanum og tíu álnir á breidd fram af musterinu.
Og hann gjörði glugga á musterið með föstum grindum fyrir.
Og upp að musterisveggnum hringinn í kring reisti hann hliðarhús, — upp að musterisveggjunum, hringinn í kring um aðalhúsið og innhúsið og gjörði stúkur alt í kring.
Pallgólf þessa hliðarhúss var fimm álnir á breidd; neðra loftið sex álnir á breidd og efra loftið sjö álnir á breidd, því að hann hafði sett stalla utan á húsið hringinn í kring, til þess að bitarnir skyldu ekki ganga inn í musterisveggina.
Og er musterið var reist, var bygt úr steinum, sem höfðu verið höggnir til þegar grjótið var tekið, svo að hvorki heyrðist hamarshljóð né axar, né nokkurs annars járntóls, meðan á byggingu musterisins stóð.
Dyrnar á pallgólfi hliðarhússins voru á suðurhlið musterisins og var gengið upp um hringstiga upp á neðra loftið og af neðra loftinu upp á efra loftið.
Og þannig reisti hann musterið og lauk við það og þakti musterið með bjálkum og þiljum úr sedrusviði.
Og hann reisti hliðarhús utan um alt musterið, fimm álnir á hæð hvert lyfti, og tengdi þau við musterið með sedrusviði.
Þá kom orð Drottins til Salómós svolátandi:
Musteri þetta, sem þú ert að byggja — ef þú gengur eftir boðorðum mínum og breytir eftir lögum mínum og varðveitir allar skipanir mínar með því að ganga eftir þeim, þá mun eg efna heit mitt við þig, er eg gaf Davíð föður þínum,
Og eg mun búa meðal Ísraelsmanna og eigi yfirgefa lýð minn Ísrael.
Þannig bygði Salómó musterið og lauk við það.
Og hann þiljaði musterisveggina að innan með sedrusviði; Í gólfi hússins upp að loftbjálkum þiljaði hann það að innan með viði, og lagði gólf í húsið úr kýpresviðarborðum.
Og hann þiljaði tuttugu álnir aftan af húsinu neðan frá gólfi og upp undir bjálka með sedrusviði; gjörði hann þannig úr því að innan innhús, það er hið allrahelgasta.
Og húsið var fjörutíu álnir, það er aðalhúsið fyrir framan innhúsið.
Innan á húsinu var sedrusviður, útskorinn með kólókvintum og blómsveigum; var það alt af sedrusviði og sá hvergi í stein.
Og hann bjó út innhús inni í musterinu, til þess að þangað mætti flytja sáttmálsörk Drottins.
Og fyrir framan innhúsið — en það var tuttugu álnir á lengd, tuttugu álnir á breidd og tuttugu álnir á hæð og hann lagði það skíru gulli — gjörði hann altari af sedrusviði.
Og Salómó lagði húsið með skíru gulli að innan og hann dró gullfestar fyrir kórinn og lagði hann gulli.
Og alt húsið lagði hann gulli — algjörlega alt húsið; einnig lagði hann gulli alt altarið, sem tilheyrði innhúsinu.
Og hann gjörði í innhúsinu tvo kerúba af olíuviði tíu álna háa.
En hvor vængur annars kerúbsins var fimm álnir og hvor vængur hins kerúbsins fimm álnir, svo að tíu álnir voru frá enda annars Vængsins til enda hins vængsins.
Og hinn kerúbinn var og tíu álnir; báðir voru kerúbarnir jafnstórir og eins að gerð.
Annar kerúbinn Var tíu álnir á hæð, svo og hinn kerúbinn.
Og hann setti kerúbana Upp inni í innra húsinu, og breiddu þeir út vængina, svo að annar Vængur annars nam við vegginn og hinn vængur hins kerúbsins nam Við hinn vegginn, en í miðju húsinu námu vængir þeirra hvor við Annan.
Og hann lagði kerúbana gulli.
Og hann lét skera út á Veggina hringinn í kring kerúba, pálma og blómfléttur, inni og fyrir Utan.
Gólf hússins lagði hann og gulli, inni og fyrir utan.
Fyrir dyr innhússins lét hann gjöra vængjahurð úr olíuviði. Umgjörðin yfir dyrunum og dyrustafirnir mynduðu fimmhyrning.
Á báðar vængjahurðirnar, sem voru úr olíuviði, lét hann skera kerúba, pálma og blómfléttur og leggja gulli, en kerúbana og pálmana lagði hann slegnu gulli.
Og fyrir dyr aðalhússins lét hann sömuleiðis gjöra ferstrenda dyrustafi af olíuviði
og tvær vængjahurðir af kýpresviði; var hvor vængurinn um sig gjörður af tveimur hlerum, er léku á hjörum.
Og hann lét skera kerúba, pálma og blómfléttur á þá og lagði það gulli, sem út var skorið.
Og hann gjörði vegginn um innri forgarðinn úr þrem lögum af höggnum steini og einu lagi af sedrusbjálkum.
Á fjórða ári var grundvöllurinn lagður að húsi Drottins, í sív-mánuði.
Og á ellefta ári, í búl-mánuði — það er áttundi mánuðurinn — var húsið fullgjört í öllum greinum, með öllu sem því tilheyrði. Í sjö ár var hann að byggja það.