Gamla testamentiðSaga
Híram konungur í Týrus sendi þjóna sína til Salómós, því að hann hafði heyrt að hann hefði verið smurður til konungs í stað föður síns, en Híram hafði ætíð verið góðvinur Davíðs.
Og Salómó þdi til Hírams og lét segja honum:
Þú veizt sjálfur að Davíð faðir minn mátti eigi reisa hús nafni Drottins, Guðs síns, vegna ófriðar þess, er hann varð að eiga í á allar hliðar, unz Drottinn lagði óvini hans undir iljar honum.
En nú hefir Drottinn, Guð minn, veitt mér frið alt umhverfis; á eg engan mótstöðumann og ekkert er framar að meini.
Fyrir því hefi eg í hyggju að reisa hús nafni Drottins, Guðs míns, eins og Drottinn sagði við Davíð föður minn, er hann mælti: Sonur þinn, er eg set í hásæti þitt í þinn stað, hann skal reisa hús mínu nafni.
Bjóð því nú að höggva sedrustré á Líbanon handa mér, og þjónar mínir skulu vera með þínum þjónum; skal eg greiða þér kaup fyrir þjóna þína, slíkt er þú sjálfur tiltekur. Því að þú veizt sjálfur, að með oss er enginn maður, er kunni að skógarhöggi sem Zídoningar.
Þegar Híram heyrði orðsending Salómós, varð hann harla glaður og sagði: Lofaður sé Drottinn í dag, er gefið hefir Davíð vitran son til að ríkja yfir þessari fjölmennu þjóð.
Og Híram sendi til Salómós og lét segja honum: Eg hefi heyrt þá orðsending, er þú gjörðir mér; skal eg gjöra að ósk þinni um sedrusviðinn og kýpresviðinn.
Mínir menn skulu flytja viðinn ofan frá Líbanon til sjávar og eg skal láta leggja hann í flota í sjónum og flytja þangað sem þú segir til um; þar læt eg taka sundur flotana, en þú lætur sækja. En þú skalt gjöra að ósk minni og láta mig fá vistir handa hirð minni.
Og Híram lét Salómó fá eins mikið af sedrusviði og kýpresviði og hann vildi.
En Salómó lét Híram fá tuttugu þúsund kór af hveiti til matar fyrir hirð hans og tuttugu þúsund bat af olíu úr steyttum olíuberjum. Þetta lét Salómó Híram fá á ári hverju.
Og Drottinn hafði veitt Salómó speki, eins og hann hafði heitið honum. Og það fór vel á með þeim Híram og Salómó, og þeir gjörðu sáttmála sín á milli.
Og Salómó konungur bauð út kvaðarmönnum úr öllum Ísrael, og urðu kvaðarmennirnir þrjátíu þúsundir að tölu.
Og hann sendi þá til skiftis til Líbanon, tíu þúsundir á mánuði hverjum; skyldu þeir vera einn mánuð á Líbanon, en tvo mánuði heima hjá sér; og Adóníram var yfir kvaðarvinnunni.
Og Salómó hafði sjötíu þúsund burðarmenn og áttatíu þúsund steinhöggvara í fjöllunum,
auk yfirfógeta Salómós, er fyrir verkinu stóðu, þrjú þúsund og þrjú hundruð að tölu; skyldu þeir hafa umsjón með þeim mönnum, er verkið unnu.
Og að boði konungs hjuggu þeir stóra steina, ágæta steina, til þess að byggja musterisgrunninn úr höggnu grjóti.
Og smiðir Salómós og Hírams og Giblítar hjuggu þá til, undirbjuggu viðinn og steinana, til þess að reisa musterið. Musterið bygt.